Bjarmi - 01.03.1988, Page 30
Ekki sjö sinmim,
heldur...
manni. Þá hefur þú öðlast réttar for-
sendur og þá verður það ekki byrði að
reyna einu sinni enn.
Jesús ber byrði fyrirgefningarinnar
fyrir þig. Áhættan sem þú tekur er sú
að sýna öðrum fullt trúnaðartraust.
Það getur vakið ótta, en Jesús treystir
þér til fulls þegar hann fyrirgefur þér.
Með því að gera slíkt hið sama hjálpar
þú þeim sem þú fyrirgefur. Jesús getur
gefið þér raunverulegt trúnaðartraust
því hann ber þínar byrðar svo að þú
getir verið með í að bera byrðar ann-
arra.
Guð vill að við lifum í nýsköpun
hans í öllum hlutum. Hann vill gefa
okkur það sem við þörfnumst og gera
okkur heilsteypt. Hann sem getur
skapað af engu getur einnig umskapað
menn.
Hann tekur leirkerið sem er mis-
heppnað í hendur sínar og gerir nýtt.
Hann býr tii nýtt ker eins og hann vill
hafa það. Nothæft ker sér til dýrðar.
Credo 7/85
Páskar
Tvær
áletranir
Það bar til fyrir mörgum árum að
tvö leiði í grennd við hina gömlu borg
Þessalóniku í Grikklandi voru grafin
upp. Annað leiðið var frá því í heiðni
en hitt frá kristnum tímum.
Á leiði heiðingjans var þessi áletr-
un: „I dauðanum engin von.“ En á
leiðinu frá kristnum tímum stóð aftur
á móti skrifað. „Kristur er líf mitt.“
Dauðinn án Krists og dauðinn með
Kristi, hlið við hlið. Annars vegar
vonleysi, hins vegar djörfung og von.
Slíkri breytingu veldur fagnaðarer-
indið um hinn upprisna Jesúm.
Það höfðu orðið páskar en þeir
vissu það ekki, lærisveinarnir sem
voru á leið til Emmaus, og enn er líkt
á komið fyrir mörgum. Páskar verða
ekki af því einu að okkur er sagt að
gröfin sé tóm. Það höfðu þeir heyrt en
þeir eignuðust samt ekki páskagleð-
ina. Þá fyrst verða páskar þegar við
mætum hinum upprisna sjálfum. Það
er kraftaverk sem verður að gerast
þegar við lesum í Biblíunni okkar.
Það var það sem kom fyrir félagana
tvo þegar hann hélt biblíulestur með
þeim á veginum til Emmaus síðdegis á
páskadegi. Og Jesús fór inn til að vera
hjáþeim,stóð þar. Ó,aðeggætifund-
ið það, segir þú. Já, en það getum við
ekki. Við verðum að láta okkur nægja
að trúa því. Stundum finnst okkur
hann fara. En hann er kyrr.
Drottinn hét Jósúa forðum að vera
með honum á öllum vegum hans. Það
voru ekki aðeins orð til Jósúa. Það eru
orð hins upprisna til okkar nú.
Axel Pihl
Ný brauð
daglega
Nýjar kökur
daglega
Opnum kl. 8
daglega
Opið laugardaga til kl. 2
sunnudagatil kl. 4
G. Ólafsson & Sandholt
Brauð- og kökugerð
Laugavegi 36, Reykjavík
Sími 12868 & 13524
Orðsending til
áskrifenda Bjarma
Gíróseðlar, vegna innheimtu ár-
gjalds Bjarma, hafa nú verið sendir
áskrifendum blaðsins og eru þeir
beðnir að gera skil hið fyrsta. Bjarmi
þakkar trúfesti og skilvísi við blaðið.
Ef einhverjir hafa ekki fengið send-
an gíróseðil eru þeir beðnir að láta
afgreiðslu blaðsins vita í síma
17536. Sömuleiðis eru þeir sem
skipta um heimilisfang minntir á að
tilkynna það. Loks eru lesenduur
blaðsins hvattir til að afla því fleiri
áskrifenda svo að boðskapurinn um
Jesúm Krist berist sem víðast.
30