Bjarmi - 01.03.1988, Qupperneq 12
Ástríður Haraldsdóttir:
Siqrandi tmarlíf
Astrídur Haraldsóttir.
Sigrandi trúarlíf - er það til? Er
hægt að lifa sigrandi trúarlífi í þessum
heimi? í Róm. 8:37 stendur: „í öllu
þessu vinnum vér fullan sigur fyrir
fulltingi hans sem elskaði oss.“ í öllu
þessu, þ.e.a.s. í þjáningu, þrenging-
um, ofsóknum, hungri, nekt, háska
eða sverði.
Er hægt að lifa sigrandi trúarlífi
þrátt fyrir allt þetta? Já, fyrir fulltingi
hans, það eru lykilorðin. Það stendur
ekki að þú verðir að sjá til þess sjálfur
að sigra og leysa vandamálin sem
koma í þinn veg. Nei, fyrir fulltingi
hans. Fyrir þig sem erfiðar og berð
þungar byrðar, fyrir þig sem lifir í ótta
við framtíðina. I öllum aðstæðum eru
þetta orðin sem hjálpa. Þetta eru orð-
in sem geta haldið okkur uppi þegar
lífið er erfitt, leyndardómar iífsins eru
óleystir og Jesús er fjarri.
1. Það sem við eigum
í Jesú
Fyrst skulum við líta á það sem Jesús
hefur gert fyrir okkur og unnið okkur
til eignar. Lúther sagði: „Guð sagði
við Jesúm: Þú átt að vera það sem allir
menn eru og hafa verið frá upphafi til
enda veraldarinnar. Þú átt að vera
Adam sem syndgaði í Paradís. Þú átt
að vera Davíð sem myrti og drýgði
hór. í stuttu máli, þú átt að vera allt
það sem allir menn hafa verið og eru
frá upphafi til enda veraldarinnar.“
Jesú var gerður að synd vegna þess að
ég og þú höfum syndgað.
Guðs orð segir skýrt að við getum
ekki átt samfélag við Guð eins og við
erum í eðli okkar. Guð er heilagur og
þolir ekki synd, þess vegna getur
syndarinn ekki staðið frammi fyrir
heilagri ásjónu Guðs og lifað. Vegna
þess ákvað Guð í vísdómi sínum að
senda einkason sinn og láta hann taka
á sig dóminn yfir okkur. Það var farið
með hann eins og hann væri þú og ég
til þess að Guð gæti farið með okkur
eins og við værum hann. Grundvöllur
hjálpræðis okkar liggur ekki hjá okk-
ur heldur fyrir utan okkur.
Þegar við höfum tekið á móti Jesú
sem frelsara okkar fáum við til eignar
það sem hann hefur gert. Hið synd-
lausa líf hans verður okkar líf. Reiði
Guðs yfir syndinni hefur komið yfir
hann í staðinn fyrir okkur. Við eigum
hluta í dauða hans og upprisu og erum
erfingjar fyrirheitisins um eilíft líf.
Við eigum það í trúnni á Jesúm, óháð
tilfinningum okkar, vegna þess að
Guðs orð segir það. Af náð fyrir trú.
„Allir hafa syndgað og skortir Guðs
dýrð og þeir réttlætast án verð-
skuldunar af náð hans fyrir endur-
lausnina sem er í Kristi Jesú“.
(Róm. 3:23-24).
2. ÁrásirSatans
Kristinn maður verður ævinlega
fyrir árásum hins vonda. Hann vill
taka frá okkur lífið í Guði og gera
okkur að sinni eign. Hann birtist okk-
ur sem öskrandi ljón og engill ljóssins.
Takmark hans er að fá okkur til að
gera það sem er á móti vilja Guðs.
Hann lokkar okkur frá orði Guðs og
bæninni, hann gerir syndina freist-
andi.
Jesús varð líka fyrir freistingum
Satans. f Lúk. 4:1-13 getum við lesið
um það hvernig Jesús mætti freistar-
anum. Hann rak hann á brott með því
að nota Guðs orð. Vald Satans var
brotið á bak aftur þegar Jesú dó á
krossinum og núna er barist um hvern
einasta mann.
Orð Guðs hefur mátt til þess að
hrekja Satan á brott ef við lifum í því
og notum það. Ef dálítill tími líður án
þess að við höfum tekið til okkur nær-
ingu úr orði Guðs er auðveldara fyrir
Satan að fá okkur til að láta undan
freistingunni. En þegar og ef við föll-
um fyrir freistingunni er mikilvægt að
við komum til Guðs og segjum honuni
allt elns og er og fáum fyrirgefningu
þannig að við getum lifað áfram í sam-
félaginu við hann. Barn Guðs getur
syndgað en það getur ekki lifað í synd-
inni án þess að það komi niður á lífinu
með Guði. Við getum hvort sem er
ekki dulið neitt fyrir honum og hann
bíður þess að barnið komi aftur til
föður síns og fái fyrirgefningu þannig
að samfélagið við Guð rofni ekki. Það
er sigrandi trúarlíf.
Það er svo auðvelt að hugsa sem svo
að viss takmörk séu fyrir því hvað hægt
sé að koma með til Guðs, sérstaklega
ef um sömu syndina er að ræða aftur
og aftur. Svo reynum við að bæta okk-
ur en það gengur svo illa. En Guð vill
að við komum til hans, hvort sem það
er í fyrsta eða þúsundasta skipti, og
12