Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.03.1988, Page 21

Bjarmi - 01.03.1988, Page 21
Þannig var hún vön að komast að °rði. Jafnframt lagði hún tvo fingur- góma á gagnaugun. Og kumraði við gestunum. Þá komu gulu tennurnar í Ijós, þær einu sem elli og dauða voru eftir skildar. Önnur í efri góm, hin í neðri. Þær virtust standast á. Samt varð aldrei árekstur. Þær smugu létti- lega hvor fram hjá annarri, gular og gamlar - bæði þegar brosað var við sendiboða og bitið í heita flat- köku . . . o g aftur tilbeiðsludagur. Þetta er árið 1932. Og það eru ár vakninganna í Miðríkinu, hinu gamla Kína. Drottinn vitjar lýðs síns. Hann kemur til stórra og lítilla hópa. Kemur líka í litla herbergið í þorpsgötu sem við fengum leigt fyrir samkomurnar okkar á sunnudögum. Ekkert þak er °f lágt eða þröskuldur of hár fyrir bennan gest - Jesúm Krist. Ég stend upp til að tilkynna númer- 'ð á söngnum. Þá er það að barna- barnið stígur yfir þröskuldinn okkar °g inn á moldargólfið. Hann heldur í annan endann á langa, hvíta stafnum. Amma hefur gott tak á hinum endan- um. Þau ganga alla leið að innstu sætun- um. Þar eru baklausir kollar. Gamla konan er með reyrða fæturog í litlum, bröngum tuskuskóm. Sonarsonurinn er berfættur. Fæturnir ná ekki niður á golfið okkar. Það er ekki nema begar hann teygir fótinn vel að honum tekst aö krota rittákn með stóru tánni í 'uusa moldina. Þannig er gólfið okkar °g bannig er drengur sem gengur í hofskólann. Það kemur fyrir að litlir, orólegir fæturnir snerta buxnaskálmar ömmu: ~ Vertu kyrr, barn! Við erum í húsi Guðs! Hún segir það hátt. Það verður hluti guðsþjónustunni okkar. Texti sunnudagsins er: „Við Betes- dalaUg“. Við erum komin saman í ^'klum súlnagöngum. Frelsarinn er bar. Hann kemur auga á bæklaðan mann sem varð of seinn að laugar- harminum þegar engill ýfði vatnið. Hann á enga von og fer aftur á mott- una sína. Allt í einu stendur Jesús fyrir fram- an hann: - Statt upp, tak rekkju þína og gakk! Ef til vill brýndi ég svolítið raustina einmitt þarna því að jafnskjótt kemur undarleg máttug bylgja til prédikar- ans þarna á moldargólfinu austur í Asíu. Andi og kraftur vakningarinnar var líka undir þessu lága hálmþaki. Þess vegna varð stundarþögn í her- berginu þegar lamaði maður'nn stóð þarna skyndilega á fætur fyrir augum okkar, vafði mottuna sína saman og fór úr súlnagöngunum. p JL. að er á þessari kyrrðarstund sem gamla konan á fremsta bekk rís á fætur. Blinda andlitið snýr beint að sendiboðanum: - Getur Guð líka læknað kú, prestur? Á sömu stundu verður kyrrðin ennþá meiri í litla herberginu okkar sem er með veggjum úr þjöppuðum leir. Spurningin svífur uppi undir hálmþakinu. Allra augu beinast að sendiboðanum, einnig augu barna- barnsins við hlið gömlu konunnar. Tvö skásett augu mæna á mig þarna hinum megin við skakkt borð sem var prédikunarstóll. Þettaskilurhann. Nú erum við aftur á vettvangi hversdags- lífsins. Við erum á þreskivellinum heima. Þar liggur plógnautið með hausinn í þurrum hálmi og þaninn kviðinn. Þau helltu og helltu upp í skepnuna en allt kom fyrir ekki. Núna þegar þau fóru í guðshúsið löfðu eyr- un á bola. Froða í annarri nösinni. Hausinn sökk ennþá dýpra í hálminn. Engin von, sagði pabbi, sonur gömlu konunnar. Og gamla konan gengur einu skrefi nær borðinu mínu. Barnið líka. Tvö blind augu. Tvö dökk, ung og björt. Vakandi Asíu-augu einblína á sendi- boða. Bíða svars. Þetta er áskorun á sendiboðann. Guðfræðin sem ég kom með að heiman sagði ekkert um veikar skepn- ur sem draga plóga. En amman fyrir framan mig þekkti enga slíka guð- fræði. Hún átti aðeins svolitla, dýr- mæta trú og mikið traust til þess Guðs sem hún hafði hleypt inn í dimma ver- öld sína. Síðan rísa aðrir samkomugestir úr sætum. Þeir standa þétt hlið við hlið að baki þeim tveimur. Enginn bað þá um það. Það gerðist bara. Samtaka áskorun. Prófið mitt . . . p m á kemur meistarinn allt í einu gangandi föstum skrefum út úr súlna- göngunum. Hann kemur alla leið að skakka, ómálaða prédikunarstólnum mínum. Er hann hryggur? Sorgbit- inn? Vonsvikinn vegna þjóns sem hann sendi til Asíu búinn krafti frá sjálfum helgidóminum? Ætlar þú að bregðast mér hér í dag - setja almætti mínu skorður? Það er þá sem sendiboðinn tekur saman minnisblöðin úr prédikun sinni - erfiði heils laugardags, og stingur þeim inn í kínversku Biblíuna sína. Síðan ýtir hann henni til hliðar á borð- inu. Og eitthvað óskiljanlegt nær tök- um á mér. Ég boða þeim tveimur sem eru beint fyrir framan mig, aldraðri konu og ungum dreng, líka öllum mörgu andlitunum fyrir aftan þau - þau snúa öll í áttina að borðinu mínu: - Meistarinn er hér. Einmitt núna er hann hérna. Líka í hlaðvarpanum. Hann er á þreskivellinum. Núna, ein- mitt núna, reisir hann nautið ykkar á fætur! - Amen, sagði amma. - Amen, sagði sonarsonur. Bekkja- raðirnar fyrir aftan tóku það upp eftir þeim. Þess vegna varð það sterkt - allt til síðasta bónda á stráskóm á aftasta kolli. Nú getur presturinn haldið áfram að prédika. Það er amma gamla. Hún hefur sest aftur. Einsogsonurinn. Ogallirhinir. En ég finn ekki aftur það sem eftir er af prédikuninni minni. Við syngjum sálm. 21

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.