Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1992, Blaðsíða 11

Bjarmi - 01.02.1992, Blaðsíða 11
hús Guðs. Jesús á að vera okkur fyrirmynd. „En hver er þín fyrirmynd?“ spurði Helgi. „Hver hefur stytt bænastundir þínar? Hver hefur minnkað lestur Biblíunnar? Hver hefur fækkað ferðum þínum í guðshús?“ Helgi ræddi um að margir væru leitandi en sæktu ekki alltaf þangað sem Jesús væri, þar sem orð hans væri boðað. „Þar sem tveir eða þrír koma saman í hans nafni, þar er hann, þar er orð hans, þar er helgidómur, þar sem hann sjálfan er að finna.“ A santkomunni var tekið við gjöfum til kristniboðsins og söfnuðustu tæpar 90 þúsund krónur. Eins og fyrr segir var samveran fjöl- sótt og hátíðleg og söngurinn var kröftugur. Aður hefur komið fram að Birna og Guð- laugur myndu hefja nám í amharisku, ríkis- máli Eþíópíu fljótlega eftir að þau kæmu út og að ákveðið yrði í samráði við yfirstjórn lút- hersku kirkjunnar hvar starfsvettvangur þeirra yrði. Helgi Hróbjartsson hefur unnið að predikun hér heima og í Noregi, harin gegndi um tíma prestsstarfi í Hrísey og hann hefur verið kristniboði í Eþíópíu — þaðan kom hann 1975 — og í Senegal. Við spurðum Helga hvar hann myndi hafa aðsetur í Eþíóp- íu. „Ég verð væntanlega á meðan Bórana og Gúdsímanna í Suður-Eþíópíu. Það gæti orðið í Vaddera eða Neghelli en ég hef starfað á báðum þeim stöðum. Kommúnistar lögðu undir sig stöðina í Vaddera en skiluðu henni aftur í hendur kirkjunnar snemma árs 1991. Líklegast verð ég í boðunarstarfi. Ég er ákaf- lega glaður að geta farið aftur til Eþíópíu. Já, það er í einu orði sagt stórkostlegt!" Helgi var áður sendiboði Norðmanna í Eþíópíu og fór nú á vegum SÍK. Helgi lagði af stað frá íslandi 2. janúar en hjónin og dæturnar tvær daginn eftir, og þá um kvöldið stigu þau öll upp í sömu flugvél í Frankfurt í Þýskalandi og lentu svo að morgni 4. janúar á flugvellinum í Addis Abeba. Á DÖFINNI: KFUM OG KFUK: Fræðslumorgnar KFUM og KFUK í Reykjavík bjóða um þessar mundir upp á fræðslustundir í húsi félaganna við Holtaveg. Fræðslustundirnar eru á laugardagsmorgnum kl. 10.30-12.00. Þær hófust 18. jan. sl. og standa fram í mars. Markmiðið með stundunum er að gera þátttakendur að hæfari lærisveinum Jesú Krists og til starfa innan KFUM og KFUK. Efni stundanna er fjölbreytt. M.a. verður fjallað um bæn, almenn fundarsköp, engla, bibiíuiestur, fyllingu heilags anda, 1000 ára ríkið, að vera kristinn í þjóðfélaginu o.fl. í tengslum við fræðslumorgnana verða tvær dagráðstefnur í mars. Þann 7. mars verður rætt um efnið KFUM og KFUK og náðar- gjafirnar og 28. mars um samstarf KFUM og KFUK, SÍK og KSH. Nánari upplýsingar fást á Aðalskrifstofunni við Holtaveg í síma 678899. KFUM OG KFUK: Hópferð til Þýskalands KFUM og KFUK í Reykjavík vinna nú að undirbúningi hóp- ferðar til Þýskalands fyrri hlutann í júní í sumar. Ferðin verður skipulögð í samvinnu við KFUM þar í landi og m.a. stefnt að þátt- töku í íþróttahátíð 7.-8. júní. Reynt verður að hafa ferðina sem ódýrasta og því ástæða fyrir félagsfólk að fylgjast með og afla sér nánari upplýsinga um ferðina. Hér er gott tækifæri til að ferðast í góðum hóp og heimsækja KFUM-fólk í Þýskalandi. Nánari upp- lýsingar gefur Björgvin Þórðarson stjórnarmaður í KFUM í Reykjavík (hs. 618482). Einnig má hafa samband við Aðalskrif- stofuna við Holtaveg, í síma 678899. KSS: Kynningarfundir Af starfi KSS er það helst að frétta, að framundan er útgáfa blaðsins Okkar á milli, sem dreift er til allra nemenda í efri bekkj- um grunnskóla. Blaðinu verður fylgt eftir með heimsóknum í skólana á Reykjavíkursvæðinu. Þar munu KSS-ingar segja frá starfi félagsins og trúarreynslu sinni. Að þeim kynningum lokn- um verður haldinn sérstakur KSS-kynningarfundur þann 15. fe- brúar að Háaleitisbraut 58-60. Ekki má heldur gleyma árlegu vorskólamóti KSS um bænadag- ana. lifÁOLöfi 1111

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.