Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.04.1959, Qupperneq 25
Siglujirði, 24. jan. 1959. Urn leið og ég sendi áskriftargjaldið, jyrir árið 1959, til „Heima er bezt,“ vil ég þakka góð skil á blaðinu, svo og margan fróðleik og skemmtun, sem það hefur flutt mér og mínu heimilisfólki. Oska ég svo blaðinu gœfu og gengis og sömuleiðis útgef- endum þess. Virðingarfyllst, Guðmundur Konráðsson Hafnargötu 16, Siglufirði. „Heima er bezt,“ pósthólf 45, Akureyri. Hér með sendi ég áskriftargjaldið fyrir „Heima er bezt," kr, 80,00. Eg bið afsökunar á, að ég skuli ekki vera búin að senda það fyrr. Ég þakka fyrir blaðið og þykir það bæði fróðlegt og skemmtilegt. Ég er eins og börnin, bið með óþreyju eftir hverju blaði. Svo eru getraunirnar oft afar spennandi. Með kærri kveðju og vinsemd, Ragnheiður Jónsdóttir Melum, Norðurfirði. Strandas'ýslu. Grundarfirði, 20. febr. 1959. Herra útgefandi Sig. O. Björnsson, Akureyri. Samkv. tilmælum yðar i síðasta hefti „Heima er bezt," sendi ég yður hjálagt ávisun fyrir árgjaldinu 1959, að upph. kr. 80,00. En úr þvi að ég er byrjaður að skrifa yður, þá er mér Ijúft að tjá yður eftirfarandi. Timaritið „Heima er bezt,“ sem ég hef keypt frá upphafi, er að minni hyggju ekki aðeins i röð fremstu mánaðarrita hérlendis, heldur allra fremst og ber þar ýmislegt til, en þetta helzt: 1. Timaritið er i sérstöðu hvað þjóðlegt og menningarlegt efnisval áhrœrir. 2. Það hefur aldrei fallið fyrir þeirri freistni, að tryggja sér fjárhagsafkomu, með flutningi þess efnis, sem slær á lægstu hvatir mannskepnunnar, svo sem mikill fjöldi annara rita hefur gert og nú siðustu misserin dagblöðin sýnast ástunda lika, a. m. k. sum þeirra. 3. Útgáfan er regluleg, smekklega úr garði gerð og pappir góður, og siðast en ekki sizt, blessunarlega laus við auglýs- ingafarganið. Ég vil sérstaklega láta i Ijós ánægju mina yfir því, að sl. ár var á forsiðu hvers heftis birt mynd af íslendingi og grein um hann inni i blaðinu. Það er alveg rétt hjá ritinu, það er ekki nauðsynlegt að sá eða sú, sem um er fjallað, sé þjóð- kunn eða fræg fyrir unnin afrek, efnisleg eða andleg, þótt sizt beri það að lasta, en fleiri hafa til sins ágætis nokkuð. — Skemmtileg fjölbreytni er t. d. á tveimur fyrstu heftum þessa árs, i því fyrra grein um aflakóng Eyjanna, í því siðara um mætan drengskaparmann i bændastétt á Héraði austur. Ég vil nota tækifærið um leið og ég árna „Heima er bezt.“ alls góðs í framtiðinni, þakka því fyrir óteljandi ánægju- stundir á undanförnum átta árum. Með vinsemd, Emil Magnússon. Þetta voru þá bréfin, tekin af handahófi hingað og þangað að af landinu. Með beztu kveðju, Sigurður O. Björnsson HEIMA ER BEZr BÓKAHILLAN Guðmundur L. Friðfinnsson: Hinum megin við heim- inn. Reykjavík 1958. ísafold. 275 bls. Þessi þriðja skáldsaga Guðmundar Friðfinnssonar er um margt ólík hinum fyrri,- Stílleiknin er meiri og tökin á efninu fastari. Einkum eru persónur sögunnar miklu fastmótaðri en í hinum fyrri sögum. En sem fyrri nær höfundurinn ágætum tökum á náttúrulýsingum, án þess þó að þær beri söguefnið ofurliða eins og stundum fyrr. Sagan er tímamótasaga, fjallar hún öðrum þræði unr losið i þjóðfólaginu, brottflutningana úr sveitunum og viðnám gegn þeim, sem í fljótu bragði virðist þó vera vonlaust. Söguhetjan, Börkur Arason, rifjar upp lífsferil sinn í hugsuðu samtali við vin sinn á Morgunstjörnunni, því að enginn er nær, sem hann getur blandað geði við. Saga hans er rauna- og þrauta- saga, röð af ósigrum, og sólskinsblettirnir furðu fáir, en allt um það gefur niðurlag bókarinnar innsýn í sigur hans, þar sem hann við sýn fyrstu vorsóleyjarinnar kemst að þeirri niðurstöðu, „að jákvæður vöxtur lífsins er það, sem öllu máli skiptir. “ Þetta er í raun réttri boðskapur bókarinnar. En með henni hefur höf. tryggt sér sæti innarlega á skáldabekk þjóðarinnar. Peter Hallberg: Vefarinn mikli. Reykjavík 1957. Helgafell. Sænski bókmenntafræðingurinn Peter Hallberg hefur gert Hall- dór Kiljan Laxness að sérgrein sinni. Hann hefur þýtt bækur hans á sænska tungu og kynnt hann löndum sínum í fjölda greina og að minnsta kosti tveimur bókum. Má ætla, að starfsemi hans hafi greitt fyrir þvi, að Laxness voru vcitt Nóbelsverðlaunin. Bók sú, er nú birtist íslenzkum lesendum, er fyrsti hluti af höfuðriti Hall- bergs, og fjallar það um æsku og æskuskáldskap H. K. L. og að- dragandann að hinu stærsta æskuverki hans, Vefaranum mikla frá Kasmír. Höfundur rekur þar af mikilli nákvæmni, sumum mun þykja það smásmygli, þroskasögu H. K. L. eftir ritum hans, prentuðum og óprentuðum, svo og bréfum, sem skáldið skrifaði vinum sínum á þessum árum og einnig eftir frásögn skáldsins sjálfs. Er það hvort tveggja, að H. K. L. hefur hlotið meiri frama en aðrir ís- lenzkir rithöfundar, enda hafa engum þeirra verið gerð lík skil, ekki einu sinni að þeim látnum. Miklu efni er til bókarinnar safnað, og það fram reitt á aðgengilegan hátt. Lætur höf. H. K. L. tala þar sjálfan í bréfa- og bókaköflum. Verða menn á eftir miklu ftóðari um sögu skáldsins og hvernig æskuverk hans fæddust. Og hafi einhver haldið, að skáldið Halldór Kiljan Laxness hafi stokk- ið fullþroska og fyrirhafnarlaust fram á ritvöllinn, líkt og Aþena úr höfði Seifs, þá sýnir þessi bók að ekkert er fjær sanni. Að baki afteka hans liggur langt og þrotlaust starf og margvíslegar þreng- ingar. Annað mál er, hvort ekki hefði verið unnt að gera því máli skil í styttra máli en hér er um að ræða og hvort yfirleitt órar og umbrot þau, sem gerast í huga óráðins unglings, eru nauðsynlegur lykill að skilningi á honum sem fullþroska skáldi. Og satt að segja grunar mig, að rit þetta, þótt vel sé unnið, breyti litlu um mat les- enda eða annarra á ritverkum H. K. L. Og vafalaust mun sumum þykja það dálítið undarlegt, að skáldið sjálft skuli kæra sig um slíka lýsingu. — En hvað sem þvi líður, þá er bókin fróðleg og skemmtileg víða, einkum þar sem skáldið sjálft tekur til máls, og þýðing Björns Th. Björnssonar virðist vera hin ágætasta. Heima er bezt 137

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.