Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.02.1992, Blaðsíða 17

Bjarmi - 01.02.1992, Blaðsíða 17
— Hvað er þér minnisstæðast frá mótinu? „Ætli það hafi ekki verið þegar rútan fór á hliðina í Hvalfirðinum, en annars á ég auðvit- að aldrei eftir að gleyma þessu námskeiði. Mér finnst þetta vera mjög góður hópur og „mórallinn“ góður. Maður fer úr Ölveri miklu ríkari en maður kom“. Fjölnir Guðmundsson Skemmtilegt og spennandi — Hvað heitirðu? „Fjölnir Guðmundsson“. — Hvað ertu gamall? „Sautján ára“. — Ertu búinn að vera lengi í KSS? „í rúmt ár“. — Hvernig er í ferðalögum, mótum og fleiru meðKSS? „Það er mjög skemmtilegt og fræðandi". — Hvernig finnst þér nýársnámskeiðið? vÆvintýralegt en umfram allt fræðandi". — Hvað er þér minnisstæðast frá námskeið- inu? „Það er líklega gönguferðin sem við fórum í nokkrir strákar, hún var mjög spennandi“. — Attu gæludýr? „Nei“. —- Viltu segja eitthvað að lokum? »Eg þakka fyrir mjög skemmtilegt og spennandi mót“. NÝ-UNG: Ráðstefna á Selfossi Helgina 28. febrúar - 1. mars, næstkomandi, mun NÝ-UNG KFUM og KFUK standa fyrir ráðstefnu á Hótel Selfossi. Er þetta kjörið tækifæri fyrir unga sem aldna til að uppbyggjast í trúnni og hvíla sig á ys og þys hversdagsleikans. Ráðstefnan verður með svipuðu sniði og sú sem haldin var á Hótel Borgarnesi í fyrra. Dagskráin hefst nieð samverustund á föstudagskvöldinu. A laugardag verða stundir fyrir hádegi og síð- degis og einnig umræðuhópar. Um kvöldið verður þríréttaður hátíðarkvöldverður og samlelagsstund. Á sunnudag er síðan ætl- unin að fara í messu. Boðið verður upp á sálgæslu og fyrirbæn og auk andlegrar hressingar verður að sjálfsögðu sundferð eða önnur líkamleg hressing fyrir þá sem það vilja. Verði er stillt í hóf, kr. 7.800.- fyrir manninn, en innifaliö í því er gisting í tvær nætur og fullt fæði. Allir eru hjartanlega velkomnir, hvort sem þeir hafa nokkuð verið viðriðnir NÝ-UNG eða ekki. Þar sem ráðstefnugestir búa á þægilegum hótelherbergjum er t.d. tilvalið bæði fyrir fullorðið fólk og fjölskyldur að taka þátt. Skráning fer fram á aðalskrifstofu KFUM og KFUK í síma 678899. LigdHöH

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.