Heima er bezt - 01.02.1955, Page 13

Heima er bezt - 01.02.1955, Page 13
Nr. 2 Heima er bezt 45 Bréf frá Stephani G. Stephanssyni athugavert. Þar er mestur soll- urinn og hættast við að þetta sé fyrir þeim haft, unglingunum, á mjög áberandi hátt. Bíómyndir sumar hafa þótt nokkuð vísar til þess að kenna rupl og rán, innbrot og þjófnað. Nautnalífið með reykingar, áfengi, öldrykkju og sælgætisát að inngangi, hefur vaxandi vasaþarfir í för með sér og sé lítið í vasanum, en þarf- irnar margar, jafnvel þótt vit- lausar séu, þá leggja ungling- arnir kapp á að gera fræðsluna (sem líka var keypt) sér hag- nýta, fræðslu kvikmyndanna. Siðgötugt samkvæmislíf hefur margs konar sóun í för með sér, meðal annars í fjármálum. Að sjálfsögðu er þar oft að- stöðumunur, eins og annars staðar í hóp karla og kvenna. Ýmsir eru með fulla vasa, þótt unglingar séu, að minnsta kosti öðru hvoru. Taki svo fyrir þann austur, þá verða unglingarnir eirðarlausir og sízt betur á sig komnir en hinir, sem eru litlu vanir. Af þessum sökum getur svo myndast félagsskapur og hann ekki af betra tagi. f þann hóp eru ýmsir fullvaxnir kæru- leysingjar vísir til að slást. Af því leiðir, að mörg móðir hefur getað tekið undir orð Rispu: „en hann lagði lag sitt við fanta, sem leiddu hann glapstigu á.“ En það þarf ekki alltaf til. Lítilsvirðing fyrir öðrum mönnum er oft heimilisiðnaður, grár leikur, græskulaus oft en hneysklar smælingjana. Glaðlegt samtal heimafólksins um óhöpp náungans hefur sömu áhrif á börnin, þeim fer að þykja þess konar tíðindi fagnaðarefni. Brotin sláttuvél hjá náungan- um, notalegar fréttir. Brotni vél- in hans pabba, er allt annars eðl- is, hálfgerð vandræði. Þetta og margt líkt þessu læra börnin eins og móðurmálið, sem er fyr- ir þeim haft. Þegar svo er í pott- inn búið, er ekki von á góðu. En þannig er það, því miður, þannig í pottinn búið. Umhverfi barnanna er alltaf og alls staðar öðrum þræði byggt þessum púk- um og smáskröttum. Freistingunum er beinlínis tildrað og stillt upp við götu Þegar St. G. Stephansson skáld kom hingað til lands í boði Umf. íslands, sem mun hafa verið ár- ið 1917, ferðaðist hann nokkuð um sveitir þess. Meðal annars fór hann norður í Strandasýslu, er hann kom úr förinni um Norðurland. Varð þá að ráði að Jósep Jónsson, bóndi á Melum í Hrútafirði, réðist til fylgdar með honum norður til Hólmavík- ur. Þaðan mun Stefán hafa far- ið til ísafjarðar. Eins og meðfylgjandi afrit af bréfi Stephans til J. J. ber með sér, hefur svo talazt til með þeim, að hann sendi Jósep línur, þegar heim kæmi, meðal annars til að gefa honum sýnishorn af rithönd sinni. Þar sem þetta bréf hefur hvergi komið á prent, þykir mér rétt að forða því frá glötun með því að bjóða „Heima er bezt“ það til birtingar. G. Þ. Markerville Alta, Canada. Marz 11. 1918. Hr. Jósef Jónsson. Góðvinur. Þökk fyrir fylgdina, bæði þín sjálfs í sumar, og vís- unnar þinnar vestur núna í för með bréfi til Finns bróður þíns. Hef þig með mér heimanað, héðan úr minni kytru, aftur að finna veg og vað vestr um Fjörð og Bitru. Þó í töf sé fargað fljótt fögrum sumarmorgni, Komumst við enn um ágúst-nótt onað Fj arðarhorni. barnanna, eins og lostætum á- vöxtum eða skartgripum innan við gluggarúður stórverzlana. Og þarna hefur hann það til enn, sá gamli, að glotta og segja: „Allt þetta skal ég gefa þér ef þú fellur fram“-------því fer oft sem fer. Það er enginn leikur að sjá við þeim gamla. Það er nokkuð skrítinn blettur austur í brekku. Ég get notað hann fyrir glugga líkan þeim, á Annars eru þessar línur bara til að efna það, sem þú mæltist til. Alltaf mundi ég það, en komst þó aldrei að því. Samt hefði það orðið einhverntíma. Ég var alltaf eins og á eilífum flótta. Hérna er þá höndin mín, og ekki merkur minjagripur! Letrari er eg listasmár, leikur ei þar við höppin. Svo er á gömlum klaka-klár klárvíg skrifta-löppin. Við fréttum vandræði og vonzkutíð af ykkur nú, heldur en hitt. Maður nærri iðrast eftir að hafa komið til að eyða. Hjá okkur, rétt hérna, engin vand- ræði, en vetrarríki mikið og ekki svo afléttilegt enn. Nærri miður marz og auðn yfir allt, af nærri tveggja feta fönn. Brúna-sigi á austan átt, ei er í hlýjum föllum. Úfið strýið strýkur hátt stormur á skýjum öllum. En samt fer nú óðum að stytt- ast inn í „betri heim.“ Berðu kveðju mína til Borð- eyrar, komir þú þar, heimilum þeirra símastjóra og sýslumanns. Fyrirgefðu fátækt blað! Fari þig þarna vel um. Eg fer ekki að þrátta um það, þó þar heiti á „Melum“. Vinsamlega Stephan G. Stephansson. vissan hátt, sem við vorum að fara hjá og þó helst ekki nema á góðviðriskveldum. Það, sem ég tala þar (og þá) fullum rómi, kemur til mín aftur orðrétt. Ef ég bölva, þá er þar tvíbölvað, ef ég blessa, þá er þar tvíblessað. Svo hefur þetta verið i mörg ár. Fyrir 40 árum varð ég þess ekki var og fyrir 60 árum þori ég að fullyrða að bletturinn var ekk- ert skrítinn.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.