Bjarmi - 01.03.1988, Side 5
synd mína - og synd þína. Að hann gerði það
fyrir mig get ég aðeins skilið þegar ég hef upp-
götvað syndina í lífi mínu.
Þegar mér verður ljóst að sá Jesús, sem ég
les um á blöðum Biblíunnar, tók á sig mína
synd og þurfti að ganga í gegnum kvöl píslar-
göngunnar þess vegna, þá sé ég að synd mín er
eitthvað meira en smá yfirsjón eða hugarfar
sem ég get litlu breytt. Syndin hlýtur að vera
nlvarleg þar sem hún kostaði svo mikið. En
kærleiki Guðs verður óskiljanlega stórkost-
legur þegar mér er ljóst að hann gerði það fyrir
niig! Og krossinn verður tákn hins mesta kær-
leika sem hugsast getur. „Enginn á meiri kær-
leik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir
vinisína“ (Jóh. 15,13).
Hvað er krossinn fyrir þér? Er hann tákn
þess kærleika sem lagði allt í sölurnar fyrir
þig?
Og þá getum við að lokum spurt hvernig við
bregðumst við þessum kærleika. Er hann
sjálfsögð gjöf sem við þiggjum í orði en
kannski ekki í raun? Hlýtur ekki kærleiki
Guðs að breyta lífi okkar? Spyrjum okkur
sjálf í alvöru hvaða áhrif krossinn hefur á dag-
legt líf. Að þiggja gjöf Guðs er að koma dag
hvern fram fyrir hann í bæn um fyrirgefningu
~ og þiggja stöðugt af náð hans til að lifa dag-
'egu Íífi eftir hans vilja.
An hjálpar Guðs er þetta ómögulegt vegna
þess að við erum í syndinni í andstöðu við
Við kross þirm Jesú jafnan
vil ég mér hæli fá.
Guð. En það er enn eitt stórkostlegt við kross-
inn ótalið. Jesús hangir þar ekki Íengur - og
hann liggur ekki heldur í gröfinni. Hann er
upprisinn! Jesús lifir, hann sigraði dauðann og
lifir í dag. Þess vegna getur hann gengið með
okkur í daglegu lífi, gefið styrk og von, gleði
og frið'sem engu er líkur. Hefur þú reynt það?
Við kross þinn Jesú jafnan
vil ég mér hœli fá.
Par helluhjargið hest égfinn,
sem byggt ég traust get á.
Pað hœli er í eyðimörk,
svo ágæt höfn og blíð,
þar sem reika' eg einn um ókunn lönd
gegnum angist, neyð og stríð.
Og oft ég lít í anda
Guðs einkason á kross.
Við dauðans berjast dimmu kvöl
og dreyra renna foss.
Ó, hvílíkt undur, ást og náð,
sjá andans dýrsta hnoss,
fyrir mig að Ijúfur lausnarinn
vildi líða dauða’ á kross.
(Pýð. Friðrik Friðriksson)
Krossinn á veggnum varpar ljósi á nánasta
umhverfi sitt þegar ekki gleymist að kveik ja á
honum. Krossinn á Golgata varpar Ijósi á allt
líf mannsins - þegar maðurinn lokar ekki aug-
unum!
5