Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1988, Side 27

Bjarmi - 01.03.1988, Side 27
KfriA: Sumir kristnir á laun Kína er kommúnistaríki. Þess vegna er ekki óeðlilegt að yfirvöld reyni að hindra að hugmyndafræði og menning Vesturlanda festi ræt- ur í Kína. Þau vilja koma ■ veg fyrir að „vestrænt, borgaralegt ftjáis- lyndi" spilii andrúmsloftinu. Innræting er mikil í kennslu og fjölmiðlum í Kína. Pólitísk fræðsla er höfuðatriði á dagheimilum og í grunnskólum og framhaldsskól- um. Stjórnmálafundir eru haldnir vikulega á vinnustöðum og fólki ieiðbeint um marxiskan hugsana- gang. Mikill áhugi ríkir meða kín- verskra æskumanna á því að læra um þjóðir utan Kína, ekki síst á Vesturlöndum. Þeim gefast ýmis tækifæri til þess. Um 40 þúsund útlendingar eiga heima í höfuð- borginni, Beijing (áður Peking), og stöðugt streyma ferðamenn inn I landið. Góð og vond vestræn áhrif berast þvi inn yfir landamærin. Ferðamaður sem kom fyrir skömmu til Beijing hitti kristna stúlku í einni af þremur mótmæi- endakirkjunum í borginni. Stúlkan var nemandi i stórum háskóla í borginni. Þar eru 12 þúsund nemendur. Einungis tveir þeirra þorðu að ganga fram fyrir skjöldu og játa trúna á Jesúm Krist. Stúlk- an kvað fleiri eiga fifandi kristna trú en þeir þyrðu ekki að segja bekkjarsystkinum sínum frá því. Þessi stúlka hafði orðið kristin fyrir þremur árum. Það var pró- fessor í háskófanum sem hafði vitnað fyrir henni og geflð henni Biblíu. Stúlkan sagði að nokkrir kennarar háskólanna væru kristnir. Skýringin var m.a. sú að Þeir höfðu hfotið menntun á Vest- urlöndum og hitt kristna samstúd- enta. Sumir draga enga dul á trú sína en flestir umgangast lyrst og kemst nánustu fjölskyldu og vini — af ótta við hugsanlegar afleiðingar opinberrar játningar fýrir böm og barnabörn. Erfltt er að segja til um hversu margir séu kristnir í einræðisiönd- um. Samkvæmt opinberum tölum í Kina em mótmælendur þar þrjár til fjórar milljónir. Henn ■ Hongkong sem era fróðir um kirkju og krist- indóm í Kina gera hins vegar ráð fyrir 20—50 miiyónum. Sagt er að sums staðar í suðlægum strand- héraðum sé allt að því helmingur íbúanna kristinn. Minna líf er í kirkjunni í Bejjing. Þijár kirkjur mótmælenda era opnar. Allur þorri kristinna manna er hins vegar í hússöfnuðunum. Þar koma nánir vinir saman til lest- urs Biblíunnar og bænar. Sam- kvæmt upplýsingum áðurnefndrar háskólastúlku era þeir æ fleiri í hópi æskufólks sem taka trú á hinn krossfesta og upprisna Jesúm Krists. ORÐINU DREIFT: Meðal ólympíufara Ólympíuleikarnir verða haldnir í sumar í Suður-Kóreu. Kristnir menn sjá þar tækifæri til að vitna um Jesúm Krist og útbreiða Bibl- íuna. Fyrirtækið Living Bible Int- ernational ráðgerir að senda hálfa milljón eintaka af Biblíunni til dreiflngar meðal ólympíufara í Suður-Kóreu. Ætlunin er að Biblíumar verði á 25 tungumálum. Þær verða gefnar ýmsum söfnuðum og samtökum sem búa sig undir að flytja fagnað- arboðskapinn í tengslum við leik- ana. Auk þess fá allir íþrótta- mennirnir Nýja testamentið að gjöf. Gjöf til indíána Bandaríska Biblíufélagið hefur tilkynnt að það hafl sent skipsfarm, tíu þúsund Biblíur, til Perú og sé þetta gjöf til ketsjúa, þjóðflokks indiána í landinu. Þýð- endur Biblíunnar höfðu komið saman í Bandaríkjunum. Þar heyrðu þeir þær fréttir að þjóð- flokkurinn hefði lent í ættbálka- skæram án þess að hafa átt sökótt við granna sína. Vora þá tekin sam- skot og keypturáðumefndur farm- ur af Biblíum sem síðan var sendur til Perú. Spænska og tunga ketsjúa era höfuðtungur Perúmanna. fbúamir em um 19 miiyónir. Landið er um 12 sinnum stærra en fsland og höfuðborgin heitir Líma. Um 96 af hundraði landsmanna teljast til kaþólsku kirkjunnar en um 1,25% era mótmælendur. Kristniboðar eru allmargír í landinu, m.a. frá Norðurlöndum. 40 tonn lesefnis Kristnir menn í Evrópu og Afríku hafa bundist samtökum og sent um 40 tonn af kristilegu lesefni til Nígeríu og Sambíu í Afríku. Kristi- legar bókmenntir hafa verið nær ófánlegar ■ þessum löndum síðan árið 1981. Astæðan er fyrst og fremst erflðleikar i gjaldeyrismál- um svo að engar bækur hefur verið unnt að kaupa frá útlöndum. Kirkju- leiðtogi í Nígeriu hefur látið svo um mælt að ef þeim berist ekki hjálp verði þeir að loka strax 15 af 35 kristilegu bókabúðunum í land- inu. Biblíur að gjöf Það hefur oft komið fram hér í blaðinu að mikill skortur er á Biblíum í Sovétríkjunum. Þar er ekki ein einasta bókabúð sem sel- ur Biblíur á almennum markaði. Ýmsir vinir Sovétmanna reyna að bæta úr þessu, m.a. með þvi að smygla Biblíum inn í landið. Sumir gefa ferðamönnum og farmönnum frá Sovétrikjunum Biblíur. Þannig var þess getið fyrir nokkra í erlend- um blöðum að rússncskir sjómenn sem koma í land í Singapore fái að gjöf hver sína Biblíu og má þakka þetta liðsinni norska sjómanna- trúboðsins. Margir sjómennirnir hafa látið í Ijos gleði og þakkiæti fýrir gjöfína. Aðrir sögðu að þeir þyrðu ekki að fara heim með Bibl- íuna af ótta við að verða fyrir óþægindum. 27

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.