Heima er bezt - 01.02.1955, Síða 28

Heima er bezt - 01.02.1955, Síða 28
60 KfilMA ER BEZT Nr. 2 inn svartur bylur og afspyrnu rok. Þeir félagar nálguðust land, þeir heyrðu suð og sog frá klett- óttri ströndinni. Ásláki reiknað- ist til, að þeir væru heldur vest- arlega. Hann sneri bátnum og reyndi að sigla út með strönd- inni .... Þarna var lífshætta að lenda, ef bátinn bæri upp að var dauðinn vís .... Áslákur gretti sig og rýndi út í sortann og það mátti sjá í svip hans, sem byði hann náttúru- öflunum byrgin. Hvað hafði gerzt; kryppling- urinn var horfinn? Hann hafði tekið út um leið og hann sneri bátnum. Áslákur áttaði sig fljótlega, skimaði út fyrir borðstokkinn og í kjölfar bátsins, en sá aðeins skammt frá sér. Út í hríðina þýddi ekki að rýna. Hvað var þetta? Áslákur greip andann á lofti; utan úr hríðinni kváðu við tvö stutt hálfkæfð óp. Áslák- ur hafði brugðið um sig niðri- stöðuenda, hann stökk niður í freyðandi hafrótið, og náði traustu taki utan um mitti krypplingsins, er var ósyndur. Síðan klauf hann ölduna á eftir bátnum með krypplinginn í fanginu, og nokkru seinna stóðu þeir báðir í bátnum á ný...... Seint næstu nótt náðu þeir landi í heimahöfn, eftir tvísýn- an leik við blindhríð og hinar trylltu dætur Ægis gamla .... Á páskum hættu þeir róðrum. Áslákur kvaðst ætla að taka upp skelina sína og þrífa hana, síð- an mála og flotta hana til. Hún ætti svo sem fyrir því, að henni yrði sýndur sómi. Síðan ætlaði hann að kveðja þetta hérað og sigla norður, heim á æskustöðv- arnar .... Hann sagði krypplingnum frá áformi sínu um að hann hefði ásett sér að sigla burt um há- nótt, svo enginn vissi; láta hyskið halda að kölski hefði sótt sig. Og það gerði hann. Um nætur- tíma um miðjan maímánuð leysti Áslákur frá landi, dró upp segl og sigldi norður á bóginn .. Tiltækið bar líka fyrirhugað- an árangur. Fólkið í þorpinu hafði ekki séð nein merki þess að Áslákur byggi lengur í Nesinu; engin hreyfing hafði sést þar í nokkra daga. Og menn ræddu um það sín á milli, niður við beitingakrár eða bryggjur þorps- ins, að kölski hefði loks sótt þennan undarlega Norðlending. Og það gleymdist ekki, að hetju- brögð Ásláks við björgun kryppl- ingsins, í manndrápsveðrinu forðum, væru verk æðri máttar og þá bersýnilega kölska; eng- inn mennskur maður hefði get- að það. Og menn spurðu krypplinginn Hjalta, hvort hann hefði ekki orðið var við bölbænir eða ákall- anir á hinn vonda, af vörum Ásláks. Hvort hann hefði ekki þulið galdraorð yfir línunni um leið og hann lagði. En krypplingurinn Hjalti brosti bara sínu skakka brosi og sagði: Nei, Áslákur var mennskur maður og hann var kristinn maður. Hann var sá bezti mað- ur, sem ég hef nokkru sinni ver- ið með til sjós. Og krypplingur- inn Hjalti beindi augum sínum út yfir Lónið í norðurátt; hann einn vissi hvað orðið hafði af Ásláki .... pl O ; 0 ^ C | 0 ' ^ /u \r\ O /t « PJK - - ‘ Úr gömlum blöðum Nákvœm lýsing. „Náttúru afbrigði. — Nóttina millum þess 24. og 25. maím. næstliðna, bar 'hjá mér undir- skrifuðum svarthornótt ær, rétt og velsköpuðu að öllu, aftur að lærum, þá er lamb þetta með fjórum afturfótum, hvar af tveir snúa rétt, en aðrir tveir öfugt, nefnilega konungsnefin (hækl- arnir) fram. Hnútu höfuðin á þessum öfugu fótum eru gróin saman að ofan, því þegar annar fóturinn er hrærður, hrærist hinn líka, líkt sem á einum ási væri, þau ná allt út að mjöðm- um (því ekki eru þær nema tvær) og eru þar áföst við bein- auka sem stendur út úr mjöðm- inni, réttara sagt mjaðmarbein- inu, í þenna beinauka er sem bolli, sem hnútuhöfuðið fellur inn í eins báðu megin; ofan á millum þessara hnútna hangir einlægt skinnhelsi eða hapt, lík- ast sundfugla fit; þetta nær allt ofan undir neðri enda á þessum hnútuleggjum. Náttúr- legur hrútspungur hangir út við þau réttsköpuðu lærin, sinn hvoru megin. Vinstra megin er rófa og þarma- eða þarfagat undir, ekkert hinum megin, nema mótar fyrir lítilli holu. Náttúrlegar klaufir á öllum fót- um. Huppar og mjóhryggur er óvenjulega langt. Lambið þó ekki í sjálfu sér nema í meðal- lagi stórt. Tilfellunum tíminn ekki týnir niður, heldur fast til rúms þeim ryður. Hlöðum, 29. maí 1854. Flóvent Jónsson. Á stríðsárunum var njósnari nokkur tekinn til fanga af óvin- um lands síns. Var hann grunað- ur um að fela á sér mjög þýðing- armiklar upplýsingar, skrifaðar á dulmáli, og þær fundust loks eft- ir margra stunda nákvæma leit. Það sýndi sig, að upplýsingarnar voru ritaðar með ósýnilegu bleki á gegnsæan pappír, sem var límdur innan á glerin í glauraug- unum hans.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.