Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 17

Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 17
DR. BERNHARD GRZIMEK: Ú R MYRKVIÐU Niðurlag. M A F R í K U Þegar ég sá apann, lá við að mér snerist hugur. Hann var risi að vexti, herðarnar eins og á aflraunamanni, en kjálkar og tennur líkast og í tigrisdýri og vöðvarnir eins og á hnefaleikara. Á baki hans var grátt fax, sem er ein- kenni fullvaxinna karlsimpansa. Ég þekkti svo vel til fullorðinna simpansa, að við lá að mér félli allur ketill í eld. Á höfðinu ber ég enn merki eftir slíka apa, og hægri höndin á mér er lítt sveigjanleg eftir meiðsli af þeirra völdum. Simpansarnir eru jafn sterkir og bíta jafnfast og hvaða stórt rándýr, sem vera skal. En þeir eru aðeins miklu skynsamari. Ef maður verður fyrir árás ljóns, er mögulegt að verjast því með spýtu eða t. d. trégrind að vopni. Ljónið er víst til að höggva tönnunum í tréð, í þeirri trú, að það sé hluti af óvininum. En simpansinn hefur heila í kollinum, sem nálgast mannsheilann að þroska, og hann veit vel, hvar blóð er að finna, svo að hann lætur eldd gabbast á þennan hátt, og hann sviptir hvaða vopni sem er úr hendi manns. Auk þessa verður hver fullorðinn karlsimpansi gripinn af æði nokkrum sinnum á degi hverjum. Þá öskrar hann, æðir um og tætir allt sundur, sem hann nær til með öllum fjórum höndum sínum. Eigandinn, sem vopnaður var með barefli, skipaði Roger að koma niður úr trénu, og hlýddi hann auð- mjúldega og sýndi honum vinalæti. Þetta er ekkert sér- stakt við simpansa. Þeir eru venjulega alla ævi auðmjúk- ir við þann, sem hefur tamið þá og alið upp, og hr. Schmourlo hafði átt hann í sjö ár. En vei hverjum öðr- um, sem reynir að leggja á þá hendur. Ég hvíslaði að Mikael: „Þetta kemur ekki til greina, hann getur átt apann sjálfur.11 En Mikael fór þegar í stað að nauða á mér. „Pabbi,“ sagði hann, „ef við tökum hann ekki, verður hann skot- inn, þegar Schmourlo fer til Evrópu. Og sjáðu bara, hversu stórfenglegur hann er.“ Ég lét undan, en lengi iðraðist ég þeirrar undanlátssemi minnar. Svertingjarnir færðu okkur hlekkjafesti, og Roger var færður í bönd og tókst okkur að teyma hann að vörubílnum, sem flutti okkur þangað. Þar var Aka litla í umbúðarkassa, en hvernig áttum við að fá Roger til að fara inn í stóra búrið, sem honum var ætlað. Við opnuðum það upp á gátt, en létum Öku litlu vera hinum megin við það, svo að til hennar sæist gegnum rimlana í búrinu. Ekki hafði Roger fyrr komið auga á hana, en hárin í faxi hans risu, og hann hljóp beina leið inn í búrið og ætlaði sýnilega að grípa Öku, en rimlarnir voru á milli, og hurðin skall á hæla honum, og svo héldum við af stað. Næsta dag varð ég mér úti um farartæki til þess að flytja okkur til Bouaké, þar sem aðalbækistöðvar okkar voru. Ég náði í svertingja, sem átti vörubíl, og hét hann að flytja okkur og farangur okkar, eftir að við höfðum þjarkað langa stund um verðið, sem var nokkur hundruð marka. Að því búnu fór hann niður á markaðstorgið til þess að ná í það, sem unnt væri af farþegum til viðbótar. Loks um tíuleytið kom hann heim á gistihúsið til að sækja okkur feðgana og farangurinn, gestgjafan- um til mikils hugarléttis. Það gekk ekki vandræðalaust að finna nógu sterka svertingja til þess að lyfta búrinu með Roger í upp á bílpallinn og ganga þar frá því, en að lokum tókst það,og af stað fórum við ásamt simp- Önsunum Roger og ungviðunum Öku og Lulu. Einníg höfðum við meðferðis nokkra rófulanga apaketti, zibet- dýr, fugla og sitt hvað annað í búrum og kössum. Og síðan var haldið til Bouaké í brezku Súdan. Ég bjó um mig við hliðina á búri Rogers. Þar sat ég með barefli í hendi og hafði vakandi auga á þrælnum. Öðru hvoru fékk hann æðisköst, einkum þegar bíllinn staðnæmdist, því að svertingjarnir, sem í ferðinni voru, gerðu þá stundum hróp að honum og ertu hann. Veg- urinn var hroðalegur, og bíllinn skrykktist sitt á hvað. Roger virtist vera í vandræðum með að finna þær stell- ingar, sem hann helzt gæti látið fara sæmilega um sig í. Fyrst reyndi hann að standa á fjórum fótum, síðan gerði hann tilraun til að hanga í járnrimlum búrsins, og loks settist hann flötum beinum, þótt þær stellingar reyndust engan veginn þægilegar sökum þess, hve beinaber hann var á þjóhnöppunum. Öðru hverju gullu við aðvörunaróp til mín frá svert- ingjunum um það að beygja mig, þegar trjágreinar lágu þvert yfir veginn yfir höfðum okkar, og lá við að við rækjumst upp í þær. Einu sinni, er ég beygði mig, tókst Roger að krækja klónni í skyrtu mína og svipta bakinu úr henni. Þetta varð svertingjunum ósvikið aðhláturs- efni, þar sem ég hlaut að aka þannig hálfnakinn gegnum þorpin við veginn. Er við höfðum ekið um hríð, tók Mikael að kvarta um höfuðverk og að hann væri bæði þreyttur og þyrst- ur. Hvergi var hreinsað vatn að fá, svo að ég gaf honum sopa af rauðvíni og nokkrar sulfa-töflur, því að hann var sýnilega með hitaslæðing. Fátt er verra veikum manni en að hristast á vörubílspalli á vondum vegi, svo að ég fékk Mikael til að setjast inn í húsið hjá bílstjór- anum. En bráðlega þótti honum of heitt og loftlaust þar inni, svo að við skiptum um sæti, til þess að hann fengi notið svala kvöldloftsins. Klukkan var að verða 8 og orðið aldimmt, þegar ég heyrði óp aftan af bílpallin- Heima er bezt 129

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.