Heima er bezt - 01.02.1955, Qupperneq 11

Heima er bezt - 01.02.1955, Qupperneq 11
Nr. 2 Heima er bezt 43 Stefán Hannesson Litla Hvammi: Vandamál uppeldisins Er góðum börnum að fækka? Það er sagt, að nú á tímum séu góð börn miklu færri en áður. „Unglingarnir eru langtum siðlausari og verri nú en gerðist í okkar ungdæmi,“ segir gamla fólkið. Og sú saga fer um allar jarðir, að obbinn af þeim sé hortugir ótugtar angar. Þeir kýti, rífist og skammist við sína nánustu og hafi allt á hornum sér. Hámark allra verstu bernsku- og æskubreka er líka sagt að sé í kaupstöðum og kauptúnum landsins og út frá þeim. Annars eru hvorki Öræfin né Grímsey undanskilin. Hvað er hæft í þessu? Er hlutfallstala góðra barna alltaf að lækka? Eignast foreldr- ar nú yfirleitt verri börn en áð- ur? Er siðmenning þjóðarinnar að fjara út? Því er haldið fram. Hæglátir og skikkanlegir menn reka hnefann í borðið og stappa því til áherzlu, að æsku- lýður landsins dandalist blátt áfram í spillingarbendu, og láti sér ámæli eins og vind um eyr- un þjóta, víða um land og þó einkum út frá kaupstöðum og þorpum. Því er miður að eitthvað er hæft í þessu, Það er ekki tómt álas. En — sé það ekki tilhæfu- laust, ekki tómt álas, hver á þá sökina? Enginn gera að því kann, út. af hverjum fæðist hann. Ekki verða börnin sökuð. Börnin velja sér ekki foreldra, systkini eða aðra vandamenn. Litlu ráða þau um hvaða leik- systkini þau fá. Ekki velja börnin sér kennara eða presta, er sýsla um undirbúning hugarfarsins, á- samt heimilum fram á ferming- araldur. Þau hafa engin afskipti af því, sem þessar þrjár stofnan- ir: heimili, skóli og kirkja eru skyldug að gera fyrir þau í bernsku og æsku. Börnin eru seld undir uppeldisokið. Ef það fer vel, þá er það öðrum að þakka. Ef það meiðir og fer illa, þá er það öðrum að kenna, Við berum ábyrgðina. Skyldan er óumflýj- anleg hjá þessari þrenningu. Þá verður að sækja til saka, ef börnin verða gallagripir, sem ber að gæta þeirra. Börnin eiga okkur að og eru rétthá. Skyldur verða ekki lagðar þeim á herðar. Hvernig sem þau láta, ber okk- ur að líta þau réttu auga, jafn- vel þó að við sjáum þau í hras- andi spillingarbendu. Það er okkar sök. Þá hafa einhverjir reynzt þeim illa. Börnin eru eins og viðtæki. Hver sakar viðtæki um glymskrattagang, illa flutt kvæði eða flámæli í ræðu, sem berst frá því. Það gerir enginn. Það þykir of heimskulegt. Börn gera sem á bæ er títt. Hann ber ábyrgðina og nú ekki aðeins bærinn, heldur einnig að mest- um hluta líka þorpið, kauptún- ið, kaupstaðurinn, borgin, vegna þess, að nú eru flest börn orðin í þessu sambýli. Helmingur allra barna er þá og þegar seldur undir syndir borgarinnar, og nýtur áhrifa hennar til vaxtar og þroska, það sem þau ná. Börnin endurvarpa því, sem 1 umhverfinu gerist, því sem þau sjá, heyra og læra þar. Nú, og hver ber svo ábyrgð- ina? Þeir, sem hafa stigið fæti á land freistinganna, vita að þar úir og grúir af fullorðnum ginn- ingarfíflum. Það sýnist ekki geta hjá því farið. Fullorðna fólkið hnýtur og hrasar, dettur, fellur og steypist um ásteytingarsteina, eins og blindur gáleysingi um bæjarþröskuld, eða það rennir sér fótskriðu og kútveltist ofan af hneykslunarhellum veraldar- innar. Sérhver sá er hefur sjón og heyrn, hefur þetta á vitorði. Er nokkur snefill af viti í því, að heimta meiri sjálfsgát og að- gætni af bömum og æskulýð en af eldra fólkinu? Það væri barnalegt. Meira að segja mjög fávísleg ofætlun að krefjast jafnmikillar ratvísi og siðfestu af börnum og foreldrum þeirra. Hitt er annað mál og er rétt að segja það samstundis, að það veitti sízt af því að börn væru gædd þeim þroska að vopn freistinganna bitu ver á þau en margan þann, sem kominn er til ára. Það er vitanlegt öllum að hjá freistingum verður ekki komizt. Þó er skylt að gera það sem auðið er að bægja þeim frá börnum og æskulýð svo sem hægt er. „Eigi leið þú oss í freistni“ er beðið um allar jarð- ir, upphátt og í hljóði. Varnir gegn freistingum eru góðar það sem þær ná, en þær ná skammt. Hitt er þess vegna mest vert að vinna af fremsta megni að því að gera börn og unglinga ónæm- ari og öruggari fyrir hrösunar- hætti af snertingu freistinganna og draga á þann hátt úr illum afleiðingum. Og komum við hér að ábyrgð- inni? Það er ábyrgðarhluti að láta brunninn standa opinn, þar sem óvitar leika sér, eða skilja börn, með eldspýtur að leikfangi, eftir hjá hefilspónahrúgunni, í smíða- húsinu. Hver getur þvegið hend- ur sínar hreinar, ef barn drukknar eða brennur af þeim sökum? Og þetta er þó ekkert annað en óaðgætni. Hún getur stundum orðið nokkuð afleið- ingarík, óaðgætnin. Brunnurinn er hættulegur og eldurinn er geigvænlegur. En því miður get- ur margt fleira grandað barni og unglingi. Margur hlutrænn voði og auk þess er þar einnig „fyrir sól að sjá,“ margir hugrænir á- steytingarsteinar, andrænar hneykslunarhellur, margar þess- konar vakir sem þau geta kom- izt í og valdið því að þau síðar,

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.