Bjarmi - 01.03.1997, Síða 19
sorginni. Sorgarsamtök hafa hjálpað
mörgum, svo og fagleg hjádp í áföllum og
sálusorgun, bæði presta og samborgara.
Fólk er misjafnt gagnvart trúnni og
afstöðu til lifsins og tilverunnar. Sumir
leita og leita og fara víða í leit sinni, t.d.
til miðla. Aðrir fela Guði þann sem far-
inn er í bæn."
Svona mál taka mikið á. Hvemig gengur
að vera eiginkona og móðir samhliða
prestsstarjinu og gefa þeim qfþér?
Það er oft erfitt. Prestsstarfið er ekki
fjölskylduvænt. Ég hef oft hugsað til
kaþólikkanna í því sambandi. Það eru
gerðar mjög miklar kröfur til prestsins.
Hann veit að hvenær sem er getur kom-
ið kall sem hann verður að sinna. Þá
víkur allt annað til hliðar. Það hendir að
það þarf að svíkja loforð við fjöl-
skylduna, t.d. þegar ákveðið hefur verið
að fara og gera eitthvað. Þá hringir
síminn vegna þess að eitthvað hefur
hent sem prestur starfsins vegna, köll-
unar sinnar vegna, fer og sinnir. Það er
oft glíma að sinna sínu fjölskyldulífi og
þessu starfi.“
Hvemig liður þér eftir að hafa tekist á
við erfið mál?
„Oft illa. Prestur finnur sig oft andlega
þreyttan.“
Finnst þér að þú hefðir sjálf þurft á hjálp
að halda, t.d. sálusorgun?
„Já. Oft hefði ekkl veitt af því. Mann-
gerðir presta eru að sjálfsögðu mis-
munandi. Ég er sú manngerð, sem leita
ekki eftir hjálp þótt ég þyrfti á henni að
halda. Þess vegna hefði prestur eins og
ég stundum þurft að gera hlé á þjónust-
unni eftir að hafa unnið með erfið mál
og verið skyldaður til að vinda ofan af
sér til að geta safnað kröftum að nýju,
þvi áfram stefnir allt og framundan bíða
enn önnur áföll og átök af ýmsum toga.
Ég finn að þegar ég er í þeim aðstæðum
að ég verð að standa mig, verð að sinna
fólki eða ganga til erfiðrar athafnar, þá
er ég ekki ein. Ég geng alltaf til athafnar
í bæn. Ég hef svo oft reynt það að bæn-
in hefur borið mig í gegnum athöfn. Það
er ljúf reynsla að finna það að bænin
heldur manni uppi.“
Hvemig Jinnst þér vera hlúð að prestum
á íslandi?
„Það eru hrikaleg viðbrigði að fara út
á akurinn eftir námið. Þar er maður allt
í einu einn og verður að spjara sig. Ég
sambandi. Það eru
gerðar mjög miklar
kröfur til prestsins.
Hann veit að hvenær
sem er geturkomið
kall sem hann verður
að sinna. Þd vílair allt
annað til hliðar.
var svo heppin að hafa góðan grann-
prest þegar ég byrjaði sem var fús að
leiðbeina. Hann bauð að hjálpa mér
eins og ég þurfti á erfiðum stundum.
Það var ómetanlegur stuðningur í
fyrstu. Háskólanámið er fræðilegt. Þar
vantar töluvert á það er viðvíkur starfl
prestsins.”
Hvemig er hægt að hlúa betur að
prestum?
„Ég held að það væri mjög vert að
kirkjan taki á þvi föstum tökum í náinni
framtíð hvernig hægt sé að styðja og
styrkja presta betur, efla þá í starfi og
hjálpa þeim að njóta sín betur. Hér er
ég að hugsa um prestinn sem sálu-
sorgara, þjón og manneskju sem vill
sinna sinni köllun, án þess að brenna
út. Prestum hættir til að brenna út v.þ.a.
þeir ná ekki að endurnýja sig. Sálu-
sorgun getur gengið mjög nærri þeim.
Það er mjög nauðsynlegt að prestur fái
tíma til að fylla á tankinn til þess að
hann geti gefið af sér eins og hann vill
og þarf. Ég held líka að mjög nauðsyn-
legt sé að huga að símenntun presta.
Þar þarf að verða róttæk breyting. Það
er töluvert um að prestar einangrist í
starfi sínu og dagi uppi í ákveðnu fari
sem þeir hafa alls ekki ætlað sér eða
viljað.
Hér þarf hugarfarsbreytingu gagnvart
prestunum og einnig á meðal þeirra
sjálfra. Ýmislegt væri hægt að gera ef
þeir vildu það sjálfir. Þvi miður hefur
skort á einingu á meðal okkar. Prestar
búa við afar mismunandi skilyrði til
starfa með tilliti til búsetu og samsetn-
ingar og stærðar prestakalla. Þess
vegna meðal annars getur svo margt
borið í milli þegar þeir tjá sig um störf
sín og líðan. Þá reynir á samkenndina
og skilning stéttarsystkinanna og þann
„kærleika sem breiðir yfir allt, vonar allt
og umber allt“. Þrátt fyrir allt sem að-
greinir eru við eitt í Kristi.
Fyrsta prestsverkið
Ég var svo heppin að fyrsta athöfnin
mín var skim áður en allt annað dundi
yfir. Þá vorum við nýkominn inn í prests-
bústaðinn á Norðfirði og sátum á kössun-
um og vorum að safna kröftum til að fara
út til að tæma gáminn með búslóðinni.
Þá hringdi ákaflega stoltur faðir dyra-
bjöllunni, fagnaði komu minni og sagði