Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.03.1988, Page 15

Bjarmi - 01.03.1988, Page 15
i.Nei, nú get ég ekki meira! Þú hefur heðið mig svo oft um fyrirgefningu á því sarna að nú er nóg komið! Hvenær ætl- arðu eiginlega að bæta þig?“ An þess að við gerum okkur grein ^yrir þv{ væntum við breytingar til hins ðetra hjá þeim sem við fyrirgefum. Sú vænting getur jafnvel falið í sér kröfu um betrun. Við ætlumst til að sá sem hefur brotið af sér hætti rangri breytni sinni eftir að hann hefur beðist fyrir- gefningar. Það er sanngjörn krafa sam- kvæmt mannlegum hugsanagangi. En Þar með er fyrirgefningin orðin liáð skilyrðum og vonbrigðin verða mikil í hvert sinn sem við sjáum að sá sem við höfum fyrirgefið hefur ekki betrumbætt sig. Fyrirgefning með skilyrðum er engin fyrirgefning Það er erfitt að sætta sig við hrösun annarra, erfitt að fyrirgefa án skilyrða. i-i hann eða hún hætta þessu eða hinu ‘>a skal ég vissulega fyrirgefa. Ef aðrir §eta séð um sig og ég fæ það sem ég Þarfnast fyrst, svo að mér líði vel, þá get eg vel fyrirgefið. Eigin þarfir og langan- jr verða mikilvægastar. Oft snúast '’amirnar til Guðs einnig um þær fyrst °g fremst. Þær snúast um að fá hjálp til að halda út og að Guð geri eitthvað við aðra. Það er erfiðara að biðja Guð um að breyta okkur sjálfum. En það sem viö biðjum um og vonumst eftir gerist e'kki. Aðstæðurnar breytast ekki og líf- jö heldur áfram með allt sitt basl og e>ðindi. Málin eru tekin til umræðu og hilað út um þau og sameiginleg niður- s>aða sú að nú skuli byrjað upp á nýtt. veyna einu sinni enn. Fyrst í stað geng- Ur það vel, eða þangað til fyrsta and- sfreymið kemur, þá hrynur allt og ekk- ert gagnar. Við gefumst upp. Ij’annig fer fyrir fólki sem lifir í fyrir- gefningu með skilyrðum. Það lappar UPP á það gamla, reynir að taka sig spntan í andlitinu, leitast við að láta allt •ta vel út. En það þarf svo lítið til að allt . rynji og sárin verða dýpri og sársauk- lnn meiri í hvert sinn. Eins og Quð fyrirgefur skalt þú fyrirgefa Hvernig færi fyrir þér ef Guð sýndi þér takmarkaðan kærleika og fyrir- gæfi með skilyrðum? Þú færð fyrir- gefningu, en ef þú fellur einu sinni enn . . . Nei, þannig er Guð ekki, - hann fyrirgefur og gleymir. Hann gleymir fullkomlega því ranga sem þú hefur aðhafst, það er afmáð! Þannig eigum við einnig að fyrirgefa hvert öðru - fyrirgefa og gleyma. En það er óframkvæmanlegt! í Biblíunni er dæmisaga um þjón sem fékk upp gefna stóra skuld, en rétt á eftir gat hann ekki fyrirgefið samþjóni sínum nokkurn skapaðan hlut. Þar með glat- aði hann fyrirgefningu húsbónda síns og varð að greiða skuldina að fullu. Fjötraður eða frjáls Þegar þú vilt ekki fyrirgefa fjötr- arðu bæði sjálfan þig-og aðra. Fyrir- gefningin er lykillinn að himninum. Með þeirri fyrirgefningu sem þú fyrir- gefur náunga þínum verður þér einnig fyrirgefið. Ef þú kemur fyrst auga á hvað Guð hefur fyrirgefið þér, og að þú þarft sífellt á fyrirgefningu hans að halda, þá verður auðveldara fyrir þig að fyrirgefa öðrum það sem þeir gera á hlut þinn vegna þess að það eru smámunir í ljósi fyrirgefningar Guðs. En ef þú getur ekki fyrirgefið skaltu biðja Guð að sýna þér hvað hann hef- ur fyrirgefið þér og biðja hann um að breyta þér. Ef þú vilt ekki fyrirgefa þá fjötrarðu sjálfan þig og það kristna samfélag sem þú tilheyrir. Það felur í sér hroka og synd að vilja ekki fyrir- gefa og byrðar eru lagðar á aðra, byrð- ar sem erfitt er að bera, og allur líkam- inn þjáist. „íklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjartans meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hóg- værð oglanglyndi. Umberið hverann- an og fyrirgefið hver öðrum, ef ein- hver hefur sök á hendur öðrum. Eins og Drottinn hefur fyrirgefið yður, svo skuluð þér og gjöra. En íklæðist yfir allt þetta elskunni, sent er band algjörleikans“ (Kól. 3,12-14). Guð vill að þú fyrirgefir öðrum eins og hann fyrirgefur. Quð gefur það sem hann krefst Þegar þú finnur að þú átt að fyrir- gefa eins og Guð, en það reynist þér um megn, þá fyllist þú örvæntingu. Við slíkar aðstæður getur Guð komið til þín og unnið sitt verk í þér. Ekki með því að breyta öðrum eða aðstæð- um þínum, heldur með því að breyta þér. Þú ert háður fyrirgefningu Guðs og það sem hann krefst af þér verður hann einnig að gefa þér, hann verður að skapa eitthvað nýtt í þér. Jesús hef- ur beðið þess að fá að komast að og gefa þér það sem þú þarfnast. Hann vill umvefja þig fyrirgefningu sinni, sem þú þarfnast sjálfum þér til handa og til að geta fyrirgefið öðrum. Það er Jesús sem skapar eitthvað nýtt í þér, þannig að eyðilögð sambönd verða heil á ný og nýtt samfélag skapast. J es- ús tekur burt og setur nýtt í staðinn. Hann kom til að endurreisa rofið sam- band Guðs og manna. Hann kom og skapaði nýtt tækifæri til að sættast við Guð. „Þaðer fullkomnað!“ Samband- inu við Guð var komið í lag, hann gerði okkur kleift að byrja upp á nýtt. Hann lappaði ekki upp á hið gamla, heldur gaf okkur nýtt samband. Hann endurskapaði samfélagið milli Guðs og manna svo að önnur eyðilögð sam- bönd manna á milli yrðu ný og heil. Jesús varð að deyja til að koma þessu til leiðar. Það sama á við um okkur. Við verðum að deyja til að rísa upp til nýs lífs. Deyja sjálfum okkur og synd- inni sem loðir svo fast við okkur. Þeg- ar Jesús fær að vinna sitt verk í okkur og taka burtu hið gamla, þá hverfur hið gamla og eitthvað nýtt kemur í staðinn. Fyrirgefningin felur í sér nýja byrjun Jesús breytir þér þegar hann fær að annast þig með fyrirgefningusinni, þú verður nýr maður. Og þá geturðu einn- ig mætt öðrum á nýjan hátt. Kröf- urnar á hendur þeim eru horfnar og það skiptir miklu máli í erfiðri aðstöðu. Það sem pirraði þig áður pirrar ekki lengur. Að byrja upp á nýtt er að leyfa Jesú að gera þig að nýjum 15

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.