Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.03.1988, Page 11

Bjarmi - 01.03.1988, Page 11
SIGUR Með 10-15 þúsund manns á páskahátíð í Sovétríkjunum: Þar sem upprisutrúin lifir Hvernig geta þeir verið svona vissir? spyr eg sjálfan mig. Svariðeralltafþaðsama. Þeir hafa fetað í fótspor hans veg krossins upp til Golgata. Þeir hafa lifað af ár Stalíns í þján- ingu og verið sviptir efnis- gæðum, setið í fangelsi. Oll heimili hafa misst ástvin. Þess vegna ræða þeir ekki um hvort upprisan hafi átt sér stað. Þeir hafa reynt hana í eigin lífi. Eg stóð í kirkjunni í algjöru myrkri. Eg sá fáa frá þar sem eg var í litlu „her- bergi“ fyrir framan söfnuðinn en eg vissi að kirkjan hlaut að vera fullskip- uð, ekki aðeins vegna þess að við höfðum orðið að troðast í gegnum 10- 15 þúsund manna hóp heldur af því að eg fann spenninginn, hina andlegu eftirvæntingu trúaða fólksins. Nú heyrum við fjarlægan, daufan sorgarsöng. Þeir nálgast nú kirkju- dyrnar með prestinn í broddi fylking- ar: „Þeir hafa tekið Drottin minn í burtu og eg veit ekki hvar þeir hafa látið hann.“ Einhver hljóð eiga að merkja að stórar dyr hafi verið opnað- ar. „Að hverjum leitið þér?“ „Að lík- ama Jesú.“ „Hann er ekki hér. Hann er upprisinn — Khristos voskrese!" Hinn voldugi söfnuður rauf nú þögnina í fyrsta sinn. Menn töluðu ákaft í hálfum hljóðum, rétt eins og þeir gætu naumast trúað stórtíðindun- um sem þeir endurtóku nú sjálfir: Voistinu voskrese. Sannarlega uppris- inn. Svo sást ljós. Einhver sem var mjög aftarlega í kirkjunni hafði kveikt fyrsta páskaljósið. Það var lítill, dauf- ur logi sem megnaði ekki að útrýma myrkrinu. Síðan annað ljós. Enn eitt. Mörg. Eldurinn barst úr einni hend- inni í aðra. Smám saman sáum við það sem myrkrið hafði hulið: Allir í kirkj- unni héldu á kerti. Áður en mínúta var liðin var kirkj- an eins og ljóshaf. — Nei, ekki með ópersónulegum raflömpum. Það voru fimm þúsund einstakir logar sem sam- einuðust í einni trú. Hver logi varpaði birtu á andlit fyrir aftan hann, andlit sem bar merki sorgar, harmsögu sem viðkomandi hafði reynt sjálfur. En eftir því sem ljósið umlukti hann í faðmi sínum breyttist þjáningin í gleði, í örugga vissu þess að Drottinn væri sannarlega upprisinn. Allt frá þessari miðnæturstund á páskum fyrir 22 árum þegar eg var stúdent í Moskvu hef eg hugleitt í undrun hvað þessar mínútur kenndu mér um djúpa upprisuvissu. Þær gáfu mér meira en lestur hundrað guð- fræðibóka á námsdögunum. Hvernig gátu þeir verið svona vissir? spurði eg sjálfan mig. Svarið var alltaf það sama. Þeir hafa fetað í fótspor hans veg krossins upp til Gol- gata. Þeir hafa lifað af ár Stalins í þjáningu og verið sviptir efnisgæðum, setið í fangelsi. Öll heimili hafa misst ástvin. Þess vegna ræða þeir ekki um hvort upprisan hafi átt sér stað. Þeir hafa reynt hana í eigin lífi. Það eru ekki þeir sem hafa varðveitt trúna þrátt fyrir fjandsamlegan heim. Þaðer trúin sem varðveitir þá. Já, sannar- lega, gleði þeirra er sem vísbending um það sem er handan við forhengið er skilur okkur frá himninum. Úr bókinni Kristus lever, eftir M. Bourdeaux. Ungdom og Tiden. 11

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.