Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 9
forsendu að fyrri skírn í nafni heilagr- ar þrenningar hafi ekki verið gild, Guð hafi ekkert meint né gert með henni. Það er mikil ábyrgð, sem þeir taka á sig, er þannig svara þeim Guði, sem gaf þeim sjálfan sig að fyrrabragði. Þeir sem telja sig ekki geta trúað því, að Guð vinni raunverulegt náðarverk, þegar biðjandi kirkja leggur barn á arma Krists, hans, sem elskaði kirkj- una og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir hana, til þess að helga hana og hreinsa í laug vatnsins með orði (Ef. 5,25), hver er þeirra trú? Hver er þeirra Guð? Kirkjan skírir börn í trú á þann Guð, sem hefur fullnað náðarverk sitt í Kristi og grundvallað nýjan sátt- mála, nýja útvalningu, á krossi hans og upprisu. í skírninni fæðir hann barnið inn í þennan veruleik, gerir það að limi á líkama Krists, að grein á lífsmeiði hans. Þetta gerir hann í eitt skipti fyrir öll, eins og hann gefur hið h'kamlega líf í eitt skipti fyrir öll. Hann játast þér. Á því byggist sálu- hjálp þín, en ekki á hinu, að þú játist honum, þó að þú getir ónýtt náð hans þér til handa með því að neita því, sem hann hefur játað þér. Þín tóma, flekkaða hönd, þínar óhreinu varir og svikula hjarta, jafnvel þó þér finnist það loga af hrifningu, leysa þig ekki frá sjálfum þér, bjarga ekki sál þinni, heldur hans útrétta hönd, hans heila hjarta og sterka orð. Játning þín, trú þín, er aldrei annað en andsvar við elsku hans að fyrrabragði, vakandi, Þakklát, þiggjandi afstaða barnsins til Þess, sem hann er búinn að gera þér til sáluhjálpar og skírn þín ber órækt vitni um. Hann einn byrjar hið góða verkið, hann einn fullkomnar það. Þetta þýðir að sjálfsögðu ekki, að Guð meðhöndli þig sem ósjálfráða hlut. Náð hans nægir þér, skírnarnáð- ln, en ekki sem náttúrulögmál eða hókfærð innstæða, sem geri sitt gagn þó að þú hreyfir aldrei við henni, takir ekkert út af henni. Guð fær ekki full- homnað góða verkið, ef þú vilt ekki sjá og meta það, sem hann hefur gefið, ef þú ræður sjálfan þig undan merki þess Drottins, sem tók þig að Ser í heilagri skírn, til þess að þú mætt- lr lifa í hans ríki, undir hans valdi og þjóna honum (Lúther), til þess að þú IT>ættir dafna til hjálpræðis (l.Pét. 2,2), uppbyggjast og helgast í orði hans í samfélagi heilags anda í kirkju ^ans. En þú getur á engu öðru byggt en því, að Drottinn hefur kjörið þig sér til eignar af náð, þú getur ekki treyst neinu, sem með þér bærist, hvorki vilja, hughrifum, verkum né trúareldmóði. Það er allt svipult og brigðult og mengað af eðli hins gamla manns. En Guð bregst ekki. Hans styrki grundvöllur stendur, Jesús Kristur, sem kannaðist við þig og játaðist þér fyrirfram, ákvað fyrirfram að taka þig sér að barni (Ef. 1,5), setti innsigli krossins síns á enni þitt og brjóst, laugaði þig samkvæmt miskunn sinni í þeirra laug, þar sem vér endurfæð- umst og heilagur andi gjörir oss nýja (Tít. 3,5). Þetta gerði harin, þegar þú varst barn, af því að hann og heilagur andi hans biður fyrir þér (Róm. 8,26,34), biður í allri bæn kirkju sinnar, í hverri móður- og föðurbæn, sem beðin er í hans nafni. Hann sagði við þig: Þú ert minn, þú varst í huga mínum, þegar ég leið og dó á krossi, þú varst með mér, þegar ég reis upp af gröf, mitt líf er þitt, líf þitt er fólgið með mér í Guði (Kól. 4,1-4). Enginn fær fullþakkað þá náð að hafa fengið að fæðast inn í þetta ljós nær um leið og lífið hófst á jörð. Og ekki veit ég aðra blessun meiri en að sjá þetta ljúkast upp, sjá miskunn Drottins síns, trúfesti hans og hjálp- ræði í skuggsjá skírnar sinnar, og að lifa í ljósi þeirrar vonar, að þegar Kristur, vort líf, opinberast, þá mun- um vér og ásamt honum opinberast í dýrð. Kaj Munk um skírnina: Þið vitið að þið eruð skírð. Þeg- ar þið voruð agnarlítil, tók mamma ykkur og lagði ykkur í faðminn á Jesú, og þá lofaði hann, að hann skyldi vera góður vinur ykkar alla daga, allt til enda veraldarinnar. * Þú ert skírður til fyrirgefningar synda þinna. Þau orð standa í skírnarsáttmála þínum. Kristur hefur gefíð líf sitt t:l þess að ávinna þér fyrirgefningu syndanna. Segðu það við sjálfan þig, þó svo væri þúsund sinnum: Eg á fyrirgefningu synda minna. Segðu það þangað til þú fínnur, að þú ert orðinn glaður og sterkur. * Og sakramentin — skírnin: Lófafylli af vatni, sem konungleg- ur embættismaður eys yfir höfuð barnsins. Þurr brauðbiti og lítil- mótlegur dropi víns. ...En leynd- ardómur Guðs náðar er fólginn í þessu. í því sem er smæst, er það falið, sem er stærst. Frelsar skírnin? Það er rétt, að frelsun var í örkinni fyrir Nóa og samtíð hans. En það var frelsun með einu skilyrði: Þeir uröu að vera í örkinni. Hver sá, sem sneri baki við örkinni og fór sína leið, yfír- gaf frelsun sína. Skírninni er á sama veg farið. Ef við snúum baki við skírninni og för- um frá henni eða frá kristi, þá getur skírnin auðvitað ekki frelsað. C. O. Róseníus 9

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.