Heima er bezt - 01.02.1955, Page 23

Heima er bezt - 01.02.1955, Page 23
Nr. 2 Heima er bezt 55 Frá liðinni tíð. Aðalstræti. Aðalstrœti i Reykjavik er langelzta gata bœjarins. Þar voru „Innréttingar“ Skúla fógeta, og einhversstaðar þar i grenndinni er hatdið að bær Ingólfs hafi staðið. Jafnframt þvi að vera elzta gatan, var Aðalstreeti aðalgata bcejarins, eins og nafnið bendir lika til. En Reykjavik var eitt sinn danskur kaupstaður og i skjölum frd fyrri hluta 19. aldar er gatan nefnd „Hovedgaden“ eða „Adel- gaden“, en það er varla til sá srnábœr i Danmörku, að hann liafi ekki „Adelgade“. Fyrsta nafnið á Aðalstrreti er raunar „Klub- gaden“, því að þar stóð „Klúbbhúsið“ þar sem helztu borgarar brejarins mœttust á kvöldum til skrafs og ráðagerða um landsins gagn og nauðsynjar. — Myndin hér fyrir ofan er af nr. 12 i Aðalstrreti (luisi frú Augustu Svendsen). Uti fyrir dyrum stendur einn af þekktustu borgurum brejarins, Þorvaldur Björnsson lögregíuþjónn. Þorvaldur var sonur séra Björns Þorvaldssonar, prests að Þönglabakka, Stafafelli og Holti undir Eyjafjöllum. Sonur Þorvaldar er hinn nafnkunni ferðagarpur, Stefán Þorvaldsson póstur, er lengi bjó á Kálfafelli í Fljótshverfi og fór ótal póstferðir yfir Skeiðarársand og kornst stundum i hann krappan, eins og getur í Sögu landpóýanna. Stefán lifir enn i hárri ‘öli. — Þorvaldur var lögregluþjónn í Reykjavík frá ISSS'—1917. Hann andaðist áirið 1925. Hafði hann allra manna lengst gegjit lögreglumannsstarfi i höfuðsaðnum. Miðvikudaginn þann 23. var þykkt loft um morguninn og vindurinn hægur á móti; sama land á vinstri hlið, líkt lagað og áður, nema nokkuð hálendara uppi í því sums staðar, en lands- lagið og byggingar líkt. Á hægri hlið var nokkuð hálendara, því að þangað var að sjá nokkuð há fjöll. Mjókkaði aftur byggðin, þegar inneftir kom, urðu þá fyr- ir eyjar margar, og fórum við milli þeirra. Vottaði þar sums staðar fyrir straumi, því að þetta er mynnið á Laurentsfljótinu.1) (Niðurlag ncest) þ Þ. e. St. Lawrencefljótið.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.