Heima er bezt - 01.03.1960, Blaðsíða 30

Heima er bezt - 01.03.1960, Blaðsíða 30
GUÐRON fra lundi TUTTUGASTI OG SJÖUNDI HLUTI Ásdís talaði við hann á leiðinni til mógrafanna og spurði hverju það hefði svarað Þúfnahyskið, þegar hann hefði farið að minnast á Bleik. Hann anzaði því engu. Um kvöldið rakaði hann sig á ný þegar húm var komið og rölti suður að Þúfum. Hann vissi það vel, að sjaldan fellur tré við fyrsta högg. Ekki var ómögulegt að hann gæti unnið konu sína, ef hann talaði við hana á hverjum degi. En hún var alltaf jafn ósveigjanleg. Hann minntist aldrei á Ásdísi og það, sem þeim hafði orðið á. Því síður að hann talaði um að hún fyrirgæfi sér afbrot sitt. Heldur reyndi hann að leiða henni fyrir sjónir, hvað hún færi mikils á mis við að fara frá Hofi, þessari vildisjörð. Sjálfsagt beztu jörð- inni í sveitinni. Hún sagðist ekki vera henni ókunnug, þeirri jörð. Stundum bað hann hana að koma með sér út að túninu og sjá ærnar, sem væru þar allt í kring. Önnur eins lömb hefði hann aldrei átt. Hún sagðist vera búin að sjá þau margsinnis. Þau væru ekkert fallegri eða stærri en þau hefðu verið und- anfarin vor. Hún skildi hann alltaf betur, eftir því sem þau jöguðust oftar. Það var ekki hún sem hann þráði að kæmi heim aftur, heldur var það parturinn af Hofi sem hún átti. Hann bjóst við að missa hann og líklega yfirráð á allri jörðinni. Hann var alveg hættur að slá á viðkvæmasta strenginn þar sem Jón htli var. Á hann hafði hann ekki minnzt síðan fyrsta daginn. Rósa þráði að dagarnir hröðuðu sér að líða þangað til manntalsþingið yrði haldið. En þeir siluðust áfram. Loksins kom hann þó, sá örlagaríki dagur. Kristján sagði við Ásdísi um morguninn, að nú væri bezt að hún Eeri fram að Giljum í dag, því það yrði ekkert sérstakt til að gera heima. En Bleik gæti hann ekki lánað henni. Hún gæti fengið rauða reiðhestinn hans. Hann væri farinn að eldast og væri ákjósanlegur handa henni. „Ertu virkilega búinn að selja því í Þúfum þann bleika?“ spurði hún. „Ég á hann ekki og get þess vegna ekki selt hann,“ svaraði hann. „Ég þarf að ríða fram að Hóli á þingið og hef náttúrlega tvo til reiðar eins og hver annar stórbóndi,“ bætti hann við með köldu glotti. „Þá getum við orðið samferða,“ sagði hún. „Það er ekki vanalegt að kvenfólk ríði til þings,“ sagði hann. Ásdís fór að hafa fataskipti á meðan Sveinki sótti hrossin og lét þau í réttina. Þegar hún var ferðbúin og fór út í skemmuna til að ná í söðulinn hennar Rósu og beizlið, var hvoru tveggja horfið. Hún rauk inn og ætlaði að tala við húsbóndann, en hann var þá hvergi sjáanlegur. „Hvernig stendur eiginlega á þessu?“ spurði hún í maskínuhússdyrunum. „Ég sé hvergi söðulinn og beizl- ið, þegar ég ætla að fara að leggja á hestinn.“ „Hvaða söðul ertu að tala um?“ sagði Geirlaug og brosti lævíslega. „Auðvitað frúarsöðulinn. í hvaða söðh hélztu að ég færi?“ „Ætlaði Kristján að láta þig þeysa í honum um sveit- ina?“ spurði Geirlaug. „Ekki kann hann að skammast sín.“ „Hefurðu kannske falið söðulinn, ómyndin þín?“ sagði Ásdís. „Nei, það hefur mér ekki dottið í hug. Mundi í Þúf- um sótti hann um daginn og hann kemur sjálfsagt ekki hingað aftur,“ sagði Geirlaug en sá eftir lausmælgi sinni, því að ekkert var líklegra en að Ásdís færi suður að Þúfum og heimtaði söðulinn.' „Ég býst við að hún Bogga láni þér söðulinn sinn.“ „Ég skal lána þér bæði söðulinn og beizlið og leggja á hestinn fyrir þig,“ sagði Bogga. „Þá ertu ágæt, skinnið mitt,“ sagði Ásdís með hús- móðurlegum virðingarsvip. Hún fann það að hún var hátt yfir Boggu hafin. „Sæktu svo Rauð ofan í réttina og legðu á hann fyrir mlg, á meðan ég er að klæða mig í reiðfötin.“ En þegar hún kom út, sá hún að Kristján þeysti upp með túngirðingunni að sunnan með tvo til reiðar, en hvorugur var bleikur. „Hvað liggur honum eiginlega á,“ sagði Ásdís klökk af gremju. „Ég var búin að tala um það að við yrðum samferða.“ 102 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.