Heima er bezt - 01.02.1955, Síða 12

Heima er bezt - 01.02.1955, Síða 12
44 Heima er bezt Nr. 2 ef til vill ævilangt, eigi í vök að verjast. Málið læra börnin af því að það er fyrir þeim haft. Að því er líka keppt. En þau læra líka illmælgi og bakmælgi um náungann, getsakir, aðdróttanir, lítilsvirðingu og fyrirlitningu fyrir öðrum mönnum fyrir þá sök að þetta er haft fyrir þeim. Því læra börn hrekkvísi, lyga- hneygð og þjófnað, að þetta er á einhvern hátt innrætt þeim, beinlínis eða óbeinlínis. Því sýna unglingar virðingarleysi fyrir lífsreglum og siðaboðum, lögum og rétti, að þeir nema það af öðrum. Því læra og leika margir unglingar dónahátt, daður og drabb, að þau sjá þetta og kynn- ast því sér til minnkunar. Það vilja engir heilbrigðir unglingar verða ræflar og rytjur mannfélagsins. Þó verða sumir það, allt of margir fyrir þá sök, að þeim er á einhvern hátt hrint út í svívirðinguna eða beinlínis 1 eidd út á glapstigu af þeim eldri. Sannast þar að grísir gjalda, gömul svín valda, hvort sem það er gert af ásettu ráði eða á að heita óviljandi. Eldri kynslóðin ber ábyrgðina og nánustu vandamenn barna og unglinga: foreldrar, kennar- ar og prestar, mestan þunga hennar. Undan því komast þeir ekki. Stofnanirnar: heimili, skólar og kirkja eru, að guðs og manna lögum, skyldug til þess að standa á verði, gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að koma unglingunum til mann- dómsþroska, vaka yfir því að þeir læri að verja viti sínu og kröftum, sér og öðrum til sæmd- ar og heilla. Þessar stofnanir eru það og út- varpið, sem hefur mest áhrif á börnin og þeim er ætlað það sérstaklega. Og er þar bæði um hljóðvarp og sjónvarp að ræða. Þau heyra og sjá það sem sagt er og gert og endurvarpa því svo í tíma og ótíma, fyrst sín á milli og síðar út til fólksins í orði og verki. Orð og athafnir eldri kyn- slóðarinnar eru hráefnið, sem æskulýðurinn vinnur úr. Sumt af því, sem hann sér og heyrir, er tvírætt og torskilið, þá kem- ur ímyndunarafl óvitringanna til sögu með misjafnlega góðum árangri fyrir þá og umhverfið, reka þeir sig stundum illa á það sjálfir, skynja, skilja og finna hætturnar og verða á báðum áttum eða alveg siðferðilega áttavilltir. Þá geta unglingarnir gefið okkur þetta í nefið: En hverju er varpað, úti og inni, í orði og verki fyrir mig sem annað barn? í ábyrgð þinni það er svo þú mátt vara þig. Ég hrifist get af lygalaupum og lokaráðum utan frá, og fyrir heimsins hrossakaupum ég húsráð fæ, sé róið á. Þeim er vandfarið, sem vaxn- ir eru til vits og ára. Þeir bera ábyrgðina. En — nú skulum við þó snúa við blaðinu um stund og reyna að skella skuldinni á börnin, unglingana, æskulýðinn, gerast talsmenn okkar sjálfra. Okkur mun ekki veita af því, svo höll- um fæti stöndum við. Æskan er staðin að ýmsu, um það verður ekki þráttað. Á hana eru margar sannaðar sakir og ekki allar léttar. Unglingar hafa brotizt inn í læst hús, í læstar hirzlur og stolið svo miklu sem þeir gátu, svo það er hægt að benda á einn og einn og segaj: Þetta er þjófur, stórþjóf- ur. Þeir hafa þrætt fyrir gerðir sínar, sannir að sök, gerzt lyg- arar. Það kalla menn blygðunar- leysi. Þverlyndi þeirra við for- eldra og vandamenn er talið að fari mjög í vöxt, þeir standi uppi í hárinu á forelrum sínum, jafnkýti þeim, rífist við þá, van- þakki þeim, heimti allt með sjálfskyldu, þyki allt gott sjálf- sagt, of lítið/ og ófullkomið; leiki sér að því háttalagi, sem „ó- lukku og slys að launum fær.“ Einn og einn unglingur .hefur verið staðinn að herfilegustu skemmdarverkum, af kala við nágranna eða sambýlismenn for- eldra sinna, leikið sér að því að brjóta rúður í húsum eða stinga nöglum og vírspottum ofan í túnið þegar komið var að slætti og glaðzt yfir rúðulausum glugg- um og brotnum ljáum. Sams- konar náungar hafa lætt járn- um inn í mótorvélar óþekktra bílstjóra í þeirri von að vélin brotnaði, er bíllinn færi í gang og ekki dæmalaust, að einn og einn slíkur fugl bisaði við að reka hvassydda gadda ofan í vegi, þar sem þeir gætu eyðilagt dekk og slöngur. Og mjög merk kona sagði mér þessa sögu af dreng fyrir innan fermingu: Hann kom eitt sinn á bæinn, þar sem hún bjó. Drengurinn var spurður frétta, því að hann var talsvert langt að kominn. Hann hafði þá sögu að segja, að nágranni hús- bónda síns, hefði misst aðra kúna sína, hún hafði farið ofan í fen og drepizt þar. Saga lík þeim er gerst hafa stöku sinn- um. En konan furðaði sig mest á að horfa á drenginn meðan hann var að segja frá þessu, hann hafði allur ljómað af á- nægju og ekki stillt sig um að hlægja gleðihlátur yfir þessu, sýnilega glaður yfir því að geta flutt svona kærkomnar fréttir. Alþekkt er það, hve eitt og eitt barn, innan við fermingu, er leikið í því að sjóða undir, lát- ast hvergi vera í fundið, þótt það sé potturinn og pannan í verstu óknyttum. Og hvað þau hafa gaman af því að leiksyst- kinin verði fyrir ákúrum og refsingum. Lengi mætti halda áfram að telja upp syndir unglinganna. Þær eru litlu færri og lítið fá- breyttari en syndir annarra og líkjast þeim um flest. Hvað er þeim þá til varnar? Eiga þau ekki að fá makleg málagjöld? Jú sannarlega eiga þau að fá makleg ámæli. En við skulum þó líta á þetta synda- registur ofurlítið nánar áður en við göngum frá þeim. Við minnumst fyrst á inn- brotsþjófnað. Það er gróft orð. Innbrotsþjófur er gróft óorð á manni. Það er nokkuð hættuleg- ur leikur að ávinna sér það. Geri maður það á barnsaldri þá verð- ur okkur einna fyrst á að minn- ast vögguvísu Leirulækjar-Fúsa: Varastu þá vits fær gætt, til vonds að brúka hendur o. s. frv. En oftast mun það og getur verið svo að foreldrar og aðr- ir náskyldir þessum vandræða unglingum eru nálfrómar mann- eskjur. Að minnsta kosti ekki óráðvandari en almennt gerist. En þetta framferði er að áger- ast og helst í bæjunum. Það er

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.