Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.03.1987, Blaðsíða 24
scxman Hampiðjan framleiðir nú drenrör fyrir jarðvatnslagnir, auk röra fyrir regnvatnslagnir og skolp. Þar með geta menn nú iagt flestar tegundir frárennslis með plaströrum frá Hampiðjunni. Efnisþykkt og mál drenröranna eru þau sömu og á 110 mm skolprörum, tengi- og breytistykki fyrir allar tegundirnar eru hin sömu. Því er vandalaust að ná endum saman, beygja upp, beygja niður, út og suður að vild. Drenrörin eru úr hörðu Polyvinylchlorid (PVC) án mýki- og fylliefna og götuð (sbr. mynd). Þessi rör má jafnframt nota í sameiginlega Dren- og regnvatnslögn, þar sem jarðvatnslögnin er eingöngu notuð til að ræsa fram og þurrka lóð. Drenrörin frá Hampiðjunni eru framleidd í 1 m, 2 m, og 5 metra lengdum. Þau eru endingargóð og auðvelt er að leggja þau. Drenrörin frá Hampiðjunni eru íslensk gæðavara sem fæst í byggingavöruverslunum víða um land. Á sölustöðunum liggja frammi upplýsingabæklingar, sem segja nákvæmlega til um eiginleika röranna og hvernig beri að ganga frá þeim I jörð. HAMPIOJAN HF

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.