Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 11

Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 11
kopar. Ef til vill einnig blý, að því er munnmæli segja, er Sveinn læknir Pálsson getur. En sagt er, að það sem bjargað varð af farminum hafi rekið á land smám saman (Annáll Magnúsar sýslumanns Magnússonar, Espólín). Eftir því hafa menn ekki komizt út í skipið fyrst um sinn eftir að það strandaði, og óefað hefur það brotnað að einhverju leyti áður en að því hefur borið sand. Lík- ur eru þó til, eins og síðar segir, að það hafi ekki liðazt sundur. Að líkindum hefur mikill hluti farmsins graf- izt í sand og sjó með skipinu. Að vísu telur Sveinn Páls- son (Ferðabók, dagbók 1793, þar sem hann getur þessa strands vafalaust eftir munnmælum), að mestur hluti farmsins hafi náðzt. En hæpið er það, enda er sumt, sem hann greinir frá um skipið, ekki alls kostar rétt. En hann getur svo þess, að yfirbygging skipsins hafi náðzt, en hitt allt, og þar með kjölfestan, lent í ánni (Skeiðará), og sökk í kaf í sand. Hvað eftir annað hafi ýmsar leifar af þessu komið upp. — Er raunar ástæðulaust að ætla annað en að þetta sé rétt. En löngu mun flakið alger- lega horfið í sand. En svo virðist af frásögnum annála og munnmæla, sem allmikið hafi borizt á land af varningi úr skipinu. Vat mikið notað af hinu indverska silki í næstu sveitum urn tíma á eftir til daglegra nota. Er það og í annálum haft, að strandmennirnir hafi notað það í gjarðir, undir reið- tygi, í höft og ístaðsólar, eða líka skipt á því og innlendu efni, enda jafnvel sagnir um, að silkið hafi verið notað eitthvað þannig líka í sveitunum. Þetta sumar hafði Otto Bjelke sjóliðsforingi verið sendur hingað til lands með nokkurn liðsafla og átti að treysta varnir landsins, því að tímarnir þóttu viðsjár- verðir að áliti þeirra, er yfirráðin höfðu. Lét hann hlaða upp Skansinn á Bessastöðum og dvaldist hér veturinn eftir. Skipaði hann svo fyrir að allt, sem til næðist úr skipinu, skyldi flutt til Bessastaða — kallaði það vogrek og konungseign. Skyldi hver sýslumaður flytja vam- inginn frá sér til annars. Lét hann svo selja mikið af vör- um út um land um veturinn og gerði út menn til þess. Fór hann utan sumarið eftir með andvirðið og dýrmæta muni úr skipinu. Er ekki laust við að grunur hafi verið á að skort hafi á fullkomna ráðvendni frá hans hendi. Höfðu eigendur skipsins sett sig í samband við Henrik Bjelke yfirsjóliðsforingja, sem einnig var höfuðsmaður hér á landi en dvaldist þann yetur í Kaupmannahöfn, og óskað eftir skýrslu frá honum um hluti þá, er bjargað var. Skipseigendur höfðu og í hyggju að senda hingað skip eftir hinu verðmætasta af Indíafarinu (þar á meðal einnig fallbyssu). Fóru þeir þess á leit við konunginn, Friðrik III., að mega senda hingað tvö björgunarskip. Munu þeir hafa lofað, að skipverjar skyldu ekki reka neina verzlun við landsmenn í bága við einkaleyfi verzl- unarfélagsins í Kaupmannahöfn. Ekki er vitað nánar um þetta, og sennilega hefur ekki orðið af því, að skip hafi verið sent. En þetta bendir ótvírætt til þess, að skipið hafi ekki eyðilagzt strax eða liðazt sundur, a. m. k. ekki þegar þeir, sem af komust, vissu síðast til, og jafn- framt að eigendur þess hafa álitið það óvenjuverð- mætt.1) Líklegt er, að fleira en silki hafi borizt upp til næstu sveita úr þessu skipi. Er og vikið að því lauslega í ann- álum, að ekki muni allt hafa komizt í hendur Bjelke, sem þangað átti að fara. Um það vita menn nú ekki nánar né heldur um sérstaka hluti, sem seldir hafa verið út um land. I einhverju sambandi við Indíafarið er vísa, sem sumir hafa eignað Þorsteini tól, en hann var raunar fæddur heilli öld síðar: Flestir af því fengu nóg, fælist hrafn og refurinn. Ut er kominn um allan skóg indíanski þefurinn. Það er þó síður en svo víst, að hér sé vikið að varn- ingi af skipinu. Þess má minnast, að fleira þurfti að flytja af strandstaðnum en það, sem kallað var konungseign. Mörg lík hafa verið flutt á kirkjustað í sambandi við þetta strand, og ekki er víst, að þau hafi öll fundizt um haustið. Nú á dögum mun fátt vera til hluta, sem vitað er um að séu af Indíafarinu. Það, sem kunnugt er um, voru dósir úr látúni sporöskjulagaðar, líklega tóbaksdósir, er voru í Suðursveit en munu þar ekld til lengur, og skráarskilti stórt úr kopar eða látúni, líklega af kistu. Akkeri af Indíafarinu voru flutt að Skaftafelli. Voru þau þar á klöpp austan megin í Bæjargilinu (Austur- gili). Síðan hefur Skeiðará fyllt þar upp með möl, og mun nú djúpt á þeim. Elztu menn sem voru í Skaftafelli um síðustu aldamót, mundu eftir þeim í sínu ungdæmi. Sagt var, að akkerin hafi að nokkru leyti verið notuð til þess að srníða úr þeim skeifur. Voru þau söguð í sundur. í Þjóðminjasafninu er og hurðarspjald eitt með upphleyptu, fínlegu flúri, sem sennilegt er talið að sé af Indíafarinu. Þannig eru nú á dögum furðulitlar minjar þessa sér- stæða atburðar, sem gerðist á eyðisöndum þessum fyrir nærfellt þremur öldum. En einhvers staðar langt frammi á Skeiðarársandi liggur Indíafarið sandi hulið, skipið, sem einu sinni var einn glæsilegasti farkosturinn á blóma- tímum hollenzka verzlunarflotans. VIÐAUKI Að síðustu set ég hér sögukorn af öðrum toga en munnmælin, — þjóðsögu, sem snertir Indíafarið með nokkrum hætti. Um það leyti sem atburðir þeir gerðust, sem hér hef- Framhald á bls. 145 1) Vitanlega er ekki hægt að segja um stærð skipsins, en á þeim tímum voru byggð skip a. m. k. allt að 220—240 feta löng, m. a. Indíaför. Til samanburðar má geta þess, að „Gull- foss" eldri var 230 fet, „Esja“ er h. u. b. 210 fet. Hafskip þeirra tíma voru hásigld og með háum fram- og afturþiljum, einkum skutþiljurnar. Heima er bezt 123

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.