Bjarmi - 01.03.1997, Qupperneq 13
i
„Þetta
jarðneska
drasl er
fánýtt"
Magnús Eiríksson tjáir sig
um dauðann og tilveruna
Dauðinn er fylgikvilli lífsins.
Flestir óttast hann og hann
eirir engum. Sumum gerir
hann boð á undan sér og þeir
bjóða hann jafnvel velkominn,
aðra tekur hann burt í blóma
lífsins án viðvörunar, óboðinn.
Víða í bókum Biblíunnar erum við
minnt á að lífið er hverfult, eins og allt
annað í þessum heimi. „Dagar manns-
ins eru sem grasið, “ segir skáldið, sem
orti 103. Davíðssálm, og heldur áfram:
„Hann blómgast sem blómið á mörkinni,
þegar vindur blæs á hann er hann horf-
inn, og staður hans þekkir hann ekki
framar. “
Verðmætamat Guðs er annað en
okkar.
Jesús sagði: „Safnið yður ekki fjár-
sjóðum á jörðu, þar sem mölur og ryð
eyðir og þjófar brjótast inn og stela.
Safnið yður heldur Jjársjóðum á himni,
þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og
þjófar brjótast ekki inn og stela. “
Jarðnesk gæði nýtast okkur ekki í
dauðanum, hvorki peningar, eignir, völd
né vinsældir. Hin sönnu verðmæti og
jafnframt þau einu sem gilda handan
grafar eru, samkvæmt Guðs orði, að
þiggja náð Guðs í Kristi.
Magnús Eiríksson tónlistarmann þarf
vart að kynna fyrir lesendum Bjarma
Guðmundur Karl Brynjarsson
fremur en öðrum íslendingum. Að
undanförnu hafa staðið yfir sýningar á
„Braggablús" þar sem vinsælustu lög
hans gegnum tíðina eru rifjuð upp.
Magnús á mörg grípandi og mjög fjöl-
breytileg lög sem fýrir löngu eru orðin
klassísk. Textarnir eru kjarngóðir og