Heima er bezt - 01.04.1959, Side 26

Heima er bezt - 01.04.1959, Side 26
SÝSLUMANNSSONURINN Ingibjörg Siguréardóttir: — Valur! Hildur lítur snöggt á mann sinn, og óeðli- legur roði stígur fram í kinnar hennar. — Það er líklega laust við hann, hvort eldhússtúlkan er eða fer. — Ertu nú viss um það, Hildur mín, að það skipti hann engu máli? — Ég skil ekki við hvað þú getur átt, Þórður. Sýslumaðurinn tekur þétt um hönd konu sinnar og horfir fast í augu hennar. Svo segir hann blítt og ein- arðlega: — \rið skulum vera hreinskilin hvort við ann- að, Hildur mín, í þessu máli sem öðrum, því við höfum alltaf sýnt hvort öðru fullan trúnað. Frú Hildur lítur undan hinu fasta augnaráði manns síns og segir kalt og þykkjuþungt: — Hvernig getur þú látið slíka fjarstæðu koma þér til hugar, að Val sé ekki sama um eldhússtúikuna, eða finnst þér kannske jafn- ræði með þeim.... — Jafnræði? — Já, því ekki það. Lífið hefir að vísu skapað þeim ólík ytri kjör. Valur hefir alizt upp við auð og allsnægtir og hlotið flest þau gæði, sem þetta líf hefir upp á að bjóða, en Ásta hinsvegar orðið að þola fátækt og ástvinamissi, og að sjálfsögðu lítilla gæða notið. En þrátt fyrir ólík ytri kjör getur manngildi beggja átt fullkomið jafnræði, og það skiptir mestu máli að mínum dómi. — Á ég þá að skilja orð þín á þann veg, að þú óskir eftir því að ómenntuð eldhússtúlka verði hlutskipti einkasonar þíns í lífinu? — Rödd frú Hildar titraði af undrun og geðshræringu. — Ég ætla hvorki að óska þess né reyna til að aftra því. Valur er, hvað mig snertir, alveg frjáls að velja og hafna, og ég álít að hann hafi fullkomna dómgreind í þeim efnum. — Það efast ég um að hann hafi, eftir því sem þú lætur orð þín falla. Hann sýslumannsefnið, og hún um- komulaus eldhússtúlka. Hvílík regin-fjarstæða! Frú Hildur hlær hátt og kuldalega. En sýslumaður horfir iast á konu sína og segir jafnrólega og áður: — Hvers virði er auður og metorð hjá góðri og göf- ugri sál? — Álítur þú eldhússtúlkuna svona göfuga? — Já, Hildur mín, ég álít hana það. — Og af hverju dregur þú þá ályktun? — Því er fljótsvarað. Hver sá sem leggur líf sitt í hættu til að bjarga öðrum, á þann dýrmæta fjársjóð í sál sinni, sem öllum veraldarinnar auð og mannvirð- ingum er æðri og meiri, en við vitum það bæði, að þann dýra fjársjóð hefir eldhússtúlkan okkar sýnt í verki á fagran og ógleymanlegan hátt. — Já, Valur minn sagði mér einhvern tíma frá því, að Ásta hefði bjargað barni, sem bifreið var að því komin að aka yfir þarna á Sæeyri. Og það var fallega gert, því getur enginn neitað. En ég er viss um, að að sonur minn hefir aldrei látið sér það til hugar koma, að eldhússtúlkan skipaði sætið mitt hér í Ártúni, hvað góð sem hún kann að vera. — Sért þú fullviss í þeirri sök, Hildur, þá er óþarfi að ræða þetta mál frekar við mig. Þú ert sjálfráð, hvort þú veitir stúlkunni fararleyfi eða ekki, fyrst hún óskar þess. Ég veit að þú gerir það eitt, sem þú telur vera rétt. Sýslumaðurinn tekur aftur pennann og fer að skrifa á ný. Frú Hildur finnur, að samtalinu er lokið af hans hálfu og gengur svipþung fram úr skrifstofunni. Sár og ólgandi reiði svellur í sál hennar og svæfir með öllu rödd samvizkunnar og rænir hana jafnframt hennar venjulegu réttsýni og dómgreind. Hún hafði sízt af öllu búizt við slíkum undirtektum hjá manni sínum í þessu viðkvæma máli. En nú er hún heldur ekki í neinum vafa lengur, hverju hún á að svara lausnarbeiðni eldhús- stúlkunnar. Ásta skal sannarlega fá að fara frá Ártúni, og það strax og því verður við komið. Frú Hildur gengur beina leið fram í eldhúsið og nemur þar staðar. Ásta er þar ein að verki eins og venjulega. Frú Hildur snýr sér að henni og segir með ákafa: — Hvenær hefur þú hugsað þér að fara héðan? — Strax og ég hefi fengið leyfi yðar. — Það er þér veitt, og þú mátt fara héðan, hvenær sem þú vilt mín vegna. 138 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.