Bjarmi - 01.03.1988, Page 22
- Friður, segjum við hvert við ann-
að og yfirgefum herbergið okkar.
Þ
egar barnabarnið, hvíti staf-
urinn og amma koma loks á þreski-
völlinn hefur nautið staðið upp. Það
stendur þarna ábúðarmikið og stöð-
ugt og étur hálm. Rekur með hvítum
hornum allar flugurnar sem vilja inn í
augnkrókana.
- Hann er að éta hálm, amma!
Og barnið sleppir sínum enda
leiðarstafsins. Hleypur til skepnu sem
honum þykir vænt um. Amma kemur
á eftir. Hún ratar vel um hlaðið gamla.
Fullorðinn sonur, faðir, er þar. Þegj-
andi - orðvana stendur hann þarna á
sunnudeginum.
Móðir hans klappar bola á bakið.
Ved Juletid
■VW £■•■'* vSLrf * í-í'.
'fc
Qóðar
fréttir
frá
Afríku -
Biblíur
afhentar
ADDIS ABEBA: Biblíur og Nýja
testamenti, samtals 56 þúsund eintök
sem prentuð voru erlendis, hafa legið
í tollskemmum í Addis Abeba í nokk-
ur ár af því að Biblíufélagið í Eþíópíu
fékk ekki að Ieysa þær út. Yfirvöld
urðu þó við óskum Biblíufélagsins
síðastliðið haust en kröfðust þess jafn-
framt að greitt yrði geymslugjald.
Samkvæmt nýlegum fréttum hefur
tekist að semja við ráðamenn um að
bækurnar væru látnar af hendi gegn
því að borgað yrði fyrir aðeins einn
mánuð í stað fjögurra ára. Upphæðin
nemur um 285 þús. íslenskra króna.
Biblíurnar eru nú komnar í umsjá
Biblíufélagsins.
Egil Grandhagen, framkvæmda-
stjóri Norska kristniboðssambandsins
sem íslendingar hafa náið samstarf við
í Eþíópíu, hefur látið svo ummælt að
yfirvöld hafi sýnt lipurð með því að
lækka geymslugjaldið og afltenda
Biblíurnar enda sé þetta samkomulag
að líkindum merki þess að nú muni
verða auðveldara en áður að flytja
kristileg rit inn í landið. Sambandið
leggur töluverða áherslu á útbreiðslu
kristilegs lesmáls í starfi sínu og
hyggst halda því áfram. Fram-
kvæmdastjórinn bendir á að yfirvöld
hafi slakað nokkuð á að undanförnu
gagnvart kirkjunum í landinu. „Þess-
ar Biblíur eru afar vel þegnar í landi
þar sem mikill skortur er á Biblíum,“
segir Grandhagen.
Biblíufélagið ætlar sjálft að greiða
áðurnefnt leigugjald. Hið íslenska
Biblíufélag hafði þegar sent sem svar-
aði um 100 þús. ísl. krónum til að
styrkja systurfélagið vegna þessa
kostnaðar. Félagið í Eþíópíu mun sjá
um dreifingu bókanna í landinu. Þeg-
ar leyfi hafði verið gefið til að sækja
Biblíurnar voru þær fluttar í geymslur
Biblíufélagsins.
Ekki er að efa að margir kristnir
menn hafa beðið fyrir þessu máli. Þeir
fagna þessum úrslitum og þakka
Guði.
Llngur Afriku-
drcngur glcðst
yflr nýja
testamenti sem
hann hefur keypt.
22