Heima er bezt - 01.03.1960, Blaðsíða 29

Heima er bezt - 01.03.1960, Blaðsíða 29
Jónatan gengur heini að Vesturhlíð. Foreldrar hans eru bæði stödd í eldhúsinu. Hann nemur staðar hjá þeim og segir raunalega: — Barnið mitt er helsjúkt, séra Einar er kominn til að skíra það. Viljið þið gera það fyrir mig að koma heim að Austurhlíð og vera við skírnina, líta einu sinni á litlu stúlkuna mína, áður en.... Hann lýkur ekki setningunni, rödd hans deyr út. Kristín lítur á son sinn, hörkudrættir fara um svip hennar, og hún svarar kuldalega: — Ég stíg aldrei mín- um fæti heim að Austurhlíð, og þetta barn kemur mér ekkert við. Atla ofbýður skapharka konu sinnar, eins og nú stendur á. Hve langt getur hið blinda hatur gengið. Hann óttaðist það. Hann lítur hlýlega á son sinn og segir: — Ég kem með þér, góði minn. — Ég þakka þér kærlega fyrir það, pabbi minn. Atli gengur til baðstofu og skiptir fötum í flýti og fylgir síðan syni sínum heim að Austurhlíð. Hin helga skírnarathöfn er hafin. Lilja situr uppi í rúmi sínu með barnið í örmum sér. Jónatan stendur næstur henni, þá hjónin í Austurhlíð og Atli. Engin óvild hvílir lengur yfir þeim þögula hóp. Sorgin og ógnanir dauðans hafa mildað það allt. Presturinn spyr: — Hvað á barnið að heita? • — Anna Kristín, svarar Lilja hátt og skýrt. — Anna Kristín, ég skíri þig til nafns föðursins, son- arins og hins heilaga anda.... Húsfreyjan í Austurhlíð kippist ósjálfrátt við, nöfn- in þeirra, Kristínar í Vesturhlíð og hennar, vígð saman í nafni heilagrar þrenningar, á saklausu dauðvona barni. Nafn konunnar, sem hún hefur hatað árum safnan! Það er einkennilegt atvik, en héðan af verða nöfnin ekki aðskilin á litlu stúlkunni, hvort sem hún lifir eða deyr. Anna lýtur höfði. Hér er æðri máttur að verki, sem hún verður að beygja sig fyrir. Skírninni er lokið, og Lilja leggur barnið í vögguna aftur. Það virðist mjög af því dregið. Séra Einar geng- ur til Jónatans að nýju og segir hljóðlega: — Og móðir þín kom ekki, vinur minn. — Nei, hún vildi ekki gera það fyrir mig. Séra Einar stynur þungan. — Nei, ekki það. Ég ætla að koma við í Vesturhlíð, um leið og ég fer héðan og tala við hana. — Já, gerðu það, séra Einar. Mamma hefur alltaf metið þig mikils. % Presturinn er ferðbúinn frá Austurhlíð. Hann kveður alúðlega og gengur út á hlaðið. En Ármann kennari verður eftir inni í baðstofunni hjá Jónatan og Lilju. Hann hefur enn ekki kvatt þau. Ármann gengur til þeirra og segir: — Ég votta ykkur innilega samúð mína vegna sjúkleika litla barnsins ykkar. Viljið þið gera það fyrir mig að láta fyrri kynni okkar vera glevmd og þiggja vináttu mína, ef hún mætti verða ykkur ein- hvers virði. Þau líta bæði undrandi á Ármann, og Jónatan svarar: — Ég þakka þér fyrir, Ármann. Öll vinátta er mikils virði, sé hún veitt af heilum hug. Og hin fyrri kynni okkar eru fúslega gleymd frá minni hálfu. — Sömuleiðis hvað mig snertir, segir Lilja. Ármann tekur hlýtt og innilega í hönd þeirra beggja vináttunni til staðfestingar. Síðan kveður hann og hrað- ar sér út til tengdaföður síns, sem bíður hans á hlaðinu. Séra Einar ríður heim að Vesturhlíð, en Ármann stígur af baki við túnhliðið og bíður hans þar. Hann á ekkert erindi heim á þennan ókunna bæ. Séra Einar ber að dyrum í Vesturhlíð, og Kristín húsfreyja kemur út. Presturinn heilsar henni með hlýju handabandi og segir síðan: — Ég er kominn að óska þér til hamingju með sonar- dótturina og nöfnu þína, Kristín mín. Hann þrýstir hönd hennar að nýju. — Nöfnu! — Var þessi krakki látinn heita í höfuðið á mér? — Já, litla stúlkan heitir Anna Kristín, og mér finnst fara vel á því. Kristín skiptir litum af reiði, en stillir sig þó og seg- ir ekkert. Séra Einar heldur áfram tali: — Ég vonaðist fastlega að sjá þig við skírnina, en það brást mér. — Ég stíg aldrei fæti að Austurhlíð, séra Einar. — Hefur þú þá ekki enn séð litlu stúlkuna? — Nei, mér kemur þetta barn ekkert við. — Sonarbarnið þitt! — Veiztu að það er helsjúkt? — Já, en það er sama. — Ætlarðu þá ekki að fara og sjá barnið, meðan það enn er á lífi? — Nei? (Framhald). • • VILLI • • • • • Heima er bezt 101

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.