Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 7

Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 7
Albert J. Finnbogason og Böðvar á Laugarvatni rceðast við. Albert var áður jramkvœmdastjóri bókaútgáfunnar Norðri og hann stofnaði „Heima er bezt.“ Nú býr hann stórbúi að Hallkellshólum i Grimsnesi. sældir þeirra standa á svo styrkum stoðum, að engir dægurdómar fá þeim haggað. Eg ætla að geta hér nokkurra atvika, sem ég veit með fullum sannindum að gerzt hafa á Laugarvatni í tíð þeirra Ingunnar og Böðvars. Verður af þeim ráðið, að á heimili þeirra góðu hjóna hefur löngum verið griða- staður vesalla og volaðra, sem ill örlög höfðu hrakið út á lífsins eyðihjarn. . Ingvar hét maður. Hann var Magnússon, bónda á Fossi, Þórðarsonar og Ingibjargar Narfadóttur. Ingvar var geðbilaður alla ævi og á framfæri síns hrepps, eftir að foreldra hans missti við. Kom svo, að enginn hrepps- búa vildi hafa hann árlangt. Var hann því látinn flakka milli bæja. — Þennan vandræðamann tóku Ingunn og Böðvar upp á sína arma. Lifði hann hjá þeim tólf ár og dó þar. Eyvindur hét maður ísleifsson, bróðursonur Hjartar bónda í Austur-Hlíð og Bjarnar bónda á Vatnshorni. Eyvindur var holdsveikur. Var hann meðal fyrstu sjúk- linga í Laugarnesi. Eftir mörg ár töldu læknar hann al- bata. Fékk hann þá að fara austur í Laugardal á fund vina og vandamanna þar. Eftir skamma dvöl í dalnum tók hann veiki sína- aftur. Var þá kominn vetur og ófærð tók til starfa, nutu börnin fræðslu þar. Dæturnar gengu allar í kvennaskóla í Reykjavík, svo og fósturdóttirin, Áslaug, dóttir Ragnheiðar og Stefáns á Borg. Magnús sonur þeirra, bóndi í Miðdal, er búfræðingur frá Hvann- evri. J Þegar Böðvar Magnússon hóf búskap á Laugarvatni 1907, voru bæjarhús gömul orðin og lítt stæðileg og peningshús slíkt hið sama. Byrjaði hann þegar að rifa bæinn. Nýi bærinn var að stærð 6 x 15 álnir og kjallari undir mestum hluta. Síðar endurbætti hann og endur- byggði öll hús jarðarinnar. Túnið var kargaþýft. Þá var þökusléttuaðferðin ein viðhöfð. Sóttist því seint að slétta stór tún. En Böðvar gekk að þessu endurbótastarfi með dug og góðri forsjá. Laugarvatn er landrýmisjörð og landgæða, og búfjárlönd gagnauðug. Veiði er þar í vatninu til mikilla hagsbóta, svo og jarðhiti, sem að vísu nýttist ekki til heimilisþarfa svo að miklu næmi, en reyndist geysihaglegur hlutur, þegar stjórnarvöldin hófu að reka þar skóla. Aðstæður til búreksturs eru því mjög góðar, enda mun Böðvar jafnan hafa rekið stórt bú og búið við góðan hag. Er auðsætt, að bú hans hefur hlotið að vera gagnsamt, því að mikils þurfti búið við til að framfæra svo fjölmenna fjölskyldu og standast alla gestanauð. Hvarvetna kemur það í Ijós, að Böðvar hefur verið búþegn góður og vinsæll, notið trausts og virðingar. Þetta staðfestist af þeirri staðreynd, að hann hefur verið hreppstjóri síðan 1903, lengur en nokkur annar samtíðarmanna hans, og sýslunefndarmaður frá 1911. Mér virðist, að Ingunn og Böðvar hafi verið mjög samhuga og samtaka um allt það, er horfði til gagns og menningar á heimili þeirra og í héraði. Það hefur og verið gæfa þeirra. Nú er það svo að þeir, sem skara fram úr, hafa jafnan öfundarsamt setur. Má því ætla, að Ing- unn og Böðvar hafi búið við nokkra gagnrýni, jafnvel óvinveitta á stundum. Er mér að vísu ókunnugt um það. En að því er ég þekki til eftir 1930 veit ég, að vin- Ingunn Eyjúlfssdóttir, kona Böðvars, með dcetradatur sínar. Heima er bezt 119

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.