Bjarmi - 01.07.1983, Blaðsíða 12
'
Almenna mótið
Almenna, mótið í Vatnaskógi var haldið helgina
1.—3. júlí s.l. og var yfirskrift þess „Við fætur
Jesú . . .“ Hófst mótið á föstudagskvöldi með sam-
verustund. Þar talaði stjórnandi mótsins, Benedikt
Arnkelsson, út frá orðunum „Oss langar að sjá
Jesúm.“ Síðan var bænastund. Á laugardagsmorg-
uninn var biblíulestur í umsjá Sigurðar Pálssonar
um efnið „Vakna þú sem sefur“, úr Efesusbréfinu.
Á sama tíma var barnatími. Síðdegis á laugardeg-
inum var fjölbreytt fjölskyldusamkoma, sem bar
yfirskriftina „Barn Guðs“. Um kvöldið var svo
vitnisburðar- og lofgjörðarsamkoma. Hófst hún
með því að Emelía Guðjónsdóttir úr Keflavík tal-
aði, Laufey og Rósa sungu og margir stóðu upp og
vitnuðu um Drottin og lífið í honum.
Sunnudagurinn hófst með messu í umsjá sr. Ólafs
Jóhannssonar, skólaprests. Á sama tíma var sunnu-
dagaskóli fyrir börnin. Eftir hádegið var kristni-
boðssamkoma, þar sem hjónin Kjellrún og Skúli
Svavarsson töluðu út frá yfirskriftinni „Farið þér
einnig í víngarðinn". Lesið var úr bréfum frá öll-
um kristniboðunum og Æskulýðskór KFUM og K
söng. Á lokasamkomunni síðdegis töluðu þeir sr.
Gísli Jónasson og Jón Viðar Guðlaugsson um efnið
„Musteri Guðs — lifandi steinar".
Mótið var f jölsótt að vanda, en flest var á sunnu-
deginum. Veður var að vísu ekki hið ákjósanleg-
asta, en menn létu það ekki á sig fá og röbbuðu
saman á milli stunda, t.d. yfir kaffibolla í kaffi-
teríunni sem starfrækt var í gamla skálanum á
meðan á mótinu stóð.
Þing StK
Að loknu almenna mótinu hófst þing Sambands
ísl. kristniboðsfélaga og stóð það frá mánudegi
fram á miðvikudag. Þingið sátu tæplega 50 full-
trúar hinna ýmsu kristniboðsfélaga og styrktar-
félaga Sambandsins, auk nokkurra kristniboðs-
vina.
Á þinginu voru fluttar skýrslur af starfinu bæði
ytra og heima og skýrðir reikningar. Talsvert var
rætt um fjáröflunaraðferðir og heimastarfið.
Dag hvern var byrjað með hugleiðingu úr frá
Guðs orði eða biblíulestri og voru þessir liðir í um-
sjá Margrétar Hróbjartsdóttur, Benedikts Arnkels-
sonar og Höllu Bachmann. Einnig ávarpaði Francis
Grim þingið, en hann var hér á landi á vegum
Kristilegs félags heilbrigðisstétta. Kvöldvökur voru í
umsjá Kjellrúnar og Skúla Svavarssonar og Kristni-
boðsflokksins Tíunnar.
í lok þingsins fór fram stjórnarkjör. 0r stjórn
áttu að ganga þeir Ingólfur Gissurarson og Páll
Friðriksson, sem báðir voru endurkjörnir, og Bald-
12
Mót og þincjí
MVS vjiaola^