Bjarmi - 01.02.1992, Blaðsíða 7
landinu og hefur m.a. tekið upp í Alkirkju-
ráðinu að banna eigi kristniboð í Eþíópíu því
landið sé kristið land.“
Leit kommúnistastjórnin þessum sömu aug-
um á rétttrúnaðarkirkjuna?
„Nei, þeir gerðu það nú ekki en það er
þannig í Eþíópíu, og hefur alltaf verið, að þeir
sem hafa stuðning koptísku kirkjunnar hafa
haldið völdum í landinu. Sennilega hafa kom-
múnistarnir einnig skilið þetta þannig að þeir
mismunuðu koptísku kirkjunni gagnvart mót-
mælendakirkjunum."
„Brautryðjendur á
gömlu svæði“
Ef við þá snúum okkur að því starfi sem þú
ert að sinna núna í Bórana: Hvernig erástand-
ið þar eftir þessar breytingar?
„Það er sorgleg saga. Þegar ég byrjaði starf
í Bórana árið 1964 voru kristniboðar á öllum
stöðvum. í Negellí var ein fjölskylda, tvær
kristniboðafjölskyldur í Mega ásamt tveim
einhleypum konum, kennara og hjúkrunar-
konu og ein fjölskylda ásamt hjúkrunarkonu
og kennara í Yavelló. Og það var blómlegt
starf.
Þegar við komum aftur til Bórana árið 1973
og störfuðum í Mega hafði ég sautján trúboða
(prédikara). í Negellí hafði ég sex til tíu trú-
boða meðan ég starfaði þar og á þeim tíma
voru einnig sex til tíu trúboðar í Yavelló. í dag
eru tveir trúboðar sem starfa meðal Bórana í
Negellí, tveir í Yavellóog átta í Mega. Um all-
ar þessar stöðvar rná segja að þar eru ekki
biblíuskólar og engin biblíunámskeið í
gangi. Hvorki stutt né löng. Og þetta hefur þá
leitt til að það er mjög mikill skortur á trúboð-
um. En Bóranaþjóðin er mjög opin fyrir fagn-
aðarerindinu. Þar sem það er boðað vill fólk
heyra meira. Það vill gjarnan fáfræðslu ogþað
vill gjarnan taka skírn. En við höfum ekki
mannskap til að annast skírnarfræðslu.“
Getur kirkjan eða þið kristniboðarnir gert
ykkur einhverja grein fyrir ástœðum þessara
breytinga?
„Það hefur nú ekki verið gerð nein kerfis-
bundin rannsókn á þessu. En minn skilningur
á því er að þegar byltingin var gerð 1974 voru
stofnuð bændafélög og bæjarhlutafélög. í
Bórana voru leiðtogar í kirkjunni og trúboðar
kosnir inn í stjórnir þessara félaga vegna þess
að þetta voru menn sem voru mjög vel þekktir
á svæðinu og menn sem fólk bar traust til. Og
til að byrja með, fyrstu mánuðina, kannski
fyrsta árið var margt mjög jákvætt við bylting-
una. En smám saman fór þetta að breytast en
þá höfðu leiðtogar kirkjunnar ánetjast þessu
kerfi og jafnvel þegar guðleysisáróðurinn
byrjaði gátu þeir ekkert sagt því þeir voru
hluti af kerfinu.
Eg álít að kirkjan í Bórana eða leiðtogar
hennar hafi rotnað innanfrá. Það var mjög lít-
ið um þvingun eða ofsóknir vegna þess ein-
faldlega að það var ekki þörf á því þar sem
leiðtogar kirkjunnar voru hluti af komrnún-
íska kexfinu. Biblíuskólarnir lögðust af og
sömuleiðis biblíunámskeiðin. Ástæðan fyrir
því var að þeir sem áttu að kenna og setja í
gang þessi námskeið og þessa skóla voru hluti
Bóranaþjóðin
er mjög opin
fyrir fagnaðar-
erindinu. Þar
sem það er
boðað villfólk
heyra meira.
Það vill gjarn-
an fá frœðslu
og það vill
gjarnan taka
skírn. En við
höfum ekki
mannskap til
að annast
skírnar-
frœðslu.
1