Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1988, Síða 4

Bjarmi - 01.03.1988, Síða 4
Krossinn „Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefndum hver sína leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður áhonum. “ (Jes. 53,6). Ég sit í stóra salnum í KFUM & K húsinu við Amtmannsstíg. Við mér blasir stór kross, sem er þar á veggnum. Krossinn vekur athygli mína, en ég átta mig ekki strax á því hvers vegna, ég hef séð hann svo oft áður. Eftir nokkra umhugsun rennur þó upp fyrir mér Ijós: Það er slökkt á krossinum! Venjulega sendir hann frá sér ljósgeisla en nú hefur gleymst að kveikja á honum. Pessi kross er mér stöðug áminning þess hver ég er-og hvað Jesús er mér. Krossinn er tómur - Jesús er upprisinn! En krossinn minnir mig á það sem Jesús lagði á sig mín vegna. Jesaja spámaður setur hlutina oft fram á augljósan og afgerandi hátt. „Vér fórum allir villir vega sem sauðir, stefndum hver sína leið, en Drottinn lét misgjörð vor allra koma niður á honum." Það er ekki mikið rætt um syndina í dag. Kannski viljum við helst gleyma henni og einbeita okkur að því að hugsa um kærleika Guðs. Það er nauðsynlegt að gleyma ekki kær- leika Guðs, en gerum við okkur nokkurn tíma grein fyrir kærleika Guðs ef við útilokum hugsun um synd? Mig langar til þess að biðja þig að staldra við augnablik og lesa rólega orðin sem Páll postuli — ogég! skrifaði einu sinni: „Hið góða sem ég vil, gjöri ég ekki en hið vonda sem ég vil ekki það gjöri ég“ (Róm. 7,19). Kannast þú við þessa tilfinn- ingu? Ég þekki hana a.m.k. mjög vel. Og þessi orð lýsa vel hvernig syndin er í daglegu lífi okkar. Syndin er ekki bara eitthvað hug- tak sem við notum í prédikun og kristilegum hugleiðingum. Syndin er staðreynd í lífi okkar - allra. Ef við erum heiðarleg gagnvart okkur sjálfum, verðum við að viðurkenna það. Og það er svo harla lítið sem við getum gert til að losna við syndina. Syndin er alvarleg - það getum við lesið um bæði í Gamla- og Nýja testamentinu. Syndin er andstaða gegn Guði sjálfum og hversu oft grípum við okkur ekki í því að vilja og gera annað en það sem orð Guðs segir afdráttarlaust að sé vilji hans. Er þá kærleiki Guðs fólginn í því að hann „sér í gegnunt fingur“ þar sem hann veit að syndin er í okkur og við getum aldrei losnað við hana hversu mikið við reynum? Nei. Kær- leiki Guðs til okkar mannanna birtist fyrst og fremst á krossinum á Golgata. Par vannst sig- ur fyrir mig - og fyrir þig, sigur sem kostaði meira en við getum nokkurn tíma hugsað okkur. Lestu píslarsöguna hægt og rólega og þú skynjar kannski brot af því. Ef við sleppum krossinum verður allt tal um kærleika Guðs hjáróma - og hvernig getum við talað urn krossinn nema tala einnig um syndina? Syndin er ástæðan fyrir því að Jesús Kristur, sonur Guðs, var negldur á krossinn. Hann tók á sig 4

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.