Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1983, Síða 13

Bjarmi - 01.07.1983, Síða 13
Vatnaskógi Æskulýdskórinn vin Steindórsson, sem gaf ekki kost á sér til endur- kjörs, en hann hefur setið i stjórn Kristniboðssam- bandsins í 16 ár. í hans stað var kosinn Skúli Svavarsson, kristniboði. Á þinginu var samþykkt stuðningsyfirlýsing við frumvarp Þorvaldar Garðars Kristjánssonar um niðurfellingu heimildar til fóstureyðingar af félags- legum ástæðum. Þess má geta að Skógarmenn KFUM buðu þing- gestum upp á afmæliskaffi á þriðjudagskvöldinu í tilefni þess að í sumar eru liðin 60 ár frá því að starfið í Vatnaskógi hófst. Þingið sendi að venju frá sér ávarp til kristni- boðsvina og fylgir það hér á eftir. Ávaip til kristniboðsvina Fulltrúar og aðrir þátttakendur á 28. þingi Sam- bands íslenskra kristniboðsfélaga sem haldið er í Vatnaskógi dagana 4.-6. júlí 1983 senda kristni- boðsvinum innilegar kveðjur og biðja þeim bless- unar. Enn hefur Guð gefið okkur náðarstundir, er við hugleiddum boðskap hans og ræddum um reitina sem hann hefur úthlutað okkur í víngarði sínum. Orð hans hvatti okkur til sjálfsprófunar og auð- mýktar, að við fengjum honum stjórnartauma lífs okkar, en það veitti okkur einnig uppörvun er við minntumst eilífrar miskunnar hans í Jesú Kristi og þeirrar vegsemdar að hann trúði okkur fyrir fagnaðarerindinu. Við sáum fyrir okkur hin miklu verkefni á kristniboðsakrinum. Það er óumræðilegt þakkar- efni hversu starfið ber ávöxt, jafnvel þar sem óvin- veitt yfirvöld setja því þröngar skorður. Dyrnar eru opnar. Við gleðjumst yfir því að eiga svo marga fulltrúa úti á akrinum sem raun ber vitni, fem hjón. En biðjum Guð að halda áfram að kalla verkamenn til uppskerunnar. Enn vantar hjúkr- unarkonu til starfa í Cheparería í Kenýu. Það var uppörvandi að fræðast um hlutdeild og uppfinningasemi einstaklinga og hópa í starfinu í þágu kristniboðsins hér heima. Fagnaðarerindið þolir enga bið. Glóðin þarf að lifa i hjörtum læri- sveinanna, enda ber okkur að nota hverja stund- ina og vitna um hjálpræðið í Jesú Kristi. Einkum er brýnt aö flytja æskunni fagnaðarboðskapinn, með bæn um að í brjósti hennar kvikni kærleikur, áhugi og ábyrgðarkennd gagnvart kristniboðinu svo að hópur kristniboðsvina megi sífellt endurnýjast og stækka. Biðjum þess að mega reynast honum trú sem kallaði okkur í náð sinni til samfélags við sig og fól okkur á hendur orð sáttargjörðarinnar. Myndir: Gunnar H. Ingimundarson og Sigurður Jóhannesson. 13

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.