Bjarmi - 01.11.1968, Qupperneq 9
isburð, að hann bæri langt af
öðrum nemendum. Hann hefur
einnig sýnt mikinn áhuga i
hinu nýja starfi sínu í Konsó.
Af fermingardrengjunum þenn-
an dag má nefna Kiffele, pilt-
inn efnilega, sem vai’ við nám
ásamt Jóhannesi Hadaya og
Adane við kennaraskólann í Irg-
alem, en dó snögglega á liðnum
vetri.
Fjórum vikum síðar er enn
skirt í Konsó, og meðal þeirra,
sem þá eru teknir í söfnuðinn,
eru Barrisja Germó, seiðmað-
urinn frá Dokottó, og Gandó,
safnaðaröldungur, einn af mátt-
arstólpum safnaðarins í Konsó.
— Lengra skal þetta ekki rakið.
Starfað í 24 Konsóþorpum.
Á þessum fimmtán árum,
sem liðin eru, síðan íslenzkir
vottar hófu að boða nafn Jesú
Krists í Konsó, og þau tíu ár,
sem söfnuður hefur verið þar
við lýði, hefur Drottinn blessað
starfið, og hefur það vaxið jafnt
og þétt, svo að vér hljótum að
lofa hann og þakka honum. Nú
er söfnuðurinn ekki sex manns
eins og í upphafi, heldur munu
vera í honum um 1000 manns.
I upphafi þessa árs var unnið
að kristilegu starfi í tuttugu og
fjórum Konsóþorpum, og inn-
bornir starfsmenn voru yfir
þrjátíu talsins. Barnaskóli með
sex bekkjum starfar á stöðinni,
og fyrsti bekkur er á vegum
safnaðarins í tveim þorpum.
Börn og fullorðnir sækja kvöld-
námskeið í þorpunum hundruð-
um og jafnvel þúsundum sam-
an, og á árinu, sem leið, sóttu
hundruð manna skírnarnám-
skeið i um tuttugu þorpum.
Auk þessa eru haldin sérstök
námskeið fyrir safnaðarfólk.
Konsómaður hefur verið
vigður prestur, Barrisja Húnde,
eins og fyrr segir, en sú vígsla
fór einmitt fram á þessu ári.
Verið er að skipta héraðinu í
fjögur safnaðai’svæði, svo mjög
hefur starfið aukizt og þörfin
vaxið á breyttu skipulagi, svo
að starfskraftar megi nýtast
sem bezt. Kirkja með bárujárns-
þaki er risin í a. m. k. einu
þorpi, Nagúllí, auk allra ann-
arra kirkna í þorpunum, og á
stöðinni sjálfri eru byggð æ
fleiri hús, enda er hún orðin
eins og lítið þorp. Nýja sjúkra-
skýlið hefur reynzt þúsundum
þjáðra Konsómanna hæli og
höfn.
Margir kristniboðar hafa far-
ið héðan til starfa í Eþíópíu,
frá því starfið hófst. Það er
ánægjulegt, að þau Margrét,
Benedikt og Ingunn, sem öll
voru i Konsó, þegar söfnuður
var stofnaður þar, skuli nú vera
komin á ný til Eþíópíu eftir
nokkurt hlé, þau hjónin í ann-
að sinn og Ingunn í þriðja sinn.
Nú hefur oss verið falið enn
stærra verkefni á akrinum, er
íslenzkir kristniboðar taka að
sér starfið á kristniboðsstöðinni
í Gidole í sífellt ríkari mæli.
Þar er ef til vill blómlegasta
starfið á öllum kristniboðsakri
Norðmanna í Eþíópíu um þess-
ar mundir, enda er starfssvæðið
afar víðáttumikið. Hefur Skúli
Svavarsson, kristniboði, nýlega
lýst starfinu þar hér í blaðinu,
og eru kristniboðsvinir hvattir
til að lesa grein hans með at-
hygli.
t sigurför.
Vér gleðjumst á þessum tima-
mótum. Vér gerum oss ljóst, að
ábyrgðin eykst með vaxandi
verkefnum. En málefnið er
Drottins. Hann kallaði oss til
fylgdar og þjónustu, og fyrir-
heiti hans eru enn í fullu gildi:
„Sjá, eg er með yður alla daga,
allt til enda veraldarinnar".
Hann hefur sjálfur lagt af stað
í sigurför sína um Eþíópíu, og
hann hefur af náð sinni leyft
oss að slást í förina og verða
vottar að dáðum hans meðal
fólks, sem hefur beðið eftir
fagnaðarerindinu. Með þessu
sýnir hann oss óverðskuldaðan
trúnað, sem kallar á þakklæti
vort og þjónustu'. Guð gefi oss
náð til að reynast köllun hans
trúir. Guð blessi kristna menn í
Konsó og um gjörvalla Eþíópíu.
Benedikt Arnkelsson.
B J A R M I »