Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1988, Síða 10

Bjarmi - 01.03.1988, Síða 10
deyi. manna. Sagan af frelsandi athöfn Guðs í Jesú Kristi er síður en svo á enda. Hún er samtíðarsaga. Enn fæst reynsla af nánd hans, kraftur upprisu hans, fylling anda hans, sameining við sigur hans yfir synd og dauða. Engar útskýringar skapa trú. En komist menn undir vald Jesú og reyni mátt hans, þá fær upprisa hans hið mesta gildi. Öll kristin trúarjátning í verki eða orði er sprottin fram sem tjáning tilbeiðslu og þakklætis til hins upprisna Krists. Við getum umgengist hann, beðið hann, numið svar hans, reynt að hann er frelsarinn, sem enn gerir hið sama og fyrr, fyrirgefur, huggar, læknar, leysir. Og upprisa hans er veruleikinn á bak við hina óskýranlegu en marg- reyndu vissu kynslóðanna að Jesús lif- ir og gefur kirkju sinni líf. Hvar sem tveir eða þrír eru í nafni hans, þar er hann. Ný framtíð í upprisu Jesú er hafin ný sköpunar- saga. Sýnilegt tákn þeirrar nýsköpun- ar er það samfélag manna, er nefnist kristin kirkja - samfélag heilagra. Og 10 þar þýðir „heilagur“ sá sem tilheyrir honum, frelsaranum. Nútíminn ein- kennist af fjölhyggju en vantar sam- félag - þar sem hver lætur sér annt um annan. í fjöldanum er einstaklingur- inn afskiptur og einmana. Samfélagið vantar. En slíkt samfélag hefur hinn upprisni Kristur skapað. Pað þekkir engin landamæri né litarhátt, spannar allar kynslóðir, er raunar hið eina á jörðu sem getur látið mannlega veru skynja himnaríki Guðs. En þangað stefnir einmitt þessi nýsköpun og von hennar. Nýr himinn og ný jörð í krafti hins upprisna, sem segir: Sjá, ég geri alla hluti nýja. Þannig táknar upprisan nýja von og lifandi fyrir alla sköpun Guðs. Við lif- um þá tíma, þegar framtíðarsýn margra myrkvast, ótti er í öndvegi, flestir sjá enga von heldur kvíða bók- staflega því er koma muni yfir heims- byggðina. Hvernig eigum við þá að trúa á lífið, ekki einhverja draumsýn um framhaldslíf, eftirlíkingu þess, sem er, heldur líf sem merkir samfélag við Guð alls lífs og sigrandi, eilíft ríki hans? Sú framtíð er hvergi til nema í Kristi. Eins og mannlíf í vonleysi og synd er neikvætt og andsnúið sjálfu sér, eins er upprisulíf hins nýja mann- kyns í Kristi orðið jákvætt og stefnir allt að upprisu og endurlausn. Það hófst með upprisu Krists. Þetta gerði Guð í Kristi. Þar hefur skapari þinn gefið þér líf og von og kraftinn sinn. Þú mátt tilheyra þessu nýja mannkyni sem fulltreystir orðum Jesú: Ég er upprisan og lífið, hver sem trúir á mig,mun lifa, þótt hann deyi. Ógn dauðans afmáð Aldrei hefur ótti við dauðann verið slíkt ógnarvald í heiminum sem nú. Menn vilja síst af öllu ræða þennan ótta sinn. Dauðann má ekki nefna á nafn. Margvíslegur flótti er viðhafður til þess að stugga hugsuninni í aðra farvegi, sneiða hjá, gefa sér ekki tóm eða vit til að leiða hugann að þessu. í einsemd kemur spurning dauðans upp. En hvergi er svör að fá. Guð hefur gefið svar sitt í Kristi Jesú sem dauðann afmáði og leiddi í ljós lífið og ódauðleikann. Kristinn maður veit það svar sem nægir. Hann þekkir Jesú Krist. Og þó svo að skelf- ing dauðans mæti, þó að sorg og söknuður gisti bústað okkar, þá meg- um við treysta því að hvorki dauði né líf eða neitt annað getur gert okkur viðskila við þann kærleika Guðs, sem birsti í Kristi Jesú, sem er fyrir okkur dáinn og hefur með upprisu sinni gefið okkur nýtt líf, nýja sköpun, þar sem Guðs heilagi andi skapar allt á ný í Kristi. „Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum.“ (1. Pét.1,3). Og sé það nú svo, að Jesús, hinn upprisni, sé þér ómissandi, að þú vald- ir ekki lífinu án hans, finnir ekkert samhengi né markmið tilveru þinni, óttist dauðann, finnir til fátæktar og vonleysis, þá skaltu halda fast í pásk- ana þína þar sem Kristur Jesús er þín vegna dáinn og þín vegna upprisinn til að gefa þér eilíft líf og von. Þar get- urðu játað: Lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur, - nú og um alla eilífð. Herran lifir, höldum páska, hrósum sigri lausnarans. Synd og dauða, sorg og háska sigrum vér í mætti hans. Höldum lífsins hátíð nú, höndlum nýja von og trú, upp með Jesú önd vor rísi, endurfœdd og náð hans lýsi.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.