Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1988, Síða 24

Bjarmi - 01.03.1988, Síða 24
Frásaga frá Cheparería: Unglingsstúlkan brosti hamingju- samlega og sagði með árherslu: „Já, mamma hefur lagt mikið á sig til að hjálpa mér með það sem ég þarf til skólans. Hún fer um allt og selur maís og ég veit ekki hvað.“ Þessi spengilega og fallega stúlka var Kristine, á að giska 16-17 ára dótt- ir Veroniku, fyrrverandi þvottakonu. Móðirin hafði eignast hana með manni, sem átti margar aðrar konur, en hún sjálf varð kona nokkurra manna og eignaðist alls fimm börn áður en hún varð kristin. Einstæða móðirin hafði því búið við mikla fátækt og basl. Kristine sjálf fór sárlega á mis við föðurumhyggju á gelgjuskeiðinu og varð móðurinni mjög erfið. Við kristni- boðarnir hjálpuðum henni því ásamt nokkrum öðrum fátækum stúlkum til náms á stúlknaheimavistarskólanum í kristniboðsstöðinni í Chesta. Það leyndi sér ekki að stúlkan sem stóð fyrir framan mig hafði þroskast. Hún var lífsglöð og kunni nú að meta móður sína rétt. Hún átti trú og traust á Jesú sem frelsara. Kristine hverfur Jólafríið leið. Kristine tók af mikl- um áhuga þátt í kórstarfi unglinganna og fór í ferðalög með þeim til að vitna fyrir fólki í sveitinni og syngja. Hún heimsótti pabba sinn sem er heiðingi og býr mjög afskekkt. Hann slátraði geit henni til heiðurs en neitaði algjör- lega að hjálpa henni með nokkra skólapeninga. Ef hún væri svo vitlaus að vilja hanga í gangslausum skólum í stað þess að gifta sig, þá skyldu hún bara sjá fyrir því sjálf. Þær vinkonurnar fengu síðan með sér fé til skólagjalda í lokuðu umslagi til skólastjórans, kvöddu broshýrar og Uppgjör á síðustu stundu lögðu af stað með rútu. En nú gerðist nokkuð óskiljanlegt og dularfullt. Kristine kom aldrei í skólann. Hún hvarf hreinlega og enginn vissi hvert!. Móðurinni hugkvæmdist engin skýring. Skólasystirin skrifaði okkur bréf og hafði eftir Kristine, að hún hefði viljað skreppa til ömmu sinnar en kæmi strax aftur. Eftir nokkrar vikur fékk ég ein- kennilegt bréf frá Kristine. Hún sagði mömmu sína vera svo vonda við sig, kalla sig hóru, þegar hún væri úti síð- degis með hinum unglingunum í kórnum, hún berði sig með priki, svo að hún hefði bara ákveðið að hverfa og koma aldrei aftur. Við skyldum ekki leita að henni hún væri í bæ í 130 km fjarlægð. Henni þætti nú samt ennþá vænt um mömmu sína . . . Veronika var alveg agndofa yfir bréfinu. Auðvitað hafði hún skamm- að stelpuna fyrir að koma of seint heim, þ.e. þegar rökkvaði, en það var skylda hennar; hitt væri ósatt og hér hlyti að búa fleira undir. Hún fór því með bréfið til yfirvalda í sveitinni, en þeir nenntu hreinlega ekki að hjálpa henni. Þá fór hún til lögreglunnar sem skammaði hana fyrir að koma ekki fyrr. Eftir margra vikna óvissu birtist Kristine allt í einu, þögul og tekin. Hún sat lengi gegnt móður sinni án þess að segja orð. Allt í einu brast stúlkan í grát, og sannleikurinn kom í ljós: Hún var ófrísk af völdum gifts manns. Hann hafði boðið henni í mat og síðan neytt hana til lags við sig. Þegar hún uppgötvaði afleiðingarnar, hafði hún ekki þorað að segja mömmu sinni sannleikann. „Þetta verður ekk- ert vandamál,“ sagði barnsfaðirinn og keypti átta töflur af alsterkasta malar- íumeðalinu, sem til er, og lét hana gleypa. í stað þess að líkaminn losaði sig samstundis við fóstrið, varð hún stöðugt veikari. Hann hafði því fund- ið upp það ráð að láta hana hverfa og skrifa bréf til að plata móðurina og kristniboðana á meðan hún færi langt í burtu í meðferð á spítala. Þegar henni batnaði ekki, vildi hann, að þau færu til konu, sem kynni að losa slíkt úr líkamanum. En nú var stúlkan upp- gefin af af lygunum, hrædd og veik og fór heim til mömmu. í grýtta jörð Eitt það hryggilegasta við þetta var, að barnsfaðirinn hafði verið kristinn í kirkjunni okkar, meira að segja starfs- maður um tíma, gifst yndislegri stúlku í kirkjunni, en síðan fallið frá og átt tvisvar barn með skólastúlku. Síðan hafði hann snúið við og játað syndir sínar í guðsþjónustu, en var nú fyrir nokkru enn hættur að koma í kirkj- una. Tveimur öðrum stúlkum hafði hann gert börn fyrir giftingu. Veronika afþakkaði ákveðið að taka við sáttargjöf mannsins, svolitl- um sykri og mat. Um þetta leyti varð hún að fara úr húsinu, sem hún hafði átt heima í og var heimilislaus, átti engan akur, plægði hvorki né sáði, svo að útlitið var dökkt. Fjarskyldir ætt- ingjar leyfðu henni að búa á lóðinni hjá sér eins og hverju öðru barni. Kristine varð sífellt veikari og lá á spítala í niargar vikur. Allt virtist fara úr skorðum og hjartað fór að stansa. Þegar fóstrið var um 6 mánaða, fædd- ist örlítið stúlkubarn, sem lá í súrefnis- kassa í mánuð. Þá virtist flest vera komið í lag hjá Kristine nema hjartað, svo að hún var send heim, þó án allra leiðbeininga um meðferð ungbarns- ins. 24

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.