Heima er bezt - 01.02.1955, Side 22

Heima er bezt - 01.02.1955, Side 22
54 Heima er bezt Nr. 2 daginn og gekk vel, þótt hliðar- vindur væri. Kaldi var, en þó sumt af fólki hressara en dag- inn áður. Stefnan norðan við vestur og gangurinn 250 mílur. Föstudaginn þann 18. Bjart veður um morguninn og bakkar í kring, sem þegar á daginn leið, birti til norðvesturs, svo að bjart varð ofan að hafsbrún og heið- skírt í fyrsta sinni á leiðinni. Vindurinn af sömu átt, nokkuð hvass og kaldur um morguninn, en lægði heldur seinni partinn. Voru flest segl við höfð á skip- inu og gekk vel. Um kvöldið gekk vindurinn til vesturs, hægur á móti. Sást þá stór ísjaki á stjórnborða og fáeinir smærri litlu síðar. Líka sáum við þá dampskip á eftir okkur og segl- skip, sem kom norðvestan að og stefndi í landsuður. Fór damp- skipið framhjá okkur um dag- setur. Eftir sólarlag sáum við fyrst votta fyrir landi í hávestur, eftir kompás, og eftir dagsetur sáum við þar vita. Var það land- norður hornið af Nýfundnalandi. Hafði gengið þann sólarhring 75 mílur. Laugardaginn þann 19. í birt- ing kl. 6 um morguninn vorum við komin inn á fjörð (eða sjávarbugt), sem er milli Labra- dors og Nýfundnalands, ekki mjög breitt fyrst, en breikkar, þegar inn eftir kemur, og er líkt til landa að sjá og Útskaga heima, þegar menn eru þar á djúpmiðum að austan. Kom þá sól upp kl. 6 V2. Var heiðríkt fyrst um morguninn og kalt mjög, en þykknaði fljótt. Labrador er að sjá hrjóstrugt land og líkast til að sjá landslag og þegar menn eru á Ketubrúnum og sjá upp á Útskaga, er það mjög líkt til að sjá Hraunshæðum, sem hækka nokkuð, þegar fram eftir kemur, og eru með hæðum og slökkum á milli. Ekki er gott að sjá, hvernig þar er jarðvegur, en líkast er til, að þar sé grýtt og klöppótt land. Þegar kemur inn með ströndunum, sjást lágir fjallatindar og slakkar í milli vestar í landið. Lítið sáum við til mannabyggða á þessari strönd, en dimmt var líka upp yfir. Þó sáum við á einum stað turn og þar skammt frá húsa- þorp og stórt skip. Nýfundna- land, sem var að suðvestan við okkur og við fórum nokkuð nær, er lágur tangi nyrzt, og þar sá- um við vita um morguninn. En norðarlega á austurströndinni eru hæðir nokkrar flatar ofan, annars er landið allt mjög lágt, en hækkar, þegar suður eftir kemur. Þar sáum við votta fyrir skógi og fáeinum húsaþorpum. Vindurinn var hægur, suðvestan um morguninn, en hvessti, þegar kom fram á daginn, var þykkt þokuloft og sá ekki nema stund- um til Nýfundnalands, en aldrei til Labrador seinni part dags- ins, enda breikkar svo mikið til iands að sjá. að ekki er víst það sjáist, þótt bjart sé. Stefnan var þann dag undir hæsta striki fyrir sunnan vestur, en gengið hafði 150 mílur. Sunnudaginn þann 20. Þoku- loft fyrst um morguninn, en gerði svarta þoku, þegar fram á daginn kom, en birti aftur lít- ið eitt um kvöldið. Vindurinn hægur í móti fyrst, en gekk nokkuð til suðurs seinni partinn, svo að segl urðu notuð. Ekkert sást til lands, en vita sáu menn um kvöldið í þokunni, á eyju, sem framhjá var farið á hægri síðu. Hafði þá gengið 180 mílur. Mánudaginn þann 21. Var svartaþoka og hvasst veður fyrst um morguninn, svo birti lítið eitt, svo að til lands sást í suðri, dimmdi síðan aftur með rign- ingu, en eftir miðjan dag birti upp, sást þá land á vinstri hlið (annað en Nýfundnaland). Var það land víða með lágum fjöll- um, og voru dalir á einum stað upp í landið, en hlíðarnar voru dökkleitar að sjá, hugðu menn þær vera skógi vaxnar, því að uppi á fjöllunum sáust þeir bera við loft. Hér og hvar voru bleik- leitir blettir, sem menn ætluðu vera grassléttur. Húsaþorp sáust þar víða með sjónum, og voru þau öll hvítleit að sjá.1) Marga fiskibáta sáum við þar skammt frá landi og líka nokkur stærri skip á ferð. Stefnan var undan hæsta striki fyrir sunnan, norð- vestur með ströndinni. Vindur- inn var hægur á móti um miðj- an daginn, en hvessti aftur um !) Neðanmáls stendur: „Þetta var Que- becströndin." kvöldið. Var þá farið nær landi. Sáum við þá, að skógurinn var víða ofan að sjó, nema þar, sem brattast var að sjónum, þar sá- ust lágir klettar hér og hvar. Sums staðar voru húsaþorp, helzt við dalamynni, og var langt nokkuð milli þeirra sums staðar. Hvergi sáu menn grasblett nema þar sem rutt hafði verið kring- um húsin. Gangurinn hafði verið 160 mílur. Þriðjudaginn þann 22. var heiðskírt veður um morguninn. Land hið sama á vinstri hlið, en nokkuð öðruvísi lagað, því láglent var nokkuð með sjónum, en smáhækkaði upp á landið. Var það þó lægra en fyrri dag- inn, með holtum og ásum og í stöku stað mátti kalla hóla og fell. Svo mátti heita sem sam- föst byggð væri með allri strönd- inni og sums staðar nokkuð upp á landið. Voru þar víða stór svæði af yrktu landi og eins á strönd- inni. Alls staðar var skógurinn eins og fyrri daginn, þar sem ekki var bygging nálæg. Á hægri hlið sáum við líka land langt í burtu, var það lengra frá að sjá en Innstrandir af Skagaströnd og líka lægra með litlum reyr- hæðum að ofan. Dampskip fór framhjá okkur um morguninn, og mörg seglskip sáum við um daginn. Stefnan var skammt fyrir sunnan vestur og hæg gola á móti, þegar vestur eftir kom, þéttist byggðin og breikkaði upp í landið, líka voru grassléttur og akrar, en fremur lækkaði landið, nema á einum stað var allhátt fell suður í landi. Ströndin var mikið bein og óvog- skorin, svo hvergi sást sker eða tangi. Kom þar framan af ströndinni hafnsögumaður klukkan að ganga 4 e. m.1) Var þá beygt frá landi aftur, norð- vestur á flóann og farið lengra frá landi. Þennan sólarhring hafði gangurinn verið 150 mílur. J) Það er því vafalaust rangt, sem laus- lega er drepið á í Sögu Isl. í Vesturheimi, II. b. og líklegt talið, að Jóhannes Arn- grímsson prests að Bægisá hafi komið um borð með hafnsögumanni. Beið hann í Halifax, þar eð skipsins var fyrst von þang- að og hitti því ekik fólkið fyrr en í Tor- onto, var þá Sigtryggur orðinn hlutskarp- ari. Sbr. þessa frásögn hér síðar.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.