Heima er bezt - 01.06.1957, Qupperneq 20

Heima er bezt - 01.06.1957, Qupperneq 20
HÁKON GUÐMUNDSSON, hœstaréttarritari: Bíaðað í DÓMSMÁLUM í kvæði sínu Hrafnistumenn segir skáldið Örn Arnarson svo: íslands Hrafnistumenn eru hafsæknir enn ganga hiklaust á orustuvöll, út í stormviðrin höst móti straumþungri röst yfir stórsjó og holskefluföll. Þessar ljóðlínur komu í hug mér, þegar ég hlustaði á málaflutning í Hæstarétti, er flutt var mál, sem reis út af því, hversu mikil björgunarlaun skyldu goldin fyrir hjálp þá, er vélskipið Snæfell veitti vélskipinu Súlunni á Breiðafirði í nóvember 1953. En sú saga er á þá leið, sem nú skal greint. Föstudaginn 13. nóvember 1953 var vélskipið Súlan á leið suður með Vestfjörðum, og var skipið komið þvert af Látrabjargi síðdegis þann dag. Ekki varð þó annað séð en ferðin mundi ganga að óskum og Súlan verða komin til Grundarfjarðar síðla kvölds, en þangað var ferðinni heitið til herpinótaveiða. Örlaganornimar höfðu þó annað í huga, því kl. hálf sjö um kvöldið stöðvaðist vél skipsins allt í einu. Kom í Ijós við athug- un, „að gangskiptihúsið við niðurfærslugírinn“, eins og það er orðað í skjölum málsins, hafði brotnað. Er séð varð, að Súlan mundi ekki komast hjálparlaust til hafn- ar, var gerð athugun á því, frá hvaða skipum hjálpar mundi helzt að vænta. Fyrir valinu varð vélskipið Akra- borg, sem var á síldveiðum þar syðra. Dró Akraborgin því næst Súluna til Grundarfjarðar, og komu skipin þangað kl. 10 árdegis næsta dag, eftir rúmlega 8 stunda ferðalag. Lagðist Súlan við akkeri þar á firðinum og var þar með úr umsjá Akraborgar, sem síðar fékk 90 þús. krónur fyrir starf sitt, senrtalið var björgun, þar sem Súlan mundi ekki af eigin ramleik hafa komizt til hafnar í þetta sinn. Er Akraborgin þar með úr sögu þessari. En saga Súlunnar var ekki þar með öll. Eftir var að koma henni til Reykjavíkur, en þar skyldi gert við vél hennar. Nú stóð svo á, að skipið Snæfell var þama að síldveiðum með herpinót og tveimur herpinótabát- um. Hafði skipið þenna dag, sem Súlan var dregin inn á Gmndarfjörð, fengið næstum því fullfermi, og var ætlunin að losa farminn í Reykjavík. Það varð því að samningum, að Snæfellið tæki Súluna í eftirdrag til Reykjavíkur, og var svo um samið, að Snæfellið fengi 12 þús. krónur fyrir dráttinn. Vátryggingarfélag það, sem Súlan var vátryggð hjá, samdi við eiganda Snæ- fells um dráttinn, og samkvæmt tilvísan félagsins var fengið 6 þumlunga grastóg í Grafarnesi í dráttartaug. Liðið var nær óttu aðfaranótt sunnudagsins 15. nóvem- ber, er öllum undirbúningi var lokið, og héldu skipin þá strax af stað. Dráttartaugin, sem m. a. var 50 faðma löng grastrossa, var útbúin af skipverjum Súlunnar og allt efni til hennar lagt fram frá því skipi. Fyrst í stað gekk ferðalagið vel. En er skipin vora við Malarrif kl. 9 um morguninn, slitnaði dráttartaugin (grastógið). Hafizt var strax handa um það, að lagfæra taugina. Vom til þess notaðir vírar, sem Snæfellið átti, og tók þetta rúma tvo tíma. Töluverðir erfiðleikar reyndust á því, að láta skipin nálgast það mikið, að hægt væri að koma taug á milli þeirra. Lágu til þess þær orsakir, að bæði skipin voru með herpinótabáta sína í bátsuglun- um, enda þá og kominn suðaustan stormur. Vegna veð- ursins var nú tekinn sá kostur, að fara upp að landi, og var lónað þar um stund. En þar sem stormurinn fór vaxandi, var ákveðið að snúa við norður fyrir, og komu skipin á Beruvík kl. 3 síðdegis. Eftir tveggja tíma dvöl þar, var vindur orðinn svo sunnanstæður, að óverandi var þar í Víldnni. Héldu skipin því aftur af stað og fóru á hægri ferð norður fyrir nesið. Var þá skollið á sunnan ofsarok. Siglt var grunnt með- fram landi, unz komið var til Olafsvíkur. Þar lagðist Snæfellið fyrir tveimur akkemm á 7 faðma dýpi. Var annað akkerið 400 kg. en hitt 35Ó kg. á þyngd. Úti voru hafðir 9 liðir af keðju. Súlan lagðist líka fyrir akkeri, en dráttartaugin var höfð milli skipanna, enda var akkeri Súlunnar aðeins tæp 300 kg., en annað akkeri sitt, 400 kg. að stærð, hafði skipið misst, er það lagð- ist við Strandir fyrr í ferð þessari. Liðið var að mið- nætti, er skipin höfðu komið legufærum sínum fyrir. Veðurofsinn telzt hinn sami, og í mestu stormrokunum þurfti Snæfellið að beita vél sinni til andófs gegn veðr- inu. Leitað var eftir aðstoð hjá varðskipinu Ægi og björgunarsldpinu Maríu Júlíu, en hvorugt þeirra gat veitt nokkra hjálp. Ekki slotaði veðrinu, og klukkan hálf fjögur um nóttína skeði það, að dráttartaugin slitn- aði. Súluna tók þá strax að reka með miklum hraða, og kom ekld að neinu haldi, þótt 250 punda akkeri, sem var um borð, væri sett út til viðbótar hinu. Snæ- 212 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.