Bjarmi - 01.12.2000, Side 33
halda aó ég leiti eftir einhverju oröi í Biblí-
unni og búi síðan til mynd, en það er ekki
sköpun fyrir mér. Sköpunin felst í því að
sjá myndina meó heilögum anda og síðan
að fá fýllinguna með orði
Guós. Þannig sé ég það.
Guð hefur gefið mér myndirn-
ar og orðið með myndunum
þannig að ég hef skynjað að heil-
agur andi er að tala.
Ég vinn meó „abstrakt" myndmál
Ef ég væri t.d. að mála Jesú að
ganga á vatninu, þá mála ég ekki
mann sem gengur um heldur
frekar það Ijós og þann kraft
sem fýlgir honum. I stjörnu-
myndunum vinn ég með
sköpunarkraftinn. Guð er skaparinn, hann
er fyrir ofan myndina og kemur inn í
myndina utan frá. Guð er fyrir utan. Ef ég
væri að gera mynd af því þegarjesús reisti
Lasarus upp frá dauóum, þá myndi ég
mála Ijósió sem kæmi meó snertingu
Guðs eða eitthvað álíka. Ég er eiginlega að
lýsa því sem er aó gerast í heilögum anda.
Þegar ég er að vinna myndirnar mínar þá
er ég alltaf að tala við heilagan anda. Ég
segi t.d.: „Sýndu mér hvort myndin er
búin.“ Ég er tala við Guð í öllu ferlinu.
Einhvern tíma þegar ég var að vinna að
sýningunni og var ekki komin með sýning-
arhúsnæði fannst mér Guó tala til mín og
segja aö sýningin eigi að heita: „Sköpun
Ferill Jennýjar
Lauk námi úr grafíkdeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands vorið 1977.
Dvaldi í Finnlandi og kynnti sér
finnska myndlist 1977—78. Fram-
haldsnám í grafík við Konsthögskol-
an í Stokkhólmi 1978—81. Stóð aó
rekstri Gallerís Gangskarar ásamt
öðrum listamönnum 1986 — 89.
Starfslaun myndlistarmanna til 6
mánaða 1988. Frá 1990 hefur hún
jafnframt því að vinna að myndlist
tekið þátt í ýmsum tilraunum á sviói
leiklistar, þar á meðal finnsk-íslenska
samstarfsverkefninu Huimaus —
Vrsel — Órar sem var sýnt í Finnlandi
og í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík í júní
1995.
(Úr sýningarskrá).
heimsins, í nafni Guðs, föður, sonar og
heilags anda.“ Mér brá og ég sagði við
Guð að það væri of mikið, ég væri svo ný í
trúnni og ég gæti því ekki farið af stað
með þessa yfirskrift. Það var þá sem Guó
sýndi mér krossinn inni í stjörnunni. Það
var svo sterkt.
Eitt sem vakti athygli við sýninguna var að öll
verkin voru innrömmuð í stjörnulaga ramma.
Hvernig er það tilkomið?
— Guð gaf mér þetta form í upphafi
þegar ég var aó skissa. Þetta er Davíðs-
stjarnan. Hún samanstendur af tveimur
þríhyrningum. Þríhyrningurinn er tákn
heilagrar þrenningar. Annar þríhyrningur-
inn vísar nióur, hinn vísar upp. Fæðing
frelsarans eóa koma hans á jörðina snýr
niður en faðir og heilagur andi eru uppi.
Sá þríhyrningur sem vísar upp táknar upp-
risuna og þá koma Guð og heilagur andi
niður. Guð hefur sýnt mér hvernig kross-
inn er inni í stjörnunni, hvernig hlutföll
krossins passa inn í Davíðsstjörnuna.
Jesús Kristur segir sjálfur: „Ég, Jesús, hef
sent engil minn til aó votta fýrir yður þessa
hluti ... Ég er rótarkvistur af kyni Davíðs,
stjarnan skínandi, morgunstjarnan.“ Rót-
arkvistur er tré. Hann er stjarnan skínandi
en einnig rótarkvisturinn inni í stjörnunni.
Og annað með stjörnuna. Hún er til vitnis
um aó Jesús sé fæddur. Þegar vitringarnir
sáu stjörnuna glöddust þeir mjög. Ég von-
aðist til þess með sýningunni að fólk yrði
Allar myndirnar á sýningunni
voru tengdar ákveðnum ritn-
ingarstað. Samtals voru 32
myndir á sýningunni sem
skiptust í níu myndaraðir.
Myndin hér til hliðar var í
myndaröð með yfirskriftinni:
...,,Ég er vegurinn, sannleik-
urinn og lífið" (Jóh. 14:6).
En texti myndarinnar er:
„ Vegur Guðs er lýtalaus, orð
Drottins er hreint, skjöldur
er hann öllum þeim sem leita
hælis hjá honum" (Sálm.
91:11). Á myndinni sést
hvernig vegur Guðs, sem er
frá upphafi, er varinn af
skildi hans. Fyrir utan má
skynja storminn en allir sem
leita hælis hjá Guði eru í
skjóli hans.
glatt. Það er litagleði í henni, lofsöngur.
Sýningin er lofsöngur til Drottins.
Hvemig voru viðbrögð fólks?
— Það kom fólk á sýninguna og þegar
þaó var búið að skoða myndirnar var eins
og ákveónar myndir færu að vaxa fram. Ég
skynjaói hvernig heilagur andi lauk mynd-
inni upp fýrir manneskjunni. Heilagur andi
var að tala í gegnum myndina til hennar.
Mér fannst það mjög skemmtilegt. Ég er
setja upp þessa sýningu eins og heilagur
andi talaói til mín.
Öll sköpun tilheyrir Guði og hann gaf
okkur sköpunarkraft. Guð er stöðugt aó
skapa. Ég trúi að öll sköpun sé frá Guði.
Hvernig hió illa blekkir og platar er allt
annað mál. Hið illa getur ekki skapað
neitt, sköpunarkrafturinn tilheyrir Guói,
hann tilheyrir ekki djöflinum.
Hvað verður um myndimar?
— Ég hef áhuga á að sem flestir fái tæki-
færi til að sjá myndverkin. Ég er tilbúin aó
sýna þau á fleiri stöðum og segja ffá sam-
starfinu við heilagan anda. Nokkrar mynd-
ir eru þegar seldar. Það veitir mér mikla
gleói þegar myndirnar eru blessun og
þjóna inn í líf þeirra sem eignast þær,
hvort sem það er inni á heimili, í kirkju,
safnaðarheimili eða opinberri stofnun.
33