Heima er bezt - 01.04.1959, Síða 20

Heima er bezt - 01.04.1959, Síða 20
Þetta er einhver sú mesta taugaþrekraun, sem ég hef komizt í. I margar nætur á eftir dreymdi mig að ég væri að hrapa þarna í Hamrinum. „Farðu upp að á!u Vorið 1924 hafði ég lokið við allt fjárrag og önnur þau verk, sem ég þurfti að inna af höndum fyrir slátt. Eg var að hugsa um, hvort ég ætti að fara að „bera niður“, því að því var komið. En niðurstaðan varð sú, að ég gekk inn í baðstofu og fleygði mér upp í rúm. Enginn var inni í baðstofunni, svo að kyrrðin orsakaði löngun til að sofna. Þó hélt ég, að ég hefði ekki sofnað. En ég hrökk upp úr dvala við það, að hvíslað var að mér: „Þú ættir að fara upp að á.“ Ég glaðvaknaði. Ég leit í kringum mig. Enginn var inni. — „Upp að á!“ var ekki um að villast. Þar var átt við Gilsá, sem rennur úr Gilsvatni og rennur í Blöndu skammt fyrir sunnan Guðlaugsstaði. Frá Eldjárnsstöð- um vestur að Gilsá er á að gizka 45 mínútna gangur og yfir bungu að fara. iVIér datt í hug lambið hennar Kollu. Líklega væri bezt að ég labbaði þetta. Ef það yrði narr, gerði það ekki svo mikið til. Ég lagði því af stað. Þegar upp á Bunguna kemur, sé ég þrjá stóra fjár- rekstra, sem útsveitungar eru að reka fram fyrir heið- argirðinguna. Datt mér þá í hug, að ég ætti að hitta þessa menn, en hvarf fljótt frá þeirri hugsun. Þarna, sem girðingin liggur yfir ána, er nokkurt gil að henni. Ég hljóp ofan að ánni, en fór þó ekki svo tæpt, að ég sæi á girðinguna, þar sem hún liggur yfir ána. Þá sneri ég við og fór sömu leið til baka. En er ég hafði gengið nokkurn spöl, er hvíslað að mér: „Þú fórst ekki alveg að ánni.“ Ég snarstoppaði og fór að íhuga, hvort svo hefði ekki verið, en sneri þó til baka. Þegar ég kom á hvamm- barminn á ný, heyrði ég ámáttlegt vein, sem ég gat varla gert mér grein fyrir, frá hvaða dýri kom. Við nánari athugun kom í ljós, að þarna í miðri ánni var lamb fast í girðingunni, og var mjög af því dregið og það orðið hást af jarmi. Eg var nokkurn tíma að losa það, þó að ullin væri ekki mikil. Lamb þetta átti Jón Pálmason á Ytri-Löngumýri, nú alþingismaður á Akri. „Þú ættir að fara vestur í Vatnsdal í dag.“ Þetta sama sumar bar það við 15. sunnudaginn, að ég hafði ekkert fyrir stafni. Þurrkur var ekki, svo að ekki þurfti að hugsa um hey. Þá var það að aflíðandi miðjum degi, að ég labbaði mig inn í bæ og lagðist upp í ríim. Ég hélt að ég hefði ekki sofnað, en þá var hvíslað að mér: „Þú ættir að fara vestur í Vatnsdal í dag.“ Ég hrökk upp og spurði þá, sem inni voru, hvort þeir hefðu talað til mín. En þeir kváðu það ekki vera. Eftir nokkra umhugsun segi ég konu minni, að ég ætli að skreppa vestur í Vatnsdal. „Svona seint?“ spurði hún. „Mér datt það ekki í hug fyrr en þetta,“ svaraði ég, en gat ekki um, hvers vegna ég færi þetta. Eg sótti tvo hesta, sem voru skammt frá, og bjó mig í snatri. Ég fór svo, eins og leið liggur, upp með heiða- girðingu þeirri, sem liggur fyrir sunnan Éldjárnsstaða- tún, og norðanvert yfir Eldjárnsstaðabungu. En er upp á bunguna kom, varð ég að fara norður í gegnum hið svokallaða Þrívörðuásshlið, því að ófært var með hesta sunnanvert við girðinguna. En er ég kom þar að Gilsá, sem girðingin liggur yfir ána, eins og frá er skýrt í næsta þætti á undan, hafði verið skilin eftir gaddavírs- rúlla þar á bakkanum og runnið ofan af henni nokkrir hringir. Innan í þessa hringi hafði lamb flækt sig og gat á engan hátt losnað. Auðvitað losaði ég lambið. Það átti Árni Kristófersson á Kringlu í Torfalækjarhreppi. Við svo búið sneri ég til baka og taldi mig hafa leyst af hendi það ætlunarverk, Sneri ég nú við og hélt í hægðum mínum til baka. Við Þrívörðuásshliðið varð ég að fara aftur í gegn suður fyrir. En um leið og ég er að opna hliðið, er hvíslað að mér: „Þú áttir að halda áfram.“ Ég hugleiddi þetta um stund, en tók svo ákvörðun um að halda áfram. Leiðin vestur lá suður í gegnum Heygarðaásshlið og fram Buga, fram fyrir austan Ashildartjörn, en þar vest- ur Helluvörðuháls, vestur að Úlfkelshöfða, og þaðan sem leið liggur norður að Vöglum, fremsta bæ í Vatns- dal austanverðum. Þegar ég kom vestur hjá Úlfkelshöfða og beygt er norður, er allvíðáttumikil flá á hægri hönd, rótlaus og með stórum stararpollum. Það vakti athygli mína, að þarna úti í flánni var svarthöttótt ær, sem Gísli bróðir minn átti, en hann bjó þá í Þórormstungu. Ærin snerist þarna jarmandi. Ég fór af baki og óð þarna út til hennar. í einum stararpollinum var mórauður hrútur undan henni, auðsjáanlega nýkominn ofan í. Hrútnum náði ég upp, þó að ég yrði klofvotur við það. Ær þessi var, eins og fyrr segir, svarthöttótt, klashyrnd forystuær. Urn haustið fargaði Gísli þessum lambhrúti til Þor- láks Ásmundarsonar í Finnstungu. Var mér síðar sagt, að hann hefði orðið allgóður forystusauður. Ég fór alla Ieið að Tungu og gisti hjá Gísla, eins og oft áður. Ég sagði honum frá því, að ég hefði bjargað þessum lömbum, en ekki, að ég hefði fengið vísbendingu um það. BARNAGETRAUNIR Vegna margra fyrirspurna skal hér fram tekið, að allir krakkar á „Heima er bezt“-heimilum hafa rétt til þátttöku í barnagetraununum út á áskrift foreldra sinna eða einhvers á heimilinu. Útgefandi. BRÉFASKIPTI Ég vildi gjarna eignast bréfavin, pilt eða stúlku, á þrítugsaldri. Þórunn Þórólfsdóttir Vöðlum, Helgustaðahreppi pr. Eskifjörður. 132 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.