Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 16

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 16
Eino á ti**' éta ll,íon' iltö' Trúfræðsla í léttum eftir Johan Wilhelm E I þcssu tölublaði Bjarma byrjar nýr fram- haldsþáttur undir heitinu „Einn á kjaftinn, séra minn!” Hér er um trúfræðslu í léttum dúr að ræða, þar sem sögur úr lífi Pappínós, sóknarprests, kenna okkur sitthvað um nokkur grundvallaratr- iði kristinnar trúar og breytni. Kaflarnir eru þýdd- ir úr bókiuni „Knock out for sokneprest Pappino“ eftir norska prestinn Johan Vilhelm Eltvik. Papp- ínó er sókarprestur í litlum bæ á Italíu. Hann er bæði skapbráður og hjartastór. Sögurnar af hon- um eru í senn gamansamar og lærdómsríkar og miðla á aðgengilegan hátt dýpstu sannindum kristindómsins. 1. Um synd Skammt fyrir utan þorpið hans séra Pappínós rann árspræna. Pað hljóp í hana vöxtur á vorin og hún varð djúp og breið. Glitrandi urriðar byltu sér í vatnsborð- inu. Arla morguns rölti Larúsó, smiðurinn í þorpinu, yfir akrana og hélt á veiðistöng í annarri hendi og dós með ánamöðkum í hinni. Þessi smiður fékk venjulega það sem hann vildi. 130 kg. af uppsláttarvöðvum gerðu sitt gagn. Þegar þau dugðu ekki til beitti hann öllu því valdi og virðuleik sem fylgja máttu formannsstöðunni í „Silunga- og fluguveiðifélaginu“. Ókunnugir - þ.e. þeir, sem ekki bjuggu í litla þorp- inu, þar sem Pappínó þjónaði - áttuðu sig venjulega ekki á mikilvægi þessa félags. Nafnið var dálítið skringi- legt og gaf ekki ótvírætt til kynna hvort það var silungur ellegar fluga sem reynt var að veiða. Þorpsbúar höfðu dúr, tvik. hins vegar vanist því fyrir löngu að miklvægustu hags- munamál þorpsins væru afgreidd í „Silunga- og flug- uveiðifélaginu“. Larúsó hafði verið formaður þar svo lengi sem elstu menn mundu. Smiðurinn nálgaðist kjarrið á árbakkanum og grun- lausir fiskarnir í ársprænunni nutu morgunkyrrðarinn- ar. Þá heyrði hann skyndilega brak og bresti. Hann stansaði og furðaði sig á þessum undarlegu hljóðum. Svo læddist hann inn á milli runnanna og sá hvaðan óhljóðin komu. A jörðinni fyrir framan hann lá næstum tveggja metra langur maður, klæddur slitinni svartri hempu. Hjá honum lá svartur hattur, bambusstöng, beitudós og gömul Biblía. Séra Pappínó hraut af öllum lífs- og sálarkröftum. Brjóstkassinn lyftist og hneig eins og físibelgur undir hempunni. Hann svaf værum svefni. Larúsó brosti breitt. Hann hafði ekki staðið frammi fyrir slíkri freist- ingu síðan á hvítasunnu fyrir tveimur árum, þegar Papp- ínó sneri öklann og Larúsó hafði falið altariskertin lengst upp í kirkjuturni. Klukkutíma síðar vaknaði Pappínó af værum blundi og teygði vel úr gildum skrokknum. Hann opnaði augun og sá svarta hattinn sinn á floti í miðjum straumnum. Áður en hann var almennilega vaknaður fleygði hann sér út í ískalt vatnið og svamlaði í átt að hattinum. Það var þá sem hann áttaði sig á að hatturinn hékk á færinu eins og flotholt. Hann skreið á land, gegnblautur og viti sínu fjær af reiði. Honum tókst með harmkvælum að kveikja bál og hugsaði nú ráð sitt. Fötin þornuðu við eldinn, en hefndarþorstinn logaði hið innra og tók úr honum versta hrollinn. Síðla þann sama morgun sá einmana geitahirðir undarlega sýn. Hempuklæddur svoli læddist laumulega um kjarrið. Á höfði bar hann krumpaðan hattkúf og hélt á langri, gildri birkigrein. Við bugðu á ánni fann Pappínó það sem hann leitaði að. Larúsó sat hálfdottandi með veiðistöng í hendi og hallaði sér upp að stóru tré. Pappínó læddist áfram hljóðlátur sem köttur og beið síðan grafkyrr handan runnanna. Þolinmæði var ekki hans sterkasta dyggð, en nú sat hann sem fastast. Sólin hækkaði á lofti og það tók að hlýna. Þá - loksins - dró til tíðinda. Flotholtið á færi Larúsós hvarf og veiðstöngin bognaði. Larúsó stóð 16

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.