Heima er bezt - 01.02.1955, Page 3

Heima er bezt - 01.02.1955, Page 3
Nr. 2 Heima er bezt 35 Bjarni Sigurðsson: Söguleg Reykjavíkurför — Fyrstu bankaviðskipti mín. - í sóttkví. — Það var árið 1906, sem fyrstu bankaviðskipti mín áttu sér stað. Þá um vorið flutti ég til Eski- fjarðar og fjölskylda mín. Efnin voru lítil, en skuldir engar. Þetta var á þeim tíma, er fyrstu mót- orbátarnir voru að ryðja sér til rúms. Við þann útveg voru bundnar vonir um betri lífsaf- komu, en róðrarbátaútvegurinn veitti, en hann hafði ég stund- að áður. Þá um vorið lögðum við í það svilarnir, ég og Tómas Magnússon, því nær alveg efna- lausir, að byggja okkur íbúðar- hús á Eskifirði og kaupa þar að auki 8 smálesta mótorbát frá Odense í Danmörku. Svo mikil var trúin þá og traustið á þenn- an því nær óþekkta útveg, að hinar Sameinuðu íslenzku verzl- anir lánuðu okkur, alveg um- yrðalaust, efnivið í all myndar- legt íbúðarhús, ásamt mótor- bátnum, og auk þess að mestu smíðalaunin til smiðsins, er hús- ið reisti. En vegna ástæðna, sem hér verða ekki raktar, kom mótor- báturinn seinna en gert hafði verið ráð fyrir og þar af leiðandi misstum við af bezta úthalds- tíma fyrsta sumarsins. Fyrir því gátum við ekkert greitt af skuld okkar um haustið. Verzlunar- stjórinn, hinn mætasti maður, skildi vel allar aðstæður okkar, en fór fram á það, að við reynd- um að fá okkur ábyrgðarmenn fyrir bankaláni í Landsbanka íslands, sem þá var eini bank- inn hér á landi, og ef það feng- ist, að grynna með því á skuld- inni við verzlunina. Okkur tókst að fá menn, sem taldir voru vel efnum búnir, til þess að ábyrgjast fyrir okkur bankalán, allt að 4 þúsund krónum, er þá þótti á útjöðrum landsins álitleg fjárhæð. Jafn- framt þessu fengum við sýslu- mann til þess að gefa lýsingu á ábyrgðarmönnunum og lántaka, sem var ég. Með þessi gögn í höndum lagði ég af stað til Reykjavíkur snemma í desem- bermánuði, algerlega ókunnugur öllum bankaviðskiptum og ó- fróður um allt, er að þeim laut, með 50 krónur í vasanum frá út- gerðarfélagi okkar, er nægja átti í allan kostnað við ferðina, þar til heim kæmi. Ýmsum þótti för þessi til Reykjavíkur þýðingarlítil, ypptu öxlum, brostu í kampinn og sögðu, að ég hefði þó allt af skemmtun af ferðinni og fengi að kynnast bankastjóranum, Tryggva Gunnarssyni, ásamt meðstjórnendum hans, séra Eiríki Briem og Kristjáni Jóns- syni, dómstjóra. En ekki töldu þeir líklegt, að mér tækist að kría út úr þeim peninga. Þeir væru varkárari en svo, að þeir fleygðu þúsundum króna i ó- kunnuga menn. Satt að segja óttaðist ég að hrakspár þeirra mundu rætast og ferðin verða árangurslaus. En ferðin var nú líka gerð til þess að þóknast lánardrottnum mínum eystra og sýna þeim, að viljinn til þess að sýna góð skil, væri fyrir hendi. Og á stað lögðum við með „Botníu“, ég og ferðafélagi minn, kunningi minn af Austurlandi, dugnaðarforkur hinn mesti, úr- ræðagóður og skemmtilegur, en hneigður fyrir áfenga drykki. Þegar við komum suður fyrir landið var suðvestan bræla, þungt í lofti og áhyggjur um afdrif erindis míns ollu því, að ég var fáskiptinn og þögull. Kom þá ferðafélagi minn til mín, kvartaði um það, hvað ég væri dapur og daufur í dálkinn og spurði mig, hvort við ættum ekki að skjóta saman í eina flösku af brennivíni til að hresa upp samvizkuna og draga úr drunganum og dífum þeirrar „botnóttu“. Ég gerði þetta strax og fann, að nauðsynlegt var að viðhalda glaðværð þessa fjöruga félaga míns. Á auga- bragði kom hann með flöskuna og smakkaði ég á henni, en aldrei eftir það. Við vorum á öðru farrými. Rétt á eftir kom höfðingi af fyrsta farrými, sem ég þekkti og bað mig að tala við sig. Bauð hann mér inn á fyrsta farrými. Ég var tregur til að ganga þar inn á meðal prúð- búinna manna. Að vísu var ég í þokkalegum fötum, en klæddur í peysu og án kraga og háls- bindis. Ég gat þó ekki neitað kurteisu boði og dvaldi ég þar inni alllengi í góðu yfirlæti. Næsta morgun kom ferðafé- lagi minn til mín og fór fram á það, að við skytum saman í eina flösku til þess að vera í höfuðstaðarskapi, þegar til Reykjavíkur kæmi. Lét ég að ósk hans, en eins fór um þessa flösku og hina. Ég smakkaði á henni, en sá ekki flöskuna eftir það. Þegar til Reykjavíkur kom, höfðum við hvergi höfði okkar að að halla, því vegna fjár- skorts voru engin tiltök að dvelja á gistihúsunum. En ferða- félagi minn var þá ekki lengi ráðalaus. Hann útvegaði okkur þakherbergi í Miðstræti 10. Vistlegt var það ekki, ómálaðar, berar þiljur, ekkert rúmstæði, ekkert borð og enginn stóll. En eftir skamma stund hafði ferða- félaga mínum tekizt að útvega járngrindarúmstæði með hálm- dýnu, kodda og yfirsæng. Okkur var því vel borgið. Mat keyptum við hjá Pétri Ingimundarsyni og var fæðið bæði gott og ódýrt. Daginn eftir lagði ég á stað í bankann og kom þar nokkru áður en opnað var viðtalsher- bergi bankastjórnarinnar. Bið- herbergið var gangur og í hon- um tveir stólár. Ég settist á annan stólinn og beið þar til bankastjórnin opnaði. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég steig fæti mínum í banka og er því ekki að leyna, að ég var bæði ótta-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.