Heima er bezt - 01.04.1959, Blaðsíða 4
BJÖRN SIGURBJARNARSON:
Páttur af
Böovari Magnússyni
og
Ingunni Eyjúlfsdóttur
á Laugaruatni
i.
öðvar jMagnússon hreppstjóri á Laugarvatni
hefur ritað marga fróðleiksþætti, er birtir hafa
verið í ritinu „Heima er bezt“. Ég ætla því, að
Böðvar sé kaupöndum þessa rits að góðu kunn-
ur. Fróðleiksmolar um Böðvar og heimili hans kynnu
því að vera lesöndum nefnds rits geðfellt lesefni.
Böðvar Magnússon er fæddur 25. desember 1877 á
Holtsmúla í Landmannasveit. Hann varð því áttræður
á jólum 1957. Tveggja vetra fluttist hann með foreldr-
um sínum frá Holtsmúla að Úthlíð í Biskupstungum.
Þar dó móðir hans 1887. Sama ár fluttist faðir hans til
Laugarvatns og réðst til bús með ekkjunni Ragnheiði
Guðmundardóttur. Þau gengu í hjónaband 4. des. 1888.
Þar ólst Böðvar upp hjá föður sínum og stjúpu og
hefur alið þar aldur sinn síðan, að undanskildum þeim
árum, er hann bjó í Útey. Á þeim tímum var börnum
og unglingum haldið mjög til starfa jafnskjótt og aldur
og þrek leyfði. Böðvar var snemma þrekmikill og því
skjótt vaninn við að sýsla um fjárhirðingu og önnur
sveitastörf, svo og sjómennsku. Sextán vetra réðst hann
í verið og „lærði sjó“ hjá Jörundi formanni á Gamla-
Hliði á Álftanesi. Stundaði hann síðan sjómennsku
nokkur ár. Síðan hvarf hann heim, kvæntist og hóf bú-
skap í Útey vorið 1900. Bjó hann þar góðu búi í sjö ár.
Þá fluttist hann til Laugarvatns, tók við búi af föður
sínum og bjó þar til 1935. Byggði hann gott íbúðarhús
fyrir þau hjónin undir skógarhlíðinni ilmsælu. Sitja
þau hjónin þar í sæmdum og una vel hag sínum.
Ég hef nú rakið ævistarf Böðvars Magnússonar og
Böðvar á Laugarvatni að leggja af stað i vorsmalamennsku.
116 Heima er bezt