Heima er bezt - 01.04.1959, Page 21

Heima er bezt - 01.04.1959, Page 21
Fy r i r mörgum árum var ég einn á ferð um sól- bjarta sumarnótt vestan úr Saurbæ í Dalasýslu suður yfir Svínadal til Hvammssveitar. Svína- dalur er eiginlega ekki dalur heldur skarð eða lægð í fjallgarðinn. Þar sem hæst ber, og daladrögin frá báðum hliðum mætast, eru vatnaskilin svo óglögg, að ekki er ólíkt því, að vatnið átti sig varla á því, í hvora áttina það á að renna. Á Svínadal gerðist einn mesti harmleikur fornsagn- anna. Þarna á dalnum veittu þeir bræður Guðrúnar Ósvífursdóttur og Bolli, fóstbróðir Kjartans Ólafssonar, Kjartani fyrirsát, og varð Bolli banamaður Kjartans á hinn ódrengilegasta hátt, eftir því sem í Laxdælu er sagt. Hvammssveitin liggur að Hvammsfjarðarbotni, en að suðaustan gengur Laxárdalurinn langt inn til heiða á leið til Hrútafjarðar. Þessar byggðir eru fagrar, og hver bær og hvert örnefni á sína sögu. I þessum stutta þætti ætla ég að rifja upp nokkra sögulega atburði, er gerzt hafa við Hvammsfjarðarbotn, og eru þessir atburðir eða söguþaéttir tengdir fyrst og fremst fjórum bæjum, sem allir eru þekktir sögustaðir. En bæirnir eru: Höskuldsstaðir, Hjarðarholt og Sæl- ingsdalslaugar og Sælingsdalstunga. Aðalsöguhetjan er Kjartan Ólafsson. Það er alkunnugt úr Landnámu, að Unnur hin djúp- úðga nam Iand við innanverðan Hvammsfjörð og byggði bæ að Hvammi. í för með Unni var merkur maður, er Kollur nefndist. Hann var síðar kallaður Dala-Kollur. Hann giftist Þorgerði sonardóttur Unnar, og gaf hún þeim Laxárdal allan. Þeirra son var Hös- kuldur. Er bærinn Höskuldsstaðir kenndur við hann. Laxdæla lýsir Höskuldi þannig: „Hann var fyrr full- kominn að hyggju en vetratölu. Höskuldur var vænn maður og gjörvilegur. Hann tók við föðurleifð sinni og búi. Er sá bær við hann kenndur, er Kollur hafði búið á.“ Kollur faðir Höskuldar andaðist, er Höskuldur var á ungum aldri, og tók hann þá við búi. Laxdæla segir frá kvonbænum Höskuldar eitthvað á þessa leið: „Björn hét maður. Hann bjó í Bjarnarfirði. Sá fjörð- ur skerst inn í land norður frá Steingrímsfirði. Björn var stórættaður maður og auðugur að fé. Ljúfa hét kona hans. Þeirra dóttir var Jórunn. Hún var væn kona og ofláti mikill. Höskuldur hafði haft spurnir af þessari konu. Höskuldur reið að heiman við tíunda rpann og sækir heim Bjöm bónda í Bjarnarfjörð. Fékk hann þar góðar viðtökur, því að Björn kunni góð skil á honum. Síðan vekur Höskuldur bónorðið, en Björn svarar því vel og kveðst það hyggja, að dóttir hans myndi eigi verða betur gift, en vék þó til hennar ráða. En er þetta mál var við Jórunni rætt, þá svarar hún á þessa leið: „Þann einn spurdaga höfum vér til þín, Hös- kuldur, að vér viljum þessu vel svara, því að vér hyggj- um, að fyrir þeirri konu sé vel séð, er þér er gift, en þo mun faðir minn mestu af ráða, því að ég mun því samþykkjast hér um, sem hann vill.“ Jorunn var siðan föstnuð Höskuldi og brúðkaup þeirra síðar haldið að Höskuldsstöðum. Um sambúð þeirra segir sagan: „Vel var um samfarar þeirra Hös- kulds og ekki margt hversdagslega.“ Þessi setning segir nokkuð, þótt hún sé ekki margorð. Höskuldur gerist nú mikill bóndi og auðsæll. Þau eignast mannvænleg börn, og var þar á meðal Hall-

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.