Heima er bezt - 01.04.1959, Side 24

Heima er bezt - 01.04.1959, Side 24
Pakkir og nokkur bréf Áskrifendur Heima er bezt. í febrúarblaðinu minntist ég á það við ykkur, að þið spöruðuð okkur þá feikna vinnu sem það kostar, að skrifa út mörg þúsund póstkröfur, og bað ykkur að senda okkur árgjald Heima er bezt, án þess að póst- krafa kæmi til. Nú þarf ég að bera fram þakkir. Þakkir til ykkar allra fyrir það hve vel þið brugðust við þessari beiðni minni, því að nú þegar er komin greiðsla frá miklum fjölda áskrifenda og daglega bætist við þann hóp. Þó vil ég enn taka það fram að þið sendið greiðsluna því aðeins og þegar það er ykkur þægilegt. Ýmislegt getur valdið því, að greiðsla dragist. Peningar kannske ekki heima við, mjög erfiðar póstsamgöngur að vetri til og því um líkt. Þetta skil ég allt mæta vel af eigin reynslu. í sambandi við greiðslurnar, hefur borizt mikill fjöldi bréfa. En því miður vinnst mér ekki tími til að svara öllum þessum góðu bréfum. Ég segi góðu, vegna þess að undantekningarlaust anda þau hlýju og vináttu í garð Heima er bezt. Ég verð því að láta nægja að þakka þessi bréf hér með: Kærar þakkir. Að gamni, og í trausti þess að bréfritararnir reiðist mér ekki, læt ég fylgja þessum línum fáein bréf frá áskrifendum. Hér með sendi ég árgj. 1959, fyrir „Heima er bezt," með keerri kveðju og þakkleeti. Blaðið er að minum dómi mjög gott. Allir ungir sem gamlir biða þess með eftirveentingu. Olkeldu II, Staðarsveit Sneef. Þórður Gíslason, skólastjóri. Kirkjubeejarklaustri 17. febr. 1959. Heiðraða blaðaútgáfa. Um leið og ég undirritaður sendi hér með ársgjalds- greiðslu mina fyrir blaðið „Heima er bezt," þá vil ég um leið þakka þeer áneegjulegu stundir, er ég hef af að lesa þetta ágeeta rit yðar, sem ég tel vafalaust bezta rit, sem út er gefið á fslandi, að öðrum ólöstuðum. Það vekur furðu mina, sem og annarra, hve heegt er að halda árgjaldi blaðsins lágu, miðað við verðlag á öllu nú til dags, og er ekki til of mikils mcclzt, til okkar kauþenda, að láta yður ekki hafa fyrir að innheimta gjaldið með póstkröfu. Ég vil þvi fyrirbyggja þann aukakostnað frá minni hálfu, með því, að senda hér með mitt árgjald. Með beztu kveðju og þökk fyrir blaðið. Viðar Björgvinsson. Sámsstöðum 5. febr. 1959. Um leið og ég sendi áskriftargjaldið fyrir yfirstandandi ár, vil ég láta i Ijósi áneegju mina með að hafa gerzt áskrifandi að blaðinu. Þetta er, að minu áliti, heilbrigðasta blað sem gefið er út um þessar mundir. Með beztu óskum, Guðrún Tryggvadóttir Sámsstöðum, Fljótshlið Rang. „Heima er bezt." Hér með sendi ég árgjald 1959, fyrir yðar ágeeta blað og þakka hin ágeetu skil á blaðinu, ásamt þess mörgu sögum og fróðlegu greinum. Með beztu kveðju. Virðingarfyllst, Kolsholti, 23. febr. 1959 Sigurður Gislason. Hr. ritstjóri. Um leið og ég sendi árgjald blaðsins „Heima er bezt," vil ég þakka þeer mörgu áneegjustundir, er ég og mitt heimilis- fólk, hefur notið við lestur þess. Ef eldri árgangar eru til hjá forlaginu, þá vildi ég gjarnan fá sendan einn* árgang i þóstkröfu. Hér leet ég fylgja með árgjald frá Vigdísi Sigurðardóttur. Keer kveðja og árnaðaróskir. Karl Ólafsson Hala, Rangárvallasýslu. Keeri ritstjóri. Hér með sendi ég yður árgjald mitt fyrir „Heima er bezt," kr. 80,00, og vonast svo eftir að blaðið verði alltaf jafn skemmtilegt og það hefur verið siðan ég byrjaði að kaupa það. Sendi ég siðan blaðinu mínar beztu kveðjur og óska þvi geefurikrar framtíðar. Virðingaifyllst, Jónina í. Guðmundsdóttir Syðra Dalsgerðum, Saurbeejarhreppi. „Heima er bezt." Pósthólf 45, Akureyri. Sendi hér með árgjald blaðsins, kr. 80,00. Um leið og ég flyt ykkur alúðarþakkir fyrir blaðið, þá vil ég einnig geta þess, að það er mjög ódýrt þrátt fyrir geysi- mikið efni, beeði fjölbreytt og vandað. Að endingu óska ég blaðinu langra og góðra daga. Með vinarkveðju, Hannes Sigurðsson Hliðarenda, Bárðardal. S.-Þing. Brekku, Biskupstungum. 21. febr. 1959. „Heima er bezt." Ég undirrituð, sendi hér með kr. 80,00 (áttatiu krónur), fyrir árganginn 1959 af „Heima er bezt," samkvecmt ósk yðar i síðasta tölublaði. Ég vil þakka þeer áneegjustundir sem skapazt hafa við lestur blaðsins, ekki einungis hjá mér og minni fjölskyldu, heldur og hjá nábýlisfólki okkar, sem feer blaðið til aflestrar með okkur. Að endingu flyt ég blaðinu hugheilar framtiðaróskir um geefuríkt starf á ókomnum timum. Virðingarfyllst, Hildur Guðmunds Brekku, Biskupstungum Arnessýslu. 20. febr. 1959 Hér með greiði ég ,Heima er bezt," heimska er greiðslu að slá á frest. — Pyngjan hefur lítið létzt, að lágt er gjaldið, á þvi sést. Bragi Björnsson . Surtsstöðum, Jökubárhlið N.-Múlasýslu. 136 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.