Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1992, Blaðsíða 12

Bjarmi - 01.02.1992, Blaðsíða 12
CJnnlii ALLT ER FERTUGUM FÆRT / / HATIÐARSTUND í KFUM Á AKUREYRI Ég var reiðu- búinn til þess ogfyrr en varði fórég að kalla saman 12 ára drengi en þeim kenndi égsöngí skólanum. KFUM á Akureyri varð 40 ára fyrsta desem- ber síðastliðinn. Félagið minntist tímamótanna á hátíðarsamkomu á afmælisdaginn í félags- heimilinu í Sunnuhlíð. Guðmundur Omar Guðmundsson stjórnaði samkomunni. Björgvin Jörgensson, formaður félagsins, mælti nokkur upphafsorð og flutti bæn. Þá greindi Sigfús Ingvason guðfræðinemi stuttlega frá aðdraganda þess að félagið var stofnað. Jón Viðar Guðlaugsson, sem jafnan spilar undir söng á samkomum í Sunnuhlíð, flutti minningar frá fyrstu kynnum sínum af Björgvin og félagsskapnum og fléttaði saman gaman og alvöru. Jón Viðar var sá eini úr hópi stofnenda félagsins, auk Björgvins sjálfs, sem staddur var á samkomunni. Ritari KFUM, Jón Oddgeir Guðmundsson, skýrði frá því að Björgvin hefði verið gerður að heiðursfélaga KFUM í viðurkenningarskyni fyrir brautryðjanda- og forystustarf í 40 ár en hann hefur verið formaður félagsins frá upp- hafi. Var Björgvin afhentur silfurlitur skjöldur með áletrun. Hugleiðingu tlutti Jóhannes Ingibjartsson formaður Landssambands KFUM og KFUK. í lokin voru veglegar veitingar. Félaginu barst veggklukka að gjöf, svo og blóm og heilla- skeyti. „Viltu sinna drengjunum?“ Blaðamaður Bjarma hitti Björgvin Jörgens- son og spjallaði við hann stundarkorn. „Þú ert Akurnesingur, Björgvin, en hefur lengst af átt heima á Akureyri?" „Já, við komum hingað ung hjón, við Bryn- dís heitin Böðvarsdóttir, árið 1946. Mér bauðst söngkennarastaða við barnaskólann. Reyndar álli ég líka kost á að verða skólastjóri í Stykk- ishólmi. En Bryndísi leist betur á að við færum norður. Um þetta leyti áttum við von á fyrsta barninu af þeim þremur sem við eignuðumst. Síðar varð ég almennur kennari - og nú hef ég dregið mig í hlé en hef þó nóg fyrir stafni.“ Björgvin situr sannarlega ekki auðum hönd- um þó að leið hans liggi sjaldnar í Barnaskóla Akureyrar en áður var. Hann talar oft á fundum og samkomum kristilegu félaganna í bænum og hann stjórnar biblíulestrum í báðum söfnuðum Akureyrar. Hefur hann samið skýringar við mörg rit Nýja testamentisins. „Þegar við komum hingað til Akureyrar fór- um við strax að sækja samkomur í kristniboðs- húsinu Zíon en þær voru haldnar á vegum Kristniboðstelags kvenna. Jóhanna Þór var þá formaður. Hún frétti af nýja kennaranum, kom fljótlega að máli við mig og sagði að þær kon- urnar stæðu fyrir kristilegu starfi meðal stúlkna en vantaði einhvern til að taka að sér drengina. Gæti ég nú hugsað mér að sinna þeim? Já, ég var reiðubúinn til þess og fyrr en varði fór ég að kalla saman 12 ára drengi en þeim kenndi ég söng í skólanum. Fundarstaðurinn okkar var lengst af Zíon. Við lásum framhaldssögu, ég sagði þeim frá KFUM í Reykjavík og úti í heimi og kenndi þeim KFUM-söngva og við höfðum orð Guðs um hönd. Um tíma fengum við lánaðan í- þróttasal einu sinni í viku og lékum okkur í handbolta. Og á sumrin var stundum farið í útilegur, til dæmis á Stóru-Tjarnir og Grenjað- arstað. Drengirnir voru afar áhugasamir. t

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.