Heima er bezt - 01.03.1960, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.03.1960, Blaðsíða 2
Silfur og gull íslenzkrar tungu. Fyrir nokkru var úthlutað nýstárlegum verðlaunum hér á landi. Helgi Hjörvar og kona hans hafa stofnað sjóð, til þess að verðlauna þá menn, sem flytja fegurst mál í útvarpinu íslenzka. Er það gert til minningar um son þeirra, Daða Hjörvar. Nýlega var verðlaununum úthlutað, og hlaut Davíð Stefánsson, skáld, gullverð- laun, en útvarpsþulirnir: Sigrún Ögmundsdóttir, Pétur Pétursson, Jón Múli Árnason og Þorsteinn Ö. Stephen- sen silfurverðlaun. Það er raunar ekki sjaldgæft, að hér séu veitt verð- laun, og oft er um þau deilt. í þetta sinn mun enginn hafa dregið í efa, að hér var rétt að farið, og ekki aðrir, sem betur væru að þessum heiðri komnir. En engu að síður gefur þessi verðlaunaveiting tilefni til nokkurra hugleiðinga. Um aldir hafa íslendingar þjálfað tungu sína við ritstörf. Árangur hefur að vísu misjafn orðið, en þó hafa flestir borið sömu ósk í brjósti, þ. e. að halda við reisn tungunnar eins og geta þeirra leyfði. Og íslenzk tunga hefur lifað og þróazt. Hún hefur að vísu tekið breytingum, en haldið reisn sinni og hreinleika, og óvíst er að hún hafi nokkru sinni verið auðugri og mýkri og um leið virðulegri en einmitt nú. Þótt oss íslendinga greini á um margt, munum vér þó flestir sammála um, að tunga vor sé dýrasti arfur og auður þjóðar vorrar. En þegar vér ræðum um tunguna hættir oss við að hugsa nær ein- göngu um hið ritaða orð. Margsinnis hafa verðlaun verið veitt fyrir Ijóð, sögur, leikrit, ritgerðir og önnur afbrigði hins ritaða máls. Um tungutakið sjálft hafa engir hugsað, fyrr en Helgi Hjörvar hefur nú rutt brautina til að minna á gildi hins talaða máls. En þetta atriði hefur því miður verið vanrækt um of, en von- andi verða nú tímamót í því efni. Lítill vafi er á, að í fornöld hefur mikil rækt verið lögð við hið talaða orð. Hirðskáldin hlutu að flytja kvæði sín á hljómmiklu máli. Ekkert tæpitungulag eða latmælabragur hefur verið á uppsögn laga á Alþingi hinu forna, og naumast hefði sagnalist forfeðra vorra náð þeim þroska, er hún fékk, ef sagnaþulirnir hefðu ekki kunnað að beita réttu hljómfalli og tungutaki. Á ófrelsisöldum þjóðarinnar hnignaði rækt hins tal- aða orðs. Og á vorum dögum fer því fjarri, að reisn þess sé uppi haldið sem skyldi. Latmæli, flámæli, lin- mæli og hvers kyns ófögnuður veður uppi, svo að ósköp eru á að hlýða. En sakir hraðari samgangna og aukinna samskipta fólks er hættan á útbreiðslu þessa ófagnaðar enn meiri en áður. Á hverjum degi flæðir hið talaða orð um eyru allrar þjóðarinnar frá útvarpinu. Það streymir fram í frétta- flutningi, erindum, leikjum, upplestrum og enn frem- ur í hvers konar tilkynningum og dægurlagasöng o. s. frv. Ekki verður því neitað, að útvarpið gerir heiðar- lega tilraun til að vanda val hinna föstu starfsmanna, er orðið flvtja, þótt stundum hafi mistekizt eins og gengur. En engu að síður heyrist framburði tungunnar alltof oft misþyrmt um of í hinu talaða orði í útvarp- inu. Linmælið veður uppi, flámæli er engan veginn óþekkt fyrirbæri, og oft heyrum vér menn flytja er- indi með mjög greinilegum framburðargöllum. Sumir dægurlagasöngvarar virðast telja það einn meginþátt listar sinnar, að syngja drafandi með alröngum áherzl- um og hljóðfalli. Og hvernig fer þá með tungutak þess æskulýðs, sem hefur sér það að leik og list að syngja sem líkast þessum átrúnaðargoðum sínum. Það er bjarnargreiði við menn, sem samið hafa góð erindi, en hafa gallað tungutak, að láta þá sjálfa flytja erindi sín í útvarpinu. Þar eiga hinir þjálfuðu lesarar að koma til sögunnar. Engum manni með málgalla ætti að hleypa að hljóðnemanum og allra sízt hvað eftir annað. Eg hef rætt hér um útvarpið, ekki svo mjög vegna þess, að syndir þess séu stærri en annara aðila, heldur vegna þess, að áhrif þess eru svo miklu sterkust allra stofnana í landinu bæði til góðs og ills, og því ríð- ur miklu mest á því fyrir flutning íslenzkrar tungu, að þar sé vel á verði verið. En hvað um alla skólana? mun einhver spyrja. Víst er það, að á þeim hvílir mikil ábyrgð, og áhrif þeirra geta orðið varanleg í þessu efni sem öðru uppeldi. Því miður óttast ég, að skólarnir gæti ekki eins vel og skyldi ábyrgðar sinnar í þessu efni. Og í raun réttri ætti eng- um að leyfast að fást við kennslu, nema hann sé rétt talaður, laus við áberandi málgalla, og hafi lært að bera íslenzka tungu fram lýtalaust. Hættan á málspjöllum hefur aldrei verið meiri en nú. Erlend áhrif sækja fastar á en nokkru sinni fyrr. En þar óttast ég minna um þá hættu, sem stafar af erlend- um orðum og orðasamböndum, en málhreiminn sjálfan. Bæði er staðið þar fastar á verði, og tunga vor hefur sýnt það á liðnum öldum, að hún getur beinlínis auðg- azt af erlendum áhrifum. En um spjöll á framburði og flutningi málsins eru engir varnargarðar hlaðnir. Verðlaunasjóður sá, er getið var í upphafi þessa máls, 74 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.