Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 19

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 19
Frá ráðstefnu kristniboðanna í Kenýu 6.—11. janúar sl. Biðjið Quð aðgefa okkur visku „Mig dreymdi að ég sæi fólkið í kirkjunni ganga á vegi, sem lá til glötunar. Allt frá því ég sagði skilið við Krist, hefur mér liðið illa og nú sá ég það svo skýrt fyrir mér, að ég gat ekki efast um að ég væri á glötunar- vegi. f>ess vegna er ég í kirkjunni hér í dag til að segja ykkur frá því, að ég hef snúið aftur og til þess að biðja ykkur og Guð fyrirgefningar á öllu því, sem ég hef eyðilagt fyrir söfnuðinum. „Þessi orð uppbyggðu okkur og stað- festu það enn einu sinni, að Guð sleppir ekki hendinni af neinum, sem yfirgefur hann“, sagði kristniboðinn. Við erum nú búin að vera í Nairobí á ráðstefnu kristniboðsins hér í Kenýu > heila viku, 53 kristniboðar auk barna og gesta. Við höfum notið samfélags heilagra í ríkum mæli. Það er ekki á hverjum degi, sem við höfum slíkt tækifæri og þess vegna verður það enn þá dýrmætara fyrir bragðið. Hér hefur verið rætt um starfið og deilt bæði gleði og sorg. Þessi svip- mynd hér að ofan er frá Pókothéraði, - sorg snerist í gleði. Frá starfinu á ströndinni bárust þau gleðilegu tíð- indi, að nú sé búið að fá kristinn Dígó- mann til starfa sem prédikara. Hann ávannst fyrir allnokkrum árum af kristniboða, sem kenndi kristinfræði við sama menntaskóla og ég, er ég var þar. Hann er nú nýútskrifaður úr fjögurra ára biblíuskólanámi. Akur- inn er víða harður í Dígólandi og því þarfnast hann sérstakrar fyrirbænar. Starfið í Mabokoni gengur vel og fólk- ið er enn ótrúlega opið og jákvætt gagnvart fagnaðarerindinu af múham- eðstrúarmönnum að vera. - En við fengum líka að heyra um sorgir þar. Þeir einu, sem áunnist hafa á meðal Dígómanna síðustu 5 árin, Abbas og Hassan, hafa gengið af trúnni. Þeir hafa verið beittir gífurlegum þrýstingi af sínu fólki að segja skilið við „vill- una“. Þetta var sorg okkar allra og því gott að geta komið sem hópur fram fyrir herra uppskerunnar og lagt málið fram fyrir hann. Á þessari ráðstefnu ræddum við starfið frá ýmsum hliðum. Sérstaklega reyndum við að rannsaka okkur sjálf og starfsaðferðir okkar. Eru mark- miðin í starfinu nógu skýr og leiðirnar til að ná þeim? Eru áherslurnar í starf- inu réttar eða væri ástæða til að stokka sumt upp? Ý msar spurningar í þessum dúr lágu þungt á ýmsum og ákveðið var að skipa vinnuhópa, sem skoðuðu þessi mál rækilega og skiluðu niður- stöðum á næstu ráðstefnu að ári. Viljið þið biðja Guð að gefa okkur mikla visku því að hennar þörfnumst við í mjög ríkum mæli. Sendum ykkur kveðju með orðun- um úr Jes. 40,29,31: „Hann veitir kraft hinum þreytta og nógan styrk hinum þróttlausa... þeir, sem vona á Drottin fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.“ Með bæn um blessunarríkt ár ykkur til handa. Ykkar fulltrúar á kristniboðsakrinum, Kjartan, Valdís, Heiðrún, Ólöf Inger og Jón Magnús. eitri í þau til að bjarga tréverkinu. Bara að kirkjubekk- irnir væru nú ekki ónýtir. Hann klöngraðist á hnjánum milli stólanna í vinnustofunni. Hann þreifaði á hverjum stólfæti og leitaði verksumerkja eftir litlu meindýrin. - Skrýtið... Þetta var merkilegt. Pappínó talaði við sjálfan sig. - Hvað sagðirðu? spurði Kristur. - Það var ekki eitt einasta gat í hinum stólunum. Það var kyndugt að ég skyldi einmitt setjast á eina stólinn sem var maurétinn. Kristur svaraði engu og Pappínó leit hissa til veggjar á Kristsmyndina hjá bókahillunni. - Allar smásyndirnar, sem geta lagt manneskjuna í rúst, ef þær fá að fara sínu fram..., endurtók Kristur. Pappínó hélt áfram: - ... eiga rót að rekja til syndarinn- ar miklu, að ég set sjálfan mig í öndvegi, vil sjálfur vera Guð. Hann gekk hugsi út úr vinnustofunni til að sækja kúst og fægiskúffu. Brosandi virti Kristur fyrir sér þetta breiða bak í gættinni. Pappínó dustaði flísarusl af hemp- unni. 19

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.