Heima er bezt - 01.06.1957, Blaðsíða 18

Heima er bezt - 01.06.1957, Blaðsíða 18
og voru uppskeruhorfur góðar. Fögnuðu menn því, sem von var, því að þröngt hafði verið í búi um vet- urinn, og væntu menn nú, að lokið yrði mestu þreng- ingunum. En allt í einu syrti í lofti. Ótrúleg mergð engisprettna kom ofan úr fjöllunum og steypti sér yfir akrana. Fólkið þusti til að reka þennan ófögnuð af höndum sér, en án árangurs. Er menn höfðu gert sér ljóst, að enginn mannlegur máttur fengi sigrazt á engi- sprettunum, lögðu þeir árar í bát um varnirnar en héldu heim og lögðust á bæn til Guðs og báðu hann að létta af þessum ófögnuði. Brátt sáust stórhópar máfa koma fljúgandi frá varpstöðvum sínum á klettaeyjum í Salt- vatninu. Hugðu menn, að nú væri úti um allt, er fuglar himinsins legðust á eitt með skorkvikindunum til tor- tímingar ökrum þeirra. En brátt varð ljóst, hvers kyns var. Máfarnir réðust að engisprettunum svo hraustlega, að þær voru uppétnar á skammri stund, og ökrunum var borgið. Mormónar hófu þakkargerð til Guðs fyrir kraftaverkið, sem þeir höfðu verið vitni að. Síðan eru máfarnir friðhelgir í Utah, og varði þessi hefur verið reistur til minningar um björgun fólksins frá hungri og hörmungum. Eftir að hafa skoðað það sem mig lysti á Temple Square, kvaddi ég leiðsögumann minn og hélt til móts við Bearnson prófessor, enda var kominn tími sá, sem við höfðum mælt okkur mót. Farið um Salt Lake City. Bearnsonshjónin komu að sækja mig kl. 10, eins og um var talað. Þótti þeim mér hafa orðið drjúg morgun- verkin, er ég sagði þeim frá, hvað gerzt hefði. Óku þau mér víða um borgina og sýndu mér það, sem mark- verðast var. Saltvatnsborg er tvímælalaust ein hin feg- ursta og bezt skipulagða borg Bandaríkjanna. Býr hún enn að þeirri gerð, sem Brigham Young ákvað í önd- verðu. Stræti eru þar breiðari en í flestum öðrum borg- um, og umferðarvandræði því stórum minni. Vekur það furðu, með hve mikilli framsýni borgin hefur verið reist og skipulögð fyrir heilli öld. Margt er þar fagurra stórhýsa. Fjallasýn frá borginni er hin fegursta, en skammt suðvestur frá henni er Salt- vatnið mikla. Liggja að því ísskarir breiðar, en svo sterkar, að bílar aka þar um viðstöðulaust. Miklir bað- staðir eru við vatnið. Meðal annars var mér sýnd þar þinghöll Utah. Er það mikið hús, í líkum stíl og Capitol í Washington. Stendur það hátt, og er forkunnargóð útsýn af tröppum þess yfir borgina og yfir til Saltvatnsins og Vesturfjall- anna. Forsalur þinghallarinnar er geysimikill, skreyttur myndum og marmarasúlum. Móttökusalir eru þar hlaðnir skrauti úr dýrum steintegundum, viði og málrn- um, svo að næstum er við of. Er þar margt forkunnar- fagurra gripa. í kjallarahæð hússins er saga og land Utah sýnt í myndum og minjum. Þar eru málverk og mynd- líkön, er segja söguna, en landinu og náttúrugæðum þess er lýst með náttúrugripum, bæði úr hinni lifandi og dauðu náttúru. Landið er auðugt mjög af málum. Finnast þar gull, silfur, kopar, járn, blý og auk þess kol og olía og ef til vill fleira. Eru þarna sýnishorn allra þessara jarðargæða og sýnt, hversu þau eru unnin, og hver sé þáttur hvers og eins í þjóðarbúskapnum. Einnig fórum við um háskólahverfið, en allt var þar lokað að þessu sinni, því að helgidagur var. Háskóla- hverfið stendur uppi undir fjallshlíðinni austast í borg- inni, og er geysimikið hvítt U málað í hlíðina fyrir ofan, og sést það langt að. Eftir að hafa snætt með þeim hjónunum að Hótel Utah, héldum við heim til þeirra, en heimili þeirra var í suðurhluta borgarinnar, ekki langt frá háskólanum. Jafnskjótt og ég kom þar inn í stofu, veitti ég athygli vatnslitamynd á einum veggnum. Minnti hún mig á hinar eldri myndir Ásgríms Jónssonar, og þótti mér það ekki undarlegt sakir hinnar íslenzku ættar húsbóndans, að hann hefði eignazt mynd eftir Ásgrím, en svo reynd- ist þó ekki, heldur var málverkið eftir dóttur þeirra hjóna, sem stundað hefur listnám við háskólann, bæði leirkerasmíð og málaralist, en dvaldi um þessar mundir í Finnlandi, en hlotið hafði hún ársdvalar styrk í evr- ópskum háskóla að verðlaunum fyrir námsafrek. Ég hafði orð á því við hjónin, að málverk þetta minnti mig á málverk Ásgríms. Fullyrtu þau bæði, að dóttir þeirra vissi engin deili á honum né list hans. Flaug mér þá í hug, hvort hér gæti verið um eitthvert íslenzkt ættar- einkenni að ræða, en ekkert skal um það fullyrt. Elzta íslendingabyggðin. Þessu næst óku þau Bearnsonshjónin mér suður til Spanish Fork, en þar er meginbyggð íslendinga í Utah. Bærinn liggur um 60 mílur suður frá Saltvatnsborg, og búa þar 5—6000 manns. Leiðin liggur um blómlegar byggðir, sveitaþorp og iðnaðarhverfi. Ekið var framhjá stálbræðsluofnum mildum, en í fjarska sá yfir til kopar- fjallsins, sem smám saman er verið að eyða upp, en sí- fellt er grafið utan af fjallinu. Frá Spanish Fork er fögur fjallasýn og skammt til fjalls. Hefði mér eigi verið sagt annað, mundi ég hafa fullyrt, að íslendingar hefðu valið sér þarna bólfestu sakir þess, að þeim hefði þótt landslagið minna sig á gamla landið, því að lögun fjallanna og haustlitir minntu allmjög á íslenzk fjöll. Hlíðamar eru gróðurlitlar og skriðurunnar neðan til. Víða eru þær vaxnar lágvöxn- um runnum, sem bera brúnan lit, eigi ósvipaðan kræki- lyngi. Þegar hærra dregur í hlíðamar, era víða barr- skógar, og víða sér trjátoppana bera við loft uppi á fjallabrúnum. Þegar til Spanish Fork kom, ókum við fyrst gegnum þann bæjarhluta, sem íslendingar búa í. Er hann vist- legur og snotur á að sjá og ber vitni um híbýlaprýði og menningu. Var mér tjáð, að afkoma íslendinga væri þar yfirleitt góð, og þeir nytu mikils trausts þarlendra manna. Alls munu vera um 1500 íslendingar í Utah, en í þeim hópi eru biskupar, háskólakennarar og forystu- menn á ýmsum sviðum. Fyrstu íslendingarnir komu til Utah árið 1855. Voru það Samúel Bjarnason, Margrét kona hans og Helga frænka þeirra, sem síðar giftist Þórði Diðrikssyni, sem 210 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.