Bjarmi - 01.03.1988, Qupperneq 28
FRÁ STARFIN U
„Á valdi Drottins"
Kristilegt stúdentamót,
sem bar yfirskriftina: „Á
valdi Drottins“, var haldið í
Ölveri, helgina 12.-14.
febrúar sl.
Gestur mótsins var norsk-
ur prédikari, Roar Haldor-
sen og sá hann um efni flestra
samverustundanna. Túlkur
var Ragnheiður Harpa Arn-
ardóttir.
Roar Haldorsen er fram-
kvæmdastjóri „Operation
Mobilization “ hreyfingarinn-
ar í Noregi, en það er alþjóð-
leg hreyfing sem vinnur að
því að þjálfa og senda ungt
Kristrún ■ Ölveri
unir sér vel í
hópi þátttakenda
á kristilegu
stúdentamóti.
fólk í boðunarferðir víðs veg-
ar um heim.
Síðdegis var mótsgestum
skipt í námshópa og var hægt
að velja um fræðslu í leiklist í
kristilegu starfi, hjálp við
persónulega boðun, og
æfingar í notkun teiknitöflu
við kristna boðun.
Um 40 manns sóttu mótið,
en því lauk með guðsþjón-
ustu í umsjá sr. Guðna
Gunnarssonar, skólaprests,
síðdegis á sunnudag.
Á sunnudagskvöld sá KSF
um samkomu í húsi KFUM
og K við Amtmannsstíg. Par
talaði Roar Haldorsen, en
einnig fengu samkomugestir
að kynnast nokkru afþví sem
þátttakendur höfðu lært á
mótinu í Ölveri.
Húsakaup
kristniboðsvina
Kristniboðsfélag kvenna
og Kristniboðsfélag karla í
Reykjavík sem starfað hafa
undanfarna áratugi í húsi
sínu Betaníu við Laufásveg
seldu húsið 11. febrúar sl.
Kaupandi var Fríkirkju-
söfnuðurinn í Reykjavík.
Sama dag undirrituðu félögin
ásamt Sambandi ísl. kristni-
boðsfélaga samning um kaup
á húsnœði í verslunarhúsinu
Miðbœ við Háaleitisbraut.
Nánar verður sagt frá þessu í
nœsta blaði Bjarma.
Heimsókn
Sr. Bent Reidar Eriksen,
prestur í Noregi og stjórnar-
maður í norska heimatrúboð-
inu, dvaldi hér á landi í
nokkra daga í lok febrúar.
Hann kom hingað á vegum
Landssambands KFUM og
KFUK, m.a. til að kynna
Lausanne-hreyfinguna. Fór
hann víða þessa daga, m.a. til
Akureyrar, og sagði frá starfi
hreyfingarinnar. Sunnudag-
inn 28. febrúar talaði hann á
samkomu í húsi KFUM og
KFUK við Amtmannsstíg og
fjallaði um endurkomu Jesú,
mikilvœgi þess að standa
stöðugur í trúnni og hvernig
eftirvœntingin eftir komu Jesú
á að hvetja okkur til að
útbreiða fagnaðarerindið.
Samkoman var mjög vel sótt
og heimsókn sr. Bent Reidars
hin ánœgjulegasta.
í Hafnarfirði
og Keflavík
Tvær kristniboðsvikur
voru haldnar í febrúar, sú
fyrrí í Hafnarfirði dagana 1,-
14. febrúar á vegum Kristni-
boðsdeildar KFUM og K þar
í bænum. Voru almennar
samkomur öll kvöld vikunn-
ar í félagshúsinu við Hverfis-
götu og lögð áhersla á að
kynna kristniboðið en einnig
flutt orð Guðs í tali og söng.
„Kristniboðskaffi“ var selt
eftir hverja samkomu og
voru þeir margir sem notuðu
sér það og sátu stundarkorn
og spjölluðu saman. Tekið
var við gjöfum til starfsins að
venju. Benedikt Arnkelsson
stjórnaði samkomunum.
Seinni vikan hófst 14.
febrúar í félagsheimili
KFUM og K við Hátún í
Kcflavík. Að henni stóðu
Kristniboðsfélagið íKeflavík
og kristniboðsfélag það sem
ungt fólk í bænum stofnaði
fyrr í vetur og kallast
„Ljómar“. Samkomurnar
voru með hefðbundnum
hætti. Unga fólkið stjórnaði
og lagði lið og drjúgur hópur
ungmenna var meðal þeirra
sem komu og hlustuðu.
Seinni sunnudaginn pre-
dikaði Guðlaugur Gunnars-
son í Keflavíkurkirkju en sr.
Ólafur Oddur Jónsson þjón-
aði fyrir altari. Fjölmenni var
í kirkjunni. Tekið var við
gjöfum til starfsins í guðs-
þjónustunni og á samkomun-
um. Guðlaugur og Benedikt
Arnkelsson heimsóttu
grunnskólanemendur í
Keflavík meðan vikan þar
stóð yfir.
A DÖFINNI:
Mng
Ping Landssambands
KFUM og KFUK verður
haldið um hvítasunnuna 21.-
23. maí nk. íár eru tíu ár síð-
an Landssamband KFUM og
KFUK var stofnað og verður
þess minnst á þinginu.
Sumarbúðir
Innritun í sumarbúðir
KFUM og KFUK hefst nú í
apríl. Byrjað verður að skrá í
Vatnaskóg 18. apríl og Vind-
áshlíð og Ölver þann 25.
Skráning fer fram á Aðal-
skrifstofunni, Amtmannsstíg
2B. Skráning í Kaldársel og
Hólavatn mun hefjast um
svipað leiti og fer fram hjá
félögunum í Hafnarfirði og á
Akureyri.
Almenna mótið
Akveðið er að almenna mót-
ið í Vatnaskógi verði helgina
24.-26. júní n.k. Nánar verð-
ur greint frá því síðar.
Mót og námskeið
Kristniboðsmót verður á
Löngumýri í sumar, dagana
15.-17. júlí. Þá er ráðgert
biblíunámskeið í Ólveri 19.-
23. ágúst.
28