Bjarmi - 01.03.1997, Blaðsíða 29
reyta öllu
Sr. Jónas Gíslason
Slíkt var gildi upprisu Jesú í augum Páls. Ef hún var ósönn
var kristinn boðskapur blekking og einskis virði. Þess vegna
heldur Páll áfram með fullvissu trúaðs kristins manns:
„En nú erKristur upprisinn frá dauðum sem frumgróði þeirra,
sem sofnaðir eru..Þuí að eins og allir degja fyrir samband sitt
við Adam, svo munu allir lífgaðir verða fgrir samband sitt við
Krist. “
Krossfestingin og upprisan eru óaðskiljanlega
samtvinnuð í boðskap kristinnar trúar. Það var
hinn krossfesti sem reis upp frá dauðum og það var
hinn upprisni sem hangið hafði á krossinum. Hvorugt má
vanta.
Hvers virði væri krossdauði Krists okkur ef hann hefði ekki
risið aftur upp frá dauðum? Einskis virði!
Hvers virði væri upprisa Drottins Jesú Krists okkur ef hann
hefði ekki fyrst dáið í okkar stað á krossinum? Einskis virði!
Aðskilið hvort frá öðru missir hvort tveggja gildi sitt fyrir
okkur. En sem upphaf og endir sama hjálpræðisverks hafa
báðir þessir atburðir úrslitaáhrif á líf okkar.
Hinn krossfesti og upprisni frelsari gaf líf sitt til lausnar-
gjalds fyrir marga. Hann vann sigur yflr valdi dauðans og gaf
okkur nýtt líf. Ekki aðeins eitthvað óljóst framhald hins jarð-
neska lífs heldur eilíft líf með sér hjá Guði.
Þetta er gildi páskanna fyrir okkur. Þeir gjörbreyta öllu. Við
eigum aðgang að allri náð Guðs fyrir trúna á hinn krossfesta
og upprisna frelsara Drottinn Jesú Krist.
Veitum honum viðtöku á þessum páskum. Felum honum
allt líf okkar og starf, þá munum við fá að reyna hið sama og
Sr. Jónas Gísiason, vígslubiskup.
lærisveinarnir forðum. Nýr morgunn mun renna upp í lífi
okkar. Við eignumst nýjan lofsöng og getum tekið undir með
trúuðum kristnum mönnum á öllum öldum:
„Kristur er upprisinn! Kristur er sannarlega upprisinn!"
Guð gefi okkur gleðilega páska!