Bjarmi - 01.03.1997, Page 26
Henning Emil Magnússon
Helgina 21.-23. febrúar fór hóp-
ur stúdenta á kristilegt mót í
Ölveri undir Hafnaríjalli. Kristi-
legt stúdentafélag er ekki eingöngu fyrir
þá sem bera sæmdarheitið stúdent,
þama vom til að mynda strætisvagna-
stjórar, húsvörður og flugvirki. En hóp-
urinn átti það sameiginlegt að vera á
hefðbundum stúdentsaldri. Helgin var
gott tækifæri til þess að uppbyggjast í
kristinni trú. Biblíulestrar, umræður,
kyrrðarstundir, hugleiðingar, söngur,
bænastundir og bókakynningar voru
meðal efnis. Viðfangsefni biblíufræðsl-
unnar og umræðnanna voru samfélag
hinna kristnu og sjálfsmynd kristins
manns. Staðurinn var tilvalin umgjörð
fyrir mannfögnuð af þessu tagi. Það
vekur ef til vill athygli að 40 stúdentar
leggi leið sína á kristilegt mót yfir
hávetur og það vekur kannski líka at-
hygli að eitthvað sé til sem heitir Kristi-
legt stúdentafélag! Tíðindamaður
Bjarma á mótinu velti þessum spurn-
ingum fyrir sér og leitaði upplýsinga hjá
formanni félagsins og einum almennum
þátttakanda af mótinu.
„Andrésaraðferðin" best
Helga Vilborg Siguijónsdóttir, formaður,
hvað er KSF?
Kristilegt stúdentafélag er félag sem
starfar meðal fólks á háskólaaldri,
þ.e.a.s. starf þess miðast fyrst og fremst
við fólk á aldrinum 20-30 ára en engum
er úthýst. Starfsemin er fjölbreytt. Fýrst
ber að nefna samverurnar á föstu-
dögum í loftstofunni, þar hittast KSF-
ingar og rækja trú sína með söng, bæn,
umræðum og biblíulestrum. Fýrirlestrar
eru haldnir í háskólanum og öðrum
skólum á framhaldsstigi í samráði við
nemendafélög skólanna og deildanna.
Nú í vetur hefur stúdentafélagið farið af
stað með bókaborð í háskólanum sem
hefur vakið athygli á félaginu.
Hversu gamalt er þettafélag?
Félagið á sér langa sögu, það er 60 ára
gamalt.
Er þetta þá ekki orðinn hálfgerður
steingervingur? Er KSF eingöngu nafn
sem ekkert líf er á bak við?
Stundum hefur starfsemin verið líflaus
og saga félagsins einkennist af miklum
sveiflum. Það hefur ekki alltaf staðið
undir merkjum sem evangelískt félag.
En það er líf í félaginu núna, það er
jákvæð þróun, allt stefnir upp á við.
Heldur þú að sá aldur sem KSF vinnur á
meðal sé erfiðari aðfást við en t.d.
gagnfræðaskóla- og
framhaldsskólaaldurinn?
Já, ég er ekki frá þvi. Fólk er gagmýnna
en það kemur þá á móti að það spáir
mikið í hlutina og vill fá svör.
Félagið hefur komið sér upp hefðbundum
starfsaðferðum sem þú hefur þegar talið
upp. Eru þær góðar? Myndu aðrar henta
betur?
Ég held að það sem er notað í dag sé
gott eins langt og það nær. Það þarf
samt að vekja meiri athygli á félaginu út
Tveir á uppleið.