Heima er bezt - 01.02.1955, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.02.1955, Blaðsíða 7
Nr. 2 Heima er bezt 39 ]'rá liðinni tíð. Bökunarhúsið á Eyrarbakka. A seinni hluta aldarinnar sem leið bœtti Lejolii kaupmaður nýrri deild við verzlun sina. Var það bökunarhús, eða „bakari", eins og það var nefnt i daglegu tali. Fyrsti bakarinn var danskur, en honurn til aðstoðar voru islenzkir menn, er lcerðu iðnina hjd hon- urn. Þótti stofnun brauðgerðarhússins hið þarfasta framtak á sinurn tima. — í fyrstu voru aðallega bökuð rúgbrauð, þó að kaffi- <>g hveitibrauð vœru auðvitað á boðstólum jafnframt. Bakarinn hafði mikið að starfa um verliðina, þvi að fjöldi sjómanna hélt til á Bakkanurn, Þorlákshöfn og i Selvogi. Þurfti bakarinn að vera viðbúinn komu sjómanna, er komu flestir síðla i febrúar. A ver- tiðinni kom það oft fyrir, að um 1000 brauð á dag seldust. Rúgbrauðin vógu 6 þund og voru lengi seld á 50 au. hvert. — Var munurinn mikill eftir að bökunarhúsið kom, því að vermenn kvörtuðu oft yfir því, að skrinubrauðunum hætti við að mygla, þegar frá leið. landi. Ég mundi þá eftir því, um leið og ég gerði mér grein fyrir langri veru í sóttkví, að ég hefði í barnæsku fengið veiki, er leiddi til rauðra bletta á líkama mín- um, sérstaklega um miðbik hans og rassinn. Það virtist togna á kýmnisdráttum í andliti lækn- isins. Sagði hann, að þetta væru mjög miklar líkur til þess, að ég hefði fengið veikina og skildist mér, að honum væri annt um það, að ég slyppi eins og hinir við sóttkvína. Það var þá gáski, ásamt ertni, sem kom mér til þess að breyta drengskaparvott- orði læknisins. Sauð ég nú sam- an vottorð um það, að ég myndi eftir veiki, er olli rauðum blett- um á líkama mínum og lagði drengskap minn við, að þetta væri rétt hermt. Ekki get ég sagt, að mér fyndist læknirinn sérlega ánægður með vottorðið, en það dugði og ég slapp ásamt hinum úr sóttkvínni. Þessi óþægð mín, að því er snerti undirritun vottorðsins, olli því, að ég varð seinastur þeirra, er fóru úr sóttkvínni. Og nú var mér fylgt í hús Clausens gamla, þar sem hann barkaði síldarnætur. Það var uppi á lofti í húsinu. Þar hafði verið komið fyrir einu heljarstóru keraldi, sem síldarnætur voru litaðar eða barkaðar í; til varnar fúa. í þessu mikla keraldi hafði smitunar- hættan verið þvegin af þeim, sem úr sóttkvínni komu. Og hér átti að þvo hana af mér lika. Ég skimaði um eftir umsjónarmanni „þrifabaðsins“ og kallaði til hans. Hann kom út úr einhverju skoti á fjórum fótum — tveir fætur dugðu ekki. Þeir höfðu verið svona veitulir, sem hann „hreinsaði“. Ég steypti mér ofan í keraldið og að því loknu fór ég heim skellihlæjandi. Bjarni Sigurðsson.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.